Fotbolti.net
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Mjólkurbikar karla
Greifavöllurinn
KA
KA
4 - 0
KFA
KFA
Eggert Gunnþór Jónsson (sjm) 38'1 - 0Jakob Snær Árnason 41'2 - 0Dagbjartur Búi Davíðsson 68'3 - 0Marcel Ibsen Romer 80'4 - 0
Dómari: Sveinn Arnarsson

SKÝRSLAN: Bikarmeistarar KA stefna á að verja bikarinn

Hvað réði úrslitum?

Gæðamunurinn á liðinum. KFA voru gríðarlega þéttir og gáfu KA fá færi á sér en þegar KA náði inn fyrsta markinu þá opnaðist leikurinn meira og eftir það var þetta aldrei spurning.

Bestu leikmenn

1. Mikael Breki Þórðarson (KA)

Mikael Breki er fæddur árið 2007 og fékk tækifærið í dag og stóð sig frábærlega. Kom að öðru marki KA sem Jakob Snær skoraði.

2. Jakob Snær Árnason (KA)

Jakob Snær er algjör vinnu hestur og stóð sig vel í dag. Kom að fyrsta marki KA í dag með frábæri pressu og skoraði annað mark KA.

Atvikið

Marcel Römer er mættur í KA - Kom inn og fékk 25 mínútur í dag. Var ekki lengi að opna markreikning sinn fyrir KA þegar hann skoraði eftir fyrirgjöf Jóan Simun.

Hvað þýða úrslitin?

Bikarmeistararnir eru komnir áfram í 16-liða úrslitin og verða í pottinum þegar dregið verður eftir páska. Bikarævintýri KFA er úti í ár. Eiga þó enþá séns en þeir verða með í fræga Fótbolta.net bikaranum.

Vondur dagur

Milan Jelovac fékk á sig fjögur í dag og var heppinn að fá ekki að líta rautt spjald í dag.

Dómarinn - 8

Sveinn Arnarsson og hans menn voru flottir í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.