Leik lokið!
Jafntefli í dag. FH að næla sér í sitt fyrsta stig á tímabilinu og KR að gera sitt þriðja jafntefli í röð.
Viðtöl og skýrsla koma innan skamms en hér fyrir neðan er tengill á myndaveislu úr leiknum.
Þakka samfylgdina, þangað til næst, takk fyrir mig.
24.04.2025 11:30
Myndaveisla: FH og KR skildu jöfn í fyrsta grasleiknum
97. mín
Böðvar tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á Arnór Borg sem skallar boltann yfir markið.
96. mín
FH í færi!
Misheppnuð hreinsun hjá KR og Arnór Borg kemst einn á móti Halldóri sem ver í horn!
92. mín
Fáum við drama?
Kemur sigurmarkið fyrir lokaflautið?
Nær FH í fyrsta stigið sitt?
Gera KR-ingar þriðja jafnteflið í röð?
90. mín
+5 mínútur í uppbótartíma
88. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtAtli Sigurjónsson
87. mín
InnEinar Karl Ingvarsson
ÚtTómas Orri Róbertsson
84. mín
InnDagur Traustason
ÚtSigurður Bjartur Hallsson
80. mín
InnArnór Borg Guðjohnsen
ÚtKristján Flóki Finnbogason
80. mín
InnBragi Karl Bjarkason
ÚtKjartan Kári Halldórsson
79. mín
Atli tekur spyrnuna inn á teiginn en FH-ingar verjast vel.
79. mín
KR að fá hornspyrnu!
74. mín
Eiður Gauti jafnar fyrir gestina!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Luke Morgan Conrad Rae)
Luke Rae kemur með glæsilega fyrirgjöf inn á teiginn sem Eiður Gauti stangar í netið. Frábær skalli! KR-ingar eru núna búnir að jafna og fá korter til þess að finna sigurmarkið einum manni fleiri.71. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna aftur inn á teiginn sem KR-ingar hreinsa frá og bruna upp.
70. mín
Annað horn
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem Kristófer Orri skallar aftur fyrir í annað horn.
70. mín
FH að fá hornspyrnu!
68. mín
1237 áhorfendur í Krikanum
Vel mætt í Krikann í kvöld.
66. mín
KR-ingar með útfærslu af æfingasvæðinu sem leit vel út en FH-ingar gera vel og verjast þessu vel.
65. mín
KR að fá hornspyrnu!
65. mín
InnKristófer Orri Pétursson
ÚtJóhannes Kristinn Bjarnason
63. mín
Atli Sigurjóns tekur spyrnuna inn á teiginn sem Hjalti skallar framhjá á nærsvæðinu.
63. mín
Frábær varsla!
Gabríel Hrannar kemst í dauðafæri eftir skemmtilegt samspil við Eið Gauta og tekur hörkuskot á markið af stuttu færi sem Mathias ver í horn.
58. mín
KOMNIR YFIR!
Baldur Kári Helgason
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem Halldór Snær blakar í burtu og KR-ingar ná ekki að hreinsa nógu vel. Boltinn fer út til Baldurs Kára sem tekur skotið á varnarmenn KR og inn fer boltinn. Á einhvern ótrúlegan hátt hafa FH-ingar tekið forystuna!57. mín
KR-ingar að hóta
Eiður Gauti fær boltann inni á teig með Faqa í bakinu og gerir vel í að snúa hann hálfpartinn af sér áður en hann tekur skotið sem fer í hliðarnetið.
55. mín
Böðvar tekur spyrnuna inn á teiginn sem KR-ingar ná að hreinsa frá með herkjum.
54. mín
FH að fá horn!
Sigurður Bjartur fær boltann inni á teignum og tekur skotið á markið sem Halldór ver aftur fyrir í horn.
52. mín
Fyrirliðinn fær réttilega beint rautt!
Björn Daníel Sverrisson
Fer með takkana of hátt í Júlíus Mar sem liggur sárþjáður eftir niðri. Hárrétt hjá Sigurði að gefa Birni beint rautt þarna að mínu mati.50. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem KR hreinsar frá.
50. mín
FH að fá horn!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
45. mín
Þá er Sigurður búinn að flauta til hálfleiks og eftir fjöruga byrjun eru hálfleikstölur 1-1.
