Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór
Þór
Mjólkurbikar karla
Boginn
Óvænt logn fyrir norðan
3 - 1
ÍR
ÍR
0 - 12' Breki Hólm BaldurssonClement Bayiha 6'1 - 1Sigfús Fannar Gunnarsson 34'2 - 1Peter Ingi Helgason 93'3 - 1
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Leik lokið!
Þórsarar verða í pottinum á þriðjudaginn!
Heimamenn vinna 3-1 endurkomusigur gegn Breiðhyltingum og fara áfram í bikarnum.
ÍR
95. mín
Gult spjald

Stefán Þór Pálsson

Fer í Juan sýnist mér og uppsker gult spjald. Allavega ellefta spjaldið í dag.
Þór
94. mín
InnÝmir Már Geirsson
ÚtAron Ingi Magnússon
Þór
93. mín
Innsiglar sigur Þórs með sínu fyrsta marki fyrir Þór!

Peter Ingi Helgason (stoðsending: Atli Þór Sindrason)

Peter er nýkominn inn á, 2008 módel, hann bindur endahnútinn á snarpa og mjög laglega sókn Þórsara Aron Birkir með útspark, Atli Þór kemst í fyrsta bolta, sendir á Balde sem finnur Aron Inga, sem finnur Atla Þór sem leggur boltann út í teiginn á Peter sem klárar með góðu skoti í fjærhornið. Þórsarar eru á leið áfram!
91. mín
Fimm mínútum bætt við
Þór
90. mín
InnNökkvi Hjörvarsson
ÚtClement Bayiha
Þór
90. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
88. mín
Aron Birkir full duglegur við að setja boltann upp í þakið hérna í seinni hálfleiknum. ÍR fær boltann. Síðustu tilraunir gestanna til að jafna framundan.
84. mín
Bergvin reynir að stíga út Orra en er dæmdur brotlegur, ekki þeirra fyrsta glíma í leiknum. Orri liggur eftir og fær aðhlynningu.
84. mín
Hermann Helgi með skalla yfir mark ÍR eftir hornspyrnu Arons Inga.
83. mín
Sigfús Fannar duglegur og vinnur hornspyrnu fyrir Þór. Endalaus hlaupageta virðist vera og illviðráðanlegur fyrir varnarmenn ÍR.
80. mín
Stefán kemst í lausan boltan við vítateig Þórsara og lætur vaða. Skotið ekki nægilega fast og er þægilegt fyrir Aron Birki í markinu. Um að gera að reyna samt.
78. mín
ÍR-ingar duglegir í pressunni og vinna hornspyrnu. Góður fastur bolti frá Breka inn á teiginn en Þórsarar ná að hreinsa.
75. mín
AD2 kallar í varaboltann frá Einsa Ben og leikurinn getur haldið áfram. Hinn boltinn fastur í einhverju neti.
Þór
75. mín
InnHermann Helgi Rúnarsson
ÚtEinar Freyr Halldórsson
ÍR
73. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtRenato Punyed Dubon
73. mín
Sigfús gerir vel og skiptir boltanum yfir til hægri á Clement. Kantmaðurinn er í góðu færi en skýtur boltanum framhjá fjærstönginni.
Þór
71. mín
Gult spjald

Aron Birkir Stefánsson

Aron Birkir kemur út úr markinu og vill fá spjald á Renato sem dæmdur var brotlegur. Aron Birki á að vita betur og fær réttilega spjald.
ÍR
71. mín
InnEmil Nói Sigurhjartarson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
ÍR
71. mín
InnStefán Þór Pálsson
ÚtKristján Atli Marteinsson
ÍR
70. mín
Gult spjald

Bergvin Fannar Helgason

Kristján Atli biður menn um að halda haus.
69. mín
Auðvitað kom fínt tækifæri upp úr þessu horni. Clement með tilraun sem fór rétt yfir. Annað horn.
68. mín
Þórsarar fá horn, fannst Sigfús í þessu atviki brjóta á ÍR-ingnum þegar hann reyndi skot. Ekkert dæmt.
ÍR
67. mín
Gult spjald

