Leik lokið!
91. mín
Leikurinn er að klárast. Rólegar síðustu mínútur í stöðunni 7-1.
89. mín
Dauðafæri aleinn, Daði skallar framhjá. Daði gæti verið búinn að skora 1-2 mörk eftir föst leikatriði í dag.
87. mín
InnBrynjar Óttar Jóhannsson
ÚtGabriel Þór Þórðarson
85. mín
MAAAARK!
Ingólfur Sigurðsson
Ingólfur fær í D boganum og markmaður Úlfanna stendur of framarlega. Falleg vippa og beint í mark. 7-1.84. mín
InnEinar Gísli Gunnlaugsson
ÚtKristján Ólafur Torfason
Tvöföld skipting
84. mín
InnJón Haukur Bjarnason
ÚtHaukur Steinn Ragnarsson
Tvöföld skipting
83. mín
Gult spjald
Haukur Steinn Ragnarsson
Óþarfa brot, hrindir í Asmer Begic.82. mín
Horn Úlfar
Skallað frá, Luis Romero klobbar bakvörð Úlfana en togað í hann og aukaspyrna.
81. mín
Ivan Lopez skýtur yfir eftir hornspyrnu. Spænskir dagar í Ólafsvík.
80. mín
Luis Romero að gera Úlfunum lífið leitt hérna á vinstri vængnum. Stingur mann og annann af ítrekað eins og Aaron Lennon.
79. mín
Horn sem endar á því að markmaður Úlfanna ver frá Daða Kárasyni.
77. mín
Leikurinn er svona að fjara út. Heimamenn saddir með 6 mörk og gestirnir virðast ekki hafa meira að gefa hérna.
73. mín
InnGuðmundur Hrafn Torfason
ÚtGylfi Már Hrafnsson
Úlfarnir að fríska enn meira uppá.
71. mín
Asmer Begic með gott skot en varið.
67. mín
InnBörkur Þorri Þorleifsson
ÚtBirgir Theodór Ásmundsson
67. mín
InnJóhann Ágúst Arnarsson
ÚtSteinar Haraldsson
65. mín
MAAAARK!
Ingólfur Sigurðsson
Fær hann við vítateigshornið. Sólar einn, sólar tvo og leggur hann svo í fjær.61. mín
Gult spjald
Luis Romero Jorge
Ljót tækling og kannski óþarfi í stöðunni 5-1.60. mín
InnBjörn Henry Kristjánsson
ÚtIngvar Freyr Þorsteinsson
SKipting sem gleymdist
59. mín
Dauðafæri en Jón ver. Úlfarnir komast í gegn Ingimar Daði er að gera sig líklegan fyrir gestina.
57. mín
Horn
Skyndisókn, Ingimar Daði stingur menn af og vinnur horn fyrir Úlfana. Hermann Björn skallar í átt að markinu og fær annað horn.
55. mín
Fyrsta spajldið
Kristján Ólafur Torfason
Krisjtán brýtur á Luis Romero sem er hraður með og án bolta.53. mín
Það er smá meiri hiti að færast í þennann leik. Menn aðeins að sparka í hvorn annann, gaman að því.
48. mín
Úlfarnir eru búnir að færa Magnús Snæ úr bakverði og inn á miðjuna. Það er bolti í honum, vonandi ná gestirnir að byggja upp betra spil svona.
46. mín
Horn
Áfram halda Víkingar að fá hornspyrnur. Skallað frá.
45. mín
InnIngólfur Sigurðsson
ÚtLuis Alberto Diez Ocerin
45. mín
Við erum farnir í gang. Víkingar byrja með boltann, Luis Albert kemur honum út til vinstri á Kristófer Áka í rólegheitum.
45. mín
Dómarinn er að blása í flautuna og reka menn úr klefunum.
Það er páskafrí og mönnum langar að fara grilla greinilega.
45. mín
Einstefna eftir að Úlfarnir komust í 0-1. 5 mörk frá heimamönnum í fyrri hálfleik.
Mikilvægt að hita vel upp eftir pásu til að forðast meiðsli því hér er kalt.
44. mín
Skyndisókn hjá Úlfunum, Kristján Ólafur á ágætis skot í skær appelsínum skóm en Jón markmaður heimamamma grípur boltann.
40. mín
MAAAARK!
Ingvar Freyr Þorsteinsson
Fyrirliðinn búinn að skora aftur. Boltanum vippað inn fyrir vörnina sem var heldur sein á fótunum og Ingvar Freyr klárar auðveldlega.38. mín
Horn enn og aftur. Begic röltir yfir á vinstri vængt og krullar boltanum fyrir með hægri. Bend it like Begic. Daði Kárason skallar boltanum yfir.
37. mín
Asmer Begic verið sprækur á hægri væng Víkinga. Góð sending yfir teiginn en Úlfarnir ná að hreinsa.
34. mín
Aftur horn. Áætlunarferðir hjá heimamönnum að hornfánanum. Úlfarnir búnir að vera fínir í föstum leikatriðum.
32. mín
Dauðafæri
Björn Darri með frábæra sendingu á Ellert en Steindór Sólon markmaður Úlfanna varði vel og sló boltann í horn.
30. mín
Hægst á leiknum eftir 5 mörk á fyrir 20 mínútum. Víkingar stjórna leiknum en senda rólega á milli sín.