Tökum okkur korterspásu og mætum svo til baka að vörmu spori.
45. mín
+1 - 3 mínútur í uppbótartíma
45. mín
Birkir Valur kemur með góðan bolta inn á teiginn sem Sigurður Bjartur skallar yfir.
42. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem KR-ingar eru í veseni með að hreinsa frá og endar með því að Sigurður Bjartur skallar aftur fyrir í markspyrnu sem KR á.
41. mín
Annað horn
Böðvar tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer yfir Halldór og endar með því að Gyrðir skallar aftur fyrir hinum meginn.
41. mín
FH að fá hornspyrnu!
Kjartan Kári með skot fyrir utan teig sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
37. mín
Kjartan Kári tekur spyrnuna inn á teiginn sem Júlíus Mar skallar frá.
36. mín
FH að fá hornspyrnu!
33. mín
Þeir standa nú báðir upp og leikurinn heldur áfram.
32. mín
Leikurinn stopp - Birkir og Eiður liggja niðri
Birkir Valur og Eiður Gauti lenda eitthvað saman á miðjum velli. Faqa ýtti Eið á Birki Val og þeir þurfa báðir aðhlynningu.
25. mín
Fyrir að sparka boltanum í burtu sýndist mér
Birkir Valur Jónsson
25. mín
Einhver útfærsla af æfingasvæðinu sem endaði skelfilega. Flaggið á loft, Luke Rae fyrir innan.
24. mín
KR að fá hornspyrnu!
23. mín
Birkir Valur kemur með góðan bolta út á Sigurð Bjart sem tekur skotið á markið en Halldór Snær ver mjög vel.
22. mín
FH-ingar hafa stigið verulega upp eftir jöfnunarmarkið og náð að halda betur í boltann.
16. mín
Fyrirliðinn jafnar!
Björn Daníel Sverrisson (stoðsending: Böðvar Böðvarsson)
Böðvar tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer beint á pönnuna á Birni Daníel sem skallar boltann í netið framhjá Halldóri Snæ. Frábær skalli og nú er allt orðið jafnt!16. mín
FH að fá hornspyrnu!
15. mín
InnGyrðir Hrafn Guðbrandsson
ÚtBirgir Steinn Styrmisson
Gyrðir mætir sínum gömlu félögum
Birgir meiðist og getur ekki haldið leik áfram.
13. mín
FH-ingar verjast hornspyrnunni vel.
12. mín
KR í færi
Luke Rae fær langan bolta fram á sig og hann kemur honum til hliðar á Atla Sigurjóns. Atli tekur skotið í fyrsta sem Mathias ver aftur fyrir í horn.
11. mín
DAUÐAFÆRI - Frábær varsla hjá Halldóri!
Björn Daníel vinnur boltann ofarlega á vellinum og kemur honum til hliðar á Kristján Flóka sem tekur skotið á markið en Halldór Snær ver stórglæsilega í marki KR.
Þarna átti Flóki að skora!
10. mín
Skelfileg spyrna
Böðvar tekur spyrnuna inn á teiginn sem fer aftur fyrir og markspyrna sem KR á.
9. mín
FH að fá hornspyrnu!
8. mín
Miðjan
Stuðningsmenn KR hafa ekki hætt að syngja og láta í sér heyra eftir upphafssparkið.
5. mín
Bakvarðasamvinna!
Gabríel Hrannar Eyjólfsson (stoðsending: Hjalti Sigurðsson )
Frábær byrjun KR-inga! Hjalti Sigurðsson gerir frábærlega á hægri kantinum og kemur boltanum út í teig á Gabríel sem klárar listavel í hægra hornið framhjá Mathias í markinu sem haggast ekki. Bakverðirnir að tengja vel þarna!4. mín
Siggi Hall að hóta
Sigurður Bjartur slapp í gegn eftir baráttu við Júlíus og tekur skotið sem Júlíus kemst fyrir.
3. mín
Lengjudeildarmoli
4 af öftustu 5 leikmönnum KR-inga léku í Lengjudeildinni í fyrra.
1. mín
Góða skemmtun!
Það eru gestirnir sem eiga upphafssparkið í dag.
Ég trúi því að þetta verði skemmtilegur leikur.
0. mín
Styttist!
Liðin ganga til vallar og vinka áhorfendum.