Renato Punyed Dubon

Uppsafnað, hlýtur að vera, því þetta var lítið.
ÍR
66. mín
Gult spjald

Guðjón Máni Magnússon

Rífur í Clement og heldur honum.
65. mín
ÍR liggur svolítið á Þór þessar mínúturnar, engar opnanir en halda boltanum ágætlega og eru nálægt því að ógna.
60. mín
Vilhelm Þráinn hélt lengi á boltanum og Þórsurum fannst þetta fara eitthvað yfir átta sekúndurnar. Vilhelm endar á því að þruma boltanum upp völlinn.
59. mín
Aftur gott færi hjá Þór
Sigfús í góðu færi, ætlar að leggja boltann innanfótar í hornið en missir skotið framhjá.
57. mín
Sigfús leggur boltann út á Balde sem er við vítateigslínuna í góðu færi en dregur skotið framhjá fjærstönginni. Þarna var séns fyrir Þórsara. Aron Ingi er sestur niður og þarf aðhlynningu.
49. mín
Skottilraun frá Þórsurum sem fer framhjá marki ÍR.
Þór
47. mín
Gult spjald

Ragnar Óli Ragnarsson

Strax komið gult í seinni. Ragnar Óli var þess legur á leiðinni til baka í vörnina að ég set þetta spjald á hann.
ÍR
46. mín
InnÍsak Daði Ívarsson
ÚtÓðinn Bjarkason
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Engar sjáanlegar mannabreytingar eða færslur á mönnum.
45. mín
Þórsarar leiða með einu marki í leikhléi. Hörku skemmtilegur leikur, nóg búið að gerast. ÍR fékk kjörið tækifæri hér á síðasta korterinu til að skora mark en Renato hitti ekki boltann í teignum eftir sendingu frá Óðni. Er ekki með nákvæman tímapunkt á þessu færi. Förum aftur af stað eftir korter!
45. mín
Tveimur mínútum bætt við
45+1
43. mín
Orri brýtur á Óðni, er á spjaldi og þarf að passa sig. ÍR á aukaspyrnu á vallarhelmingi Þórsara, boltinn inn á teig heimamanna og svo skalli yfir markið. Markspyrna.
ÍR
40. mín
Allt brjálað!

Óðinn Bjarkason

Óðinn fer í Aron Inga og Þórsarar vilja fá annan lit á þetta spjald. Það er alvöru hiti hérna, ekki beint auðveldasti leikurinn sem dómaratríóið er að fá. Aron Ingi stendur upp eftir smá aðhlynningu.
Þór
39. mín
Gult spjald

Sigurður Heiðar Höskuldsson

Gult á bekkinn.
Þór
39. mín
Gult spjald

Orri Sigurjónsson

Gerir sér ferð og tuðar í dómaranum. Uppsker gula spjaldið fyrir. Orri kominn í bókina góðu. Þetta verður ekki síðasta gula spjaldið í dag.
Þór
38. mín
Siggi Höskulds skilur ekkert

Ibrahima Balde

Clement með fyrirgjöf á fjær, Balde reynir að klippa botann í netið en tæklar í Jónþór sem liggur eftir. Stefán Ragnar lyftir gulu spjaldi og Þórsarar skilja ekkert.
Þór
34. mín
Allt í einu dauðafæri

Sigfús Fannar Gunnarsson (stoðsending: Ibrahima Balde)

