Leik lokið!
11-0 sigur KR staðreynd. Skýrsla og viðtöl á leiðinni!
87. mín
MAAAARK!
Sigurður Breki Kárason (stoðsending: Aron Sigurðarson)
Bæði ungstirnin búin að skora! Sigurpáll nær boltanum á vallarhelming KR, kemur með langan bolta inn fyrir á Aron Sig sem er kominn einn í gegn. Hann leggur hann síðan út á Sigurð Breka sem klárar af 5 metrum í markið.80. mín
Þrenna!
Alexander Rafn Pálmason
Varnamaður KÁ reynir að sóla sig framhjá Alexander sem nær boltanum og klárar listavel framhjá Magnúsi í marki KÁ. Fyrsta þrennan í meistaraflokki (þó annað markið skrifast líklegast sem sjálfsmark hjá dómarnum) en fær þrennuna frá mér!75. mín
KÁ reynir
Held að það sé nú bara formsatriði að KR vinni þennan leik en KÁ menn reyna samt á fullu en KR-ingar eru í töluvert betra formi hér á vellinum
73. mín
MAAAARK!
Róbert Elís Hlynsson
Kemur fyrirgjöf sem fer í gegnum allan pakkan og endar hjá Róberti sem klára með eina snuddu í fjærhornið. Fallegt mark71. mín
InnAuðunn Gunnarsson
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
67. mín
Klassískt mark
Róbert Elís Hlynsson (stoðsending: Aron Sigurðarson)
Aron Sig með flotta sendingu af vinstri kantinum beint á hausinn á Róbert Elís sem nær föstum skalla beint í netið65. mín
InnKristinn Haukur Þork. Skarstad
ÚtCarlos Magnús Rabelo
57. mín
InnSkarphéðinn Gauti Ingimarsson
ÚtSigurður Breki Kárason
57. mín
InnMatthias Præst Nielsen
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
57. mín
Potar honum inn
Eiður Gauti Sæbjörnsson
54. mín
Klárar listalega
Luke Morgan Conrad Rae
Fær boltan á hægri katinum við vítateigslínuna. Neglir boltanum í fjærhornið og skorar. 6-049. mín
KÁ fær aukaspyrnu
Af 40 metrum og er skotið beint á markið. Auðveldur bolti fyrir Sigurpál
48. mín
KR fær horn
En kemur ekkert úr þessu
46. mín
InnDagur Máni Daðason
ÚtHrafnkell Váli Valgarðsson
46. mín
InnÞórir Eiðsson
ÚtSindri Hrafn Jónsson
46. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtBirgir Steinn Styrmisson
46. mín
InnEiður Gauti Sæbjörnsson
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
46. mín
Það eru KR sem byrja
45. mín
Engu bætt hér við og tökum hlé
KR leiðir 5-0 og búnir að vera mjög öruggir í sínum aðgerðum gegn fjórða deildar liðinu KÁ
42. mín
Brot vinstra megin við teig KÁ
Victor Gauti Wium Jóhannsson
41. mín
Neglir honum í netið
Aron Sigurðarson
Flott uppspil hjá KR sem endar með stúkusendingu á Aron Sig sem bara gjörsamlega neglir honum í netið. 5-0!34. mín
Sjálfsmark
Alexander Rafn Pálmason
KR skorar hér sitt fjórða mark, sem reyndar virðist hálfpartinn sjálfsmark, sá ekki nákvæmlega hvern boltinn fór í hjá KÁ á leiðinni inn. Það var þó Alexander Rafn sem átti skotið, boltinn fór í varnarmann og endaði í netinu. Skrái þetta því á hann, þar sem boltinn virtist alltaf á leiðinni inn. Fáum við þrennu frá þessum 15 ára gamla strák?32. mín
Alexander Rafn!
Alexander Rafn Pálmason
15 ára gamall með mark! sama uppskrift of mark tvö, KR sækir og kemur föst fyrirgjöf sem Alexander klárar í fyrstu snertingu27. mín
Gott færi
Guðmundur Andri fær gott færi en skot hans er varið og KR fær Horn
26. mín
Fyrir alvöru tæklingu
Hrafnkell Váli Valgarðsson
23. mín
KR í skyndisókn
KR-ingar hlaupa hér upp völlinn í skyndisókn sem endar með dauðfæri sem Aron skýtur framhjá markinu
22. mín
Góð spyrna
En Sigurpáll í marki KR grípur þennan
22. mín
Fyrsta hornspyrna KÁ
21. mín
Fyrir tuð
Vicente Rafael Valor Martínez
20. mín
Ekki spilað á Meistaravellinum í dag
Þar sem enn er unnið hörðum höndum við að skipta grasinu út fyrir gervigras á aðalvelli KR-inga, er þessi leikur spilaður á æfingavellinum fyrir aftan. En það nennir enginn að væla yfir því þar sem við fáum hér flottan leik á góðum degi!
15. mín
Annað mark!
Guðmundur Andri Tryggvason
Mark í endurkomunni! Kemur fastur bolti fyrir og Guðmundur Andri er þar mættur og neglur honum í markið. Vel spilað hjá KR-ingum sem eru að hlaupa yfir KÁ menn. Skorar mark hér í fyrsta leik sínum í marga mánuði.13. mín
Luke með skot
Luke Rae er með skot sem fer hér yfir mark KÁ manna
11. mín
Tækifæri fyrir KÁ
Smá vandræðagangur í vörn KR og KÁ fær sitt fyrsta færi í þessum leik. En sókn þeirra rennur því miður út í sandinn. Verða að nýta tækifærin sín betur en þetta
9. mín
Hafa mæst áður
KR og KÁ mættust einmitt á sama stigi í Mjólkurbikarnum fyrir ári síðan, þar sem KR hafði betur samtals 9-2. Leikurinn hófst þó ekki vel fyrir KR-inga þá, því það voru KÁ-menn sem komust yfir strax í upphafi með marki frá Bjarka Sigurjónssyni. Bjarki skoraði bæði mörk KÁ í þeim leik – og er einmitt í byrjunarliðinu hér í dag. Nær hann að stríða KR-ingum á ný?
6. mín
MARK!
Aron Sigurðarson
Aron Sig beint úr aukaspyrnu! 1-0 fyrir KR. Frábær spyrna í nærhornið og nánast óverjandi fyrir Magnús Kristófer í marki KÁ5. mín
Aukaspyrna fyrir KR
Guðmundur Andri fiskar hér aukaspyrnu á góðum stað.
3. mín
Fyrsta marktilraun
Sigurður Breki fær boltan eftir misheppnaða sendingu frá markmanni KÁ á varnamann KÁ. Sigurður Breki kemst í boltan en skot hans fer framhjá
2. mín
KÁ hreinsar
Enginn ógn í þessu frá KR
2. mín
Fyrsta hornspyrnan
Fær KR
1. mín
Leikurinn er hafinn kæru lesendur
Það er KÁ sem hefur þennan leik
Fyrir leik
Byrjunarlið dottinn í hús!
KR-ingar gera sjö breytingar frá 3-3 jafntefli sínu gegn Val í Bestu deildinni. Út úr liðinu fara Jóhannes Kristinn, Finnur Tómas, Eiður Gauti, Gyrðir Hrafn, Ástbjörn Þórðarson, Atli Sigurjónsson og Aron Þórður. Inn koma í staðinn: Birgir Steinn, Guðmundur Andri, Aron Sig, Alexander Rafn, Vincente Valor, Róbert Elís og Hjalti Sigurðsson.
Þrír ungir og efnilegir leikmenn fá tækifæri til að sýna sig í liði KR hér í dag:
Alexander Rafn (15 ára)
Róbert Elís (18 ára)
Sigurður Breki (15 ára), sem átti frábæran leik gegn Val í síðustu umferð.
KÁ gerir að minnsta kosti þrjár breytingar frá leiknum gegn KFR í 2. umferð Mjólkurbikarsins. Út fara Bjarki Sigurjóns, Egill Örn og Ágúst Jens. Inn koma Hrafnkell Váli, Rómeó Máni og Dagur Orri.
