Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Fjarskafagur Kapakriki
FH
FH
2 - 2
KR
KR
0 - 15' Gabríel Hrannar EyjólfssonBjörn Daníel Sverrisson 16'1 - 1Baldur Kári Helgason 58'2 - 12 - 274' Eiður Gauti Sæbjörnsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Jafntefliskóngarnir og skemmtikraftarnir

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið tóku forystuna í leiknum en misstu hana niður. Mér fannst þetta vera mjög jafn leikur og sanngjörn úrslit. Rauða spjaldið hafði mikil áhrif á leikinn og í lok dags réði það kannski úrslitunum.

Bestu leikmenn

1. Gabríel Hrannar Eyjólfsson (KR)

Ég var stórhrifinn af Gabríel í dag sem braut ísinn snemma leiks með frábæru marki. Spilaði vel heilt yfir og er maður leiksins að mínu mati.

2. Baldur Kári Helgason (FH)

Skoraði sömuleiðis en fyrir utan það fannst mér Baldur eiga mjög góðan leik á miðju FH-inga. Gerði vel á miðsvæðinu eftir að Björn Daníel lét reka sig af velli. Baldur mjög góður í dag.

Atvikið

Rauða spjaldið hjá Birni Daníel hafði áhrif á leikinn. Groddaraleg tækling og klárlega rautt spjald.

Hvað þýða úrslitin?

FH ná í sitt fyrsta stig í deildinni á meðan KR-ingar gera sitt þriðja jafntefli í fyrstu þremur leikjunum. KR eru bæði jafntefliskóngar deildarinnar og mestu skemmtikraftarnir. Þeir eru með markatöluna 7-7 eftir 3 leiki.

Vondur dagur

Björn Daníel lét reka sig af velli í seinni hálfleik eftir að hafa verið búinn að skora eina mark FH á þeim tíma í leiknum. Glórulaus tækling á miðjum velli og hann vissi upp á sig sökina.

Dómarinn - 10

Fullkominn leikur hjá Sigurði í dag að mínu mati. Nelgdi allar stóru ákvarðanirnar og leyfði mikið. Mæli með viðtalinu við Óskar þar sem hann hrósar frammistöðu Sigurðar í leiknum. Óskar segir þetta vera einn af best dæmdu leikjum sem hann hefur séð eftir að hafa þjálfað í efstu deild sem segir ýmislegt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.