Ég leit upp og þá er Balde með boltann við markteig ÍR-inga og leggur boltann til hliðar á Sigfús sem setur boltann í þaknetið fyrir opnu marki. Hlýtur að hafa verið algjört klúður í uppspili ÍR-inga. Kristján Atli biður menn um að halda einbeitingu. Þórsarar leiða!
33. mín
Breki með fyrirgjöf sem fer yfir pakkann. Renato liggur í teignum og einhver köll frá báðum liðum. Sveinn Leó, aðstoðarþjálfari Þórsara, biður Stefán Ragnar um að taka á þessu, orðinn vel þreyttur á ,,númer 30".
31. mín
Ragnar Óli kominn aftur inn á, eins og ekkert hafi gerst.
29. mín
Úr og í axlarlið
Held að Ragnar Óli hafi hér farið úr axlarlið. Þetta lítur ekki vel út. Held að hann hafi komið sér sjálfur í lið, veit ekki hversu sniðugt það er. Hann fær nú aðhlynningu utan vallar, Þórsarar manni færri þessa stundina.
26. mín
Kristján Atli gerist brotlegur, einhver smá köll frá Þórsurum, aðeins að minna á að Kristján Atli sé á spjaldi.
25. mín
Í raun dauðafæri
Boltinn fellur fyrir Vilhelm Ottó inn á markteig ÍR-inga en hann nær ekki að koma góðri tilraun á mark gestanna og nafni hans í marki ÍR þarf ekki að hafa fyrir því að verja neitt. Þarna var séns!
24. mín
Óðinn keyrir í Ragnar Óla sem sparkar boltanum frá sér. Stefán Ragnar flautar seint og ég held að það sé það sem ÍR-ingar pirri sig á, því þetta leit út fyrir að vera augljóst brot.
22. mín
Óðinn sparkar boltanum framhjá Ragnari Óla og hendir sér niður, leikrænir tilburðir þar sem þarna var í besta falli örlítil snerting.
Þór
17. mín
Gult spjald

Vilhelm Ottó Biering Ottósson

Held að rangur maður sé að fá spjald hér. Því miður. Dómaratríóið fór mannavilt þarna. Stefán tók sér góðan tíma til að hugsa áður en hann bókaði Vilhelm.
ÍR
16. mín
Gult spjald

Kristján Atli Marteinsson

Uppsker réttilega spjald.
15. mín
Orri fer í Bergvin og ÍR-ingar vilja fá spjald. Leikurinn heldur áfram. Kristján Atli er manna ósáttastur og tekur niður Clement niður þegar Þórsarar keyra upp völlinn. Sókn Þórsara endar með skoti frá Balde úr teignum sem fer framhjá fjærstönginni.
13. mín
Bergvin og Orri eitthvað að kítast og Stefán Ragnar biður þá um að hætta.
12. mín
Vilhelm Ottó ætlar að lúðra boltanum upp völlinn en hittir beint í höfuðið á Bergvin. Ótrúlegt að framherjinn haggaðist ekki við þetta. Þetta var þruma!
10. mín
Annað horn frá Þór, Aron Ingi með aðeins lengri bolta núna, boltinn ratar á Clement sem er í góðu færi en setur boltann yfir! ÍR-ingar bruna svo upp hinu megin og Guðjón Máni vinnur hornspyrnu.
9. mín
Vilhelm!
Frábær varsla hjá Vilhelm í marki ÍR. Aron Ingi teiknar boltann á Juan Guardia sem á hörksuskalla á nærstöngina en Vilhelm sér við þeim spænska.
9. mín
Þór
Aron Juan - Ragnar - Orri - Vilhelm Aron - Balde - Einar Clement - Sigfús - Atli
Þór
6. mín
Þórsarar búnir að jafna!

Clement Bayiha

Skot vinstra megin úr teignum, sýndist það vera frá Atla Þór, sem Vilhelm gerir vel í að verja en boltinn berst á fjærstöngina og Clement kemur boltanum yfir línuna. Clement kom til Þórs í vetur og var þetta hans fyrsta mark í Þórstreyjunni. Mjög lífleg byrjun í Boganum.
5. mín
Guðjón Máni með skottilraun vel fyrir utan teig sem fer framhjá.
4. mín
Sigfús fer af krafti inn í Hrafn og aukaspyrna dæmd. Siggi Höskulds og Orri Sigurjóns ekki sáttir við aðdragandann, vildu fá hættuspark dæmt á gestina - láta í sér heyra.
3. mín
ÍR
Vilhelm Jónþór - Hrafn - Sigurður Karl - Breki Hákon - Kristján - Renato - Guðjón Óðinn Bergvin
ÍR
2. mín
Strax komið mark!