Skemmtilegt er að meðalaldur byrjunarliða beggja liða er aðeins 23 ár og það sama gildir um meðalaldur varamannabekkjanna.
Hér má sjá Sigurð Breka í baráttunni gegn Patrick Pedersen

Fyrir leik
Dómarinn
Það er enginn annar en Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson sem sér til þess að leikurinn fari hér heiðarlega fram, en honum til aðstoðar verða þeir Andri Vigfússon og Smári Stefánsson.

Fyrir leik
Fegurðin við bikarkeppnina
Flestir leikirnir í 32 liða úrslitum eru nú þegar lokið, og hafa 12 lið þegar tryggt sér farseðilinn í 16 liða úrslit. Við höfum fengið nokkuð af óvæntum úrslitum, þar sem Kári (varalið ÍA) gerði sér lítið fyrir og vann Fylki 2–1 í Akraneshöllinni á fimmtudaginn.
Þá fór Víkingur R., sem hafa komist í bikarúrslit síðustu fimm ár, í fýluferð til Vestmannaeyja þar sem ÍBV gerði sér lítið fyrir og lagði sigursælasta lið Íslands undanfarin fimm ár, 3–0 í heildina. Annars hafa önnur úrslit farið svolítið eftir bókinni.
En stóra spurninga í dag er, fáum við óvænt úrslit hér á KR vellinum?
Fyrir leik
Frá 4. deildinni á stóra sviðið! KÁ mætir KR
KÁ (Knattspyrnufélagið Ásvöllum) er varalið Hauka og spilar í 4. deildinni. Liðið hefur undanfarin tvö tímabil endað í 5. sæti í deildinni.
Þar sem KÁ er í fjórðu deildinni hefur vegferð þeirra í Mjólkurbikarnum í ár verið aðeins lengri en hjá KR, sem eru að spila sinn fyrsta leik í bikarnum þetta tímabil.
Hér er vegferð KÁ að 32 liða úrslitum í Mjólkurbikarnum:
1. umferð: Vængir Júpíters 1–2 KÁ
2. umferð: KÁ 3–2 KFR
Til upplýsinga þá spilar Vængir Júpíter með KÁ í 4. deildinni, en KFR spilar í 5. deildinni í sumar.
Fyrir leik
Byrjunin á bikarævintýri KR-inga þetta árið?
KR-ingar hafa verið í smá lægð undanfarin ár eftir að hafa landað Íslandsmeistaratitlinum árið 2019. Undanfarin ár hafa þeir frekar verið að berjast um Evrópusæti en Íslandsmeistaratitilinn, og gengið hefur brösulega hjá þeim í bikarnum. Lægðin náði þó lágmarki síðasta sumar þegar liðið endaði í 7. sæti og var lengi vel í fallbaráttu yfir sumarið sem telst ekki ásættanlegt fyrir stórveldi líkt og KR.
En eins og flestir knattspyrnuunnendur vita, þá tók Óskar Hrafn við liðinu síðasta haust. Maður hefur heyrt að Óskar sem og félagið í heild, sé með stóra drauma næstu árin og stefni beint aftur á toppinn! Gæti vegferðin að toppnum hafist með bikarævintýri í sumar?
Fyrir leik
Bikar Baddi spáir fyrir á KR vellinum!
KR 8 - 0 KÁ
Bjarki Sigurjónsson verður í gjörgæslu í ár eftir að hafa skorað gegn KR í fyrra, KR-ingar spila sennilega með Luke Rae og Kristófer Orra í hafsent miðað við meiðslavandræðin þar og þeir leysa það vel með hreinu laki, Sigurður Breki skorar í dag eftir allan meðbyr vikunnar.

Fyrir leik
Bikarævintýrið heldur áfram!
Góðan daginn, kæru lesendur!
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá KR-vellinum þar sem stórveldið KR fær fjórðu deildar liðið KÁ í heimsókn í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla.
Fótbolti.net er auðvitað á staðnum og fylgist náið með gangi mála í þessari bikarviðureign.