27. mín
Rangstaða
Fín sending hjá Luis Alberto en tveir Víkingar gripnir rangir.
25. mín
Luis Alberto Diez stjórnar umferðinni í þessum leik.
Er eins og kóngur í ríki sínu á miðsvæðinu
21. mín
MAAAARK!
Björn Darri Ásmundsson
Þrumuskot hægra megin fyrir utan teig. Banana bolti yfir markmanninn syngur inni.19. mín
MAAAARK!
Ellert Gauti Heiðarsson
Mjög auðvelt mark hjá Ellerti, þrjár sendingar og Víkingar komust í gegn. Auðveld afgreiðsla hjá Ellerti sem smellir honum í hornið einn á móti markmanni.16. mín
Skot yfir
Heimamenn halda áfram að pressa. Ágætis spil endar með föstu skoti yfir markið. Vörn Úlfanna er að leka.
13. mín
MAAAARK!
Kristófer Áki Hlinason
Fyrirgjöf frá hægri og yfir teiginn, þar var. Kristófer Áki mættur eins og prime Frank Lampard og kemur heiamönnum yfir.12. mín
MAAAARK!
Ingvar Freyr Þorsteinsson (stoðsending: Luis Romero Jorge)
Fyrirliði Víkinga jafnar strax eftir klafs inn í teig. Boltinn dettur fyrir. Ingvar sem negglir honum í hornið.10. mín
Aftur horn, þriðja horn Víkinga en ekkert kemur út úr fyrirgjöfinni. Útspark Úlfar.
8. mín
MARK
Kristján Ólafur Torfason
Gestirnir komast í 0-1 eftir sína fyrstu ferð yfir miðju! Kristján Ólafur Torfason smelllir honum með hægri í vinsra hornið fjær.7. mín
Úlfarnir ná ekki að halda í boltann
Gestirnir minna á Real Madrid í gær og ná ekki að halda boltanum í meira en 1-2 sendingar.
3. mín
Hornspyrna
Heimamenn fá horn vinstra megin, og nú hægra megin.
Bjargað á línu en leikmaður nr 3 Haukur Steinn liggur eftir að hafa fengið boltann í andlitið af stuttu færi.
3. mín
Rangstaða
Heimamenn eru að reyna komast upp vinstri vænginn í upphafi leiks með löngum stúngu sendingum.
1. mín
Strax aukaspyrna en heimamenn koma með vondan bolta fyrir
1. mín
0. mín
Leikmenn ganga út við Carnaval de Paris allir klárir.
0. mín
4 mínútur í leik, verið að vökva vel, vatnsúðakerfið látið finna fyrir því. Vonandi skilar það hraðari leik.
0. mín
Unglingaveikur lagalisti í gangi fyrir leik enda meðalaldur beggja liða um 22 ára. Bleikur Range Rover og nú Tala Minn Skít.
0. mín
Dómarinn einnig mættur. Honum virðist vera mjög kalt.
Enginn dómari enginn leikur.
0. mín
Úlfarnir eru mættir í páskastuði. Margir leikmenn í gulum og appelsínugulum skóm að hita upp.
0. mín
Góðan daginn, Mate Dalmay heilsar frá Ólafsvíkurvelli.
Hér er ískalt en heitt kaffi fyrir blaðamenn og áhorfendur
0. mín
Þriðji leikur Úlfanna í keppninni
Úlfarnir unnu Stokkseyri 3-0 í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins og mættu svo Skallagrími í Borgarnesi í næstu umferð. Þar var staðan 1-1 eftir 90 mínútur og framlengingu og gripið til vítakeppni þar sem Úlfarnir höfðu betur 5-3.
Víkingur Ólafsvík kom inn í 2. umferðina og vann þar Smára 5-1 hér á Ólafsvíkurvelli.
Úlfarnir fyrir bikarleik gegn Fylki 2022.

0. mín
Víkingur Ólafsvík sem er í 2. deild tekur á móti Úlfunum sem spila í 5. deild en félagið er venslafélag Fram. Þetta er hluti af 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins en hér má sjá leikjadagskrána.
fimmtudagur 17. apríl
14:00 Keflavík-Leiknir R. (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 Afturelding-Höttur/Huginn (Malbikstöðin að Varmá)
14:00 Kári-Fylkir (Akraneshöllin)
14:00 Víkingur Ó.-Úlfarnir (Ólafsvíkurvöllur)
16:00 ÍBV-Víkingur R. (Þórsvöllur Vey)
föstudagur 18. apríl
14:00 Selfoss-Haukar (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Grótta-ÍA (AVIS völlurinn)
15:00 Völsungur-Þróttur R. (PCC völlurinn Húsavík)
16:00 Stjarnan-Njarðvík (Samsungvöllurinn)
16:00 Vestri-HK (Kerecisvöllurinn)
17:30 KA-KFA (Greifavöllurinn)
19:15 Breiðablik-Fjölnir (Kópavogsvöllur)
laugardagur 19. apríl
14:00 Grindavík-Valur (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 KR-KÁ (KR-völlur)
15:00 Þór-ÍR (Boginn)
16:00 Fram-FH (Lambhagavöllurinn)
Velkomin með okkur á Ólafsvíkurvöll!