Breki Hólm Baldursson (stoðsending: Óðinn Bjarkason)

ÍR hefur haldið vel í boltann í byrjun leiks, Breki fær boltann við vítateig Þórsara, á skot af vítateigslínunni sem fer í gegnum klof varnarmanns og í fjærhornið. Mjög gott skot, Breka leiðist eflaust ekkert að skora gegn Þór!
1. mín
Þórsarar byrja með boltann.
Fyrir leik
Einsi Ben fær varaboltann frá aðstoðardómaranum
Einsi er að vanda á klukkunni, spáir 2-0 sigri Þórs í dag. Sjáum hvað setur.
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast
Liðin kynnt til leiks og allt að verða klárt!
Fyrir leik
2008 módel í liði Þórs
Einar Freyr Halldórsson er í byrjunarliði Þórsara en hann er fæddur árið 2008 og er hluti af U17 landsliði Íslands. Það vekur athygli að framherjinn Rafael Victor er ekki í leikmannahópi Þórs. Fannar Daði sleit krossband í vetur og verður ekkert með þar til í fyrsta lagi í seinni umferð Lengjudeildarinnar. Ingimar Arnar Kristjánsson og Kristófer Kristjánsson eru fjarri góðu gamni. Miðvörðurinn Yann Affi er þá ekki kominn til ladnsins, en það er alltof löng saga til að segja hér. Annars er líkleg uppstilling hjá heimamönnum svona: Aron Birkir Ragnar Óli - Juan - Orri - Vilhelm Einar - Aron - Balde Clement - Sigfús - Atli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Einar Freyr
Fyrir leik
Fjórir byrjunarliðsmenn ÍR erlendis
Fjórir leikmenn sem hafa verið í stóru hlutverki eru ekki með ÍR í dag. Það eru þeir Alexander Kostic, Ágúst Unnar Kristinsson, Marc McAusland og Arnór Sölvi Harðarson. Fyrrum leikmaður Þórs, Kristján Atli Marteinsson, er á sínum stað í liði ÍR og Breki Hólm Baldursson, lánsmaður frá KA, er í liði Breiðhyltinga.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enginn McAusland
Fyrir leik
Leiknum streymt á Spiideo
Hægt er að horfa á leikinn gegn gjaldi (6,60 EUR) í gegnum Spiideo. Smelltu hér til að horfa
Fyrir leik
Upphitun frá klukkan 14:00 í Hamri
Fyrir leik
Bikar Baddie spáir heimasigri
Baldvin Már Borgarsson spáði í 32-liða úrslitin. Hann spáir útisigri í stúkunni en heimasigri á vellinum. Þór 3 - 1 ÍR (laugardag klukkan 15) Breiðhyltingar mæta norður með stórskotalið enda úr leik í körfunni svo það er ekkert annað að trufla, ÍR-ingar vinna þó leikinn bara í stúkunni en Þórsarar á vellinum, Ibra Balde nuddar enninu aðeins utan í Óðinn Bjarkason og lætur vel valin orð falla eftir listrænu hæfileikana sem Óðinn sýndi fyrr í vetur, Þórsarar keyra yfir ÍR frá upphafi sem verða sprungnir snemma í seinni og þá klára heimamenn leikinn. ÍR-ingurinn Siggi Höskulds fer sáttur á koddann.
Fyrir leik
Jafntefli í báðum leikjum síðasta sumar
Báðir leikir Þórs og ÍR enduðu 1-1 í Lengjudeildinni síðasta sumar. ÍR kom langflestum á óvart og endaði í 5. sæti deildarinnar, sama má í raun segja um Þór, liðið kom mjög mörgum á óvart á neikvæðan hátt og endaði í 10. sæti eftir að hafa verið spáð mikilli velgengni. Liðin mættust svo í Lengjubikarnum fyrir einum og hálfum mánuði síðan og þar vann Þór 1-0 sigur í Boganum. Ingimar Arnar Kristjánsson skoraði sigurmarkið eftir að Þór missti Ibrahima Balde af velli með rautt spjald.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Ingimar Arnar