0. mín
Júlíus Mar með bandið og Sigurður ekki í hóp
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapleiknum á laugardaginn gegn Fram í Mjólkurbikarnum. Grétar Snær Gunnarsson og Kristján Flóki Finnbogason koma inn í liðið fyrir þá Jóhann Ægi Arnarsson og Arnór Borg Guðjohnsen.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, gerir fjórar breytingar á byrjunarliði KR-inga eftir 3-3 jafnteflið við Val á dögunum í Bestu deildinni. Finnur Tómas Pálmason, Ásbjörn Þórðarson, Sigurður Breki Kárason og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson koma úr byrjunarliðinu en þeir Júlíus Mar Júlíusson, Birgir Steinn Styrmisson, Mathias Præst og Hjalti Sigurðsson koma inn í liðið.
Hinn fimmtán ára gamli Sigurður Breki sem byrjaði óvænt gegn Val er ekki í leikmannahópi KR í kvöld.
0. mín
Óskar Hrafn: Við vitum að Krikinn verður ekki góður
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, ræddi við Fótbolta.net í gær og var hann spurður út í leikinn gegn FH.
„Það bíður upp á áskorun sem við hlökkum til að takast á við. Það er aðeins öðruvísi undirlag og leikurinn gæti þróast öðruvísi heldur en á gervigrasi. Við sáum það berlega í síðustu viku þar sem tvö lið mættust sem höfðu mæst á öðru undirlagi stuttu áður. Það voru engin líkindi með þeim leikjum, en það var ekki eins og liðið sem vann fyrri leikinn væri allt í einu orðið ömurlega lélegt fótboltalið, þetta er bara aðeins öðruvísi," sagði Óskar og vísaði þar í leiki ÍBV og Víkings.
„Svo er þetta, held ég, spurning um hvernig þú kemur innstilltur í leikina. Ætlaru að láta undirlagið stjórna þér og finna því öllu til foráttu? Við vitum að Krikinn verður ekki góður, en við getum ekki látið það stjórna okkur."
22.04.2025 14:30
Óskar Hrafn: Eru ekki einhver súkkulaði
0. mín
Þór Llorens spáir í spilin
Þór Llorens er spámaður 3. umferðarinnar hjá .net en hann hafði eftirfarandi að segja um leik FH-KR.
FH 2 - 3 KR (18:00 í kvöld)
Þetta verður markaleikur eftir bragðdaufan fyrri hálfleik, Jói Bjarna smellir einum uppi vinkilinn bara uppá banterinn.
0. mín
Þriðja liðið
Sigurður Hjörtur Þrastarson sér um að dæma leikinn í dag. Honum til halds og trausts verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Kristján Már Ólafs. Varadómari kvöldsins er Gunnar Freyr Róbertsson og eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson.

0. mín
KR liðið skemmtilegt
KR liðið er eitt skemmtilegasta lið deildarinnar og hafa boðið okkur upp á alvöru skemmtun í fyrstu tveimur leikjunum á tímabilinu. Eftir fyrstu tvo leikina er KR með 2 stig. Vesturbæjarliðið gerði jafntefli við KA og Val. Ásamt því unnu þeir KÁ í 32-liða úrslitum bikarsins 11-0.

0. mín
Bras á FH - Farið að hitna undir Heimi?
FH er eina liðið án stiga eftir fyrstu tvær umferðrinar og eru þ.a.l. á botni deildarinnar. FH tapaði tveimur útileikjum gegn Stjörnunni og Vestra, báðum með einu marki.
Seinustu helgi duttu þeir einnig úr bikarnum eftir 1-0 tap gegn Fram. Tímabilið fer því eins illa af stað og það gat gerst. Mikið hefur verið rætt og ritað um stöðu Heimis en vonandi hans og FH vegna breytist gengið þeirra í kvöld í fyrsta heimaleik tímabilsins.

0. mín
Halló Hafnarfjörður!
Heilir og sælir ágætu lesendur og veriði hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu úr Hafnarfirði frá leik FH og KR í Bestu deildinni.
Þetta er fyrsti grasleikur deildarinnar í sumar og Guðmundur Aðalsteinn fréttamaður Fótbolta.net kíkti á völlinn í gær og smellti af þessari mynd:










