Fotbolti.net
Besta deildin
@antonfreeyrAnton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Breiðablik
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
7 - 1
Fram
Fram
Heiðdís Lillýardóttir 23'1 - 0Andrea Rut Bjarnadóttir 30'2 - 0Birta Georgsdóttir 43'3 - 0Samantha Rose Smith 47'4 - 04 - 162' Katrín Erla ClausenBerglind Björg Þorvaldsdóttir 63'5 - 1Líf Joostdóttir van Bemmel 87'6 - 1Líf Joostdóttir van Bemmel 92'7 - 1
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: Breiðablik ekki í vandræðum með nýliðana

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn byrjaði mjög rólega en það sem réði þessu var að þegar fyrsta markið kom þá opnuðust flóðgáttir og Blikarnir gengu á lagið og settu tvö önnur fyrir hálfleik og fóru með verðskuldað forskot inn í hálfleikinn. Breiðablik komu sterkar inn í síðari hálfleikinn og gengu eiginlega bara frá leiknum í upphafi síðari hálfleiksins. Framarar náðu þó inn sárabótar marki í stöðunni 4-0 en þetta var í raun aldrei spurning í dag og Blikar bættu við þremur mörkum eftir það.

Bestu leikmenn

1. Birta Georgsdóttir

Birta Georgsdóttir er maður leiksins. Var mjög öflug sóknarlega í fyrri hálfleik. Mark og stóðsending frá henni í kvöld.

2. Andrea Rut Bjarnadóttir

Andrea Rut var einnig mjög spræk í kvöld. Skoraði eitt og lagði upp í kvöld. Helga Rut Einarsdóttir gerir einnig tilkall en hún var góð í bakverðinum hjá Blikum í kvöld.

Atvikið

Fyrsta markið sem opnaði þennan leik held ég að hafi verið atvikið, var alveg skelfilega leiðinlegt fram að því.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik er komið á toppinn en liðið er með betri markatölu en Valur og FH. Framarar eru enþá í 9.sæti deildarinnar og er liðið án stiga. Breiðablik fær Víking í heimsókn í næstu umferð á meðan Fram fær FHL í heimsókn í svokölluðum sex stiga leik

Vondur dagur

Sylvia Birgisdóttir - Lét reka sig útaf í kvöld með tveimur gulum spjöldum.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Gunnari Odd og hans mönnum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.