Fyrir leik
Tveir öruggir sigrar í síðustu umferð
Þór lagði granna sína í Magna í síðustu umferð bikarsins. Þór skoraði sjö mörk í mjög öruggum sigri. Sex markaskorarar hjá Þór en Ibrahima Balde skoraði tvennu. ÍR fór inn í Fífu og sigraði Augnablik örugglega, 0-5. Fimm markaskorarar hjá ÍR sem leiddu 0-1 í hálfleik og skoraði svo fjögur í seinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Balde í leik með Vestra í fyrra
Fyrir leik
Komnir/farnir hjá liðunum
Þór Komnir Yann Emmanuel Affi frá BATE Ibrahima Balde frá Vestra Clément Bayiha frá Kanada Franko Lalic frá Dalvík/Reyni Juan Guardia frá Völsungi Orri Sigurjónsson frá Fram Víðir Jökull Valdimarsson frá KH Pétur Orri Arnarson frá Kormáki/Hvöt (var á láni) Farnir Aron Einar Gunnarsson til Katar Birkir Heimisson í Val Auðunn Ingi Valtýsson til Dalvíkur/Reynis Marc Sörensen til Danmerkur Aron Kristófer Lárusson í HK Alexander Már Þorláksson Árni Elvar Árnason til Fjölnis Birgir Ómar Hlynsson til ÍBV á láni Bjarki Þór Viðarsson í Magna Elmar Þór Jónsson Jón Jökull Hjaltason til Danmerkur (var á láni hjá Þrótti V.)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri er kominn aftur heim ÍR Komnir Arnór Sölvi Harðarson frá ÍBV Ívan Óli Santos frá Gróttu Óðinn Bjarkason frá KR (á láni) Jónþór Atli Ingólfsson frá Augnabliki Baldur Páll Sævarsson frá Víkingi R. Óliver Andri Einarsson frá Keflavík Sigurður Orri Ingimarsson frá Keflavíkha Sigurður Karl Gunnarsson frá Árbæ Mikael Trausti Viðarsson frá Fram Breki Hólm Baldursson frá KA (á láni) Víðir Freyr Ívarsson frá Fram (var á láni hjá Hetti/Hugin) Ísak Daði Ívarsson frá Víkingi (var á láni hjá Gróttu) Farnir Róbert Elís Hlynsson í KR Bragi Karl Bjarkason í FH Óliver Elís Hlynsson í Fram Arnór Gauti Úlfarsson í Grindavík Sæþór Ívan Viðarsson í Hött/Hugin Marteinn Theodórsson í Kára Gils Gíslason í FH (var á láni) Samningslausir Emil Nói Sigurhjartarson (2004) Alexander Kostic (1992) Stefán Þór Pálsson (1995) Jordian Farahani (1990) Kristján Daði Runólfsson (2005)
Mynd: ÍR
Óðinn Bjarkason kom frá KR
Fyrir leik
Þriðja liðið
Stefán Ragnar Guðlaugsson er með flautuna í dag, honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmndsson og Birkir Örn Pétursson. Það er svo enginn annar en Bragi Bergmann sem er eftirlitsmaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stefán Ragnar
Fyrir leik
Færum okkur inn í blíðunni á Akureyri
Góðan daginn lesendur góðir og verið þið velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs og ÍR í 32-liða úrsltum Mjólkurbikarsins. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og fer fram í Boganum á Akureyri. Bæði lið eru í Lengjudeildinni og spila í dag um sæti í 16-liða úrslitum bikarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.