Chelsea opnar viðræður við Milan - Saliba í samningaviðræðum - Bellingham til Dortmund?
Besta-deild karla
Valur
LL 6
1
ÍA
Besta-deild karla
Stjarnan
LL 2
0
Fram
Besta-deild karla
KR
LL 4
1
ÍBV
Lengjudeild karla
Njarðvík
LL 5
1
Völsungur
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 3
3
Fjölnir
Njarðvík
5
1
Völsungur
Amin Cosic '7 1-0
Dominik Radic '14 2-0
Oumar Diouck '45 3-0
Oumar Diouck '67 4-0
4-1 Arnar Pálmi Kristjánsson '71
Bjarki Baldvinsson '75
Oumar Diouck '91 , misnotað víti 4-1
Símon Logi Thasaphong '93 5-1
10.05.2025  -  16:00
JBÓ völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Maður leiksins: Oumar Diouck
Byrjunarlið:
1. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Davíð Helgi Aronsson
3. Sigurjón Már Markússon ('73)
6. Arnleifur Hjörleifsson
7. Joao Ananias ('67)
9. Oumar Diouck
10. Valdimar Jóhannsson ('67)
13. Dominik Radic ('73)
14. Amin Cosic ('83)
16. Svavar Örn Þórðarson
19. Tómas Bjarki Jónsson (f)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
31. Andrés Már Kjartansson (m)
5. Arnar Helgi Magnússon ('73)
8. Kenneth Hogg ('67)
11. Freysteinn Ingi Guðnason ('67)
17. Símon Logi Thasaphong ('73)
18. Björn Aron Björnsson
21. Viggó Valgeirsson ('83)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Arnar Freyr Smárason
Sigurður Már Birnisson
Viktor Þórir Einarsson
Jaizkibel Roa Argote

Gul spjöld:
Joao Ananias ('31)
Freysteinn Ingi Guðnason ('68)
Símon Logi Thasaphong ('73)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Gríðarlega öruggur sigur heimamanna staðreynd!

Viðtöl og skýrsla væntanleg seinna í kvöld.
93. mín MARK!
Símon Logi Thasaphong (Njarðvík)
Stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson
Freysteinn Ingi með fína fyrirgjöf og Arnleifur tekur hann niður og leggur hann á Simon Loga sem setur hann þéttingsfast í fjærhornið.
91. mín Misnotað víti!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Sláin! Fast í slánna og Símon Logi skallar frákastið í átt að marki en kom ekki krafti í þetta.
90. mín
Víti fyrir Njarðvík! Viggó fellur í baráttunni í teignum og Gunnar Oddur bendir á punktin.
88. mín
Flott fyrirgjöf fyrir mark Njarðvíkinga sem Arnar Helgi skallar í horn.

Völsungur aðeins að færa sig ofar.
85. mín
Inn:Aron Bjarki Kristjánsson (Völsungur) Út:Xabier Cardenas Anorga (Völsungur)
83. mín
Inn:Viggó Valgeirsson (Njarðvík) Út:Amin Cosic (Njarðvík)
81. mín
Færi! Jakob Héðinn í frábæru færi en nær ekki að stýra boltanum á markið.

Sending fyrir sem hann rennir sér á.
80. mín Gult spjald: Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur)
79. mín
Inn:Gestur Aron Sörensson (Völsungur) Út:Elfar Árni Aðalsteinsson (Völsungur)
78. mín
Völsungur vilja fá hendi þegar fyrirgjöf hjá þeim fer að þeirra mati í hendina á Arnleifi.

Get ekki sagt að ég hafi séð mikið í þessu en Völlarar alveg vissir.
77. mín
Færi! Amin Cosic gerir frábærlega og kemst upp að endalínu og sker boltann út í teig á Arnleif sem setur boltann yfir í afbragðsfæri!
75. mín Rautt spjald: Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Fer full geyst í Aron Snær í marki Njarðvíkinga og fær seinna gula og þar með rautt.

Stutt stopp á JBÓ vellinum fyrir Bjarka í dag.
73. mín Gult spjald: Símon Logi Thasaphong (Njarðvík)
Engir afsættir fyrir varamennina.
73. mín
Inn:Símon Logi Thasaphong (Njarðvík) Út:Dominik Radic (Njarðvík)
73. mín
Inn:Arnar Helgi Magnússon (Njarðvík) Út:Sigurjón Már Markússon (Njarðvík)
71. mín MARK!
Arnar Pálmi Kristjánsson (Völsungur)
Vandræðagangur aftast hjá Njarðvík og þeir koma boltanum ekki burt. Fastur bolti fyrir fer í gegnum allan pakkann og út á Arnar Pálma sem kemur á ferðinni og hamrar boltann í netið!
69. mín Gult spjald: Bjarki Baldvinsson (Völsungur)
Brýtur á Freysteini Inga.
68. mín Gult spjald: Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík)
Brotlegur í baráttunni við Stálmúsina.
67. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Ég leit niður í stutta stund að klára skrifa skiptingarnar og lít svo upp og sé Oumar Diouck lyfta boltanum yfir Ívar Arnbro í marki Völsungs af smá færi - Dossena mark var laumað að mér.
67. mín
Inn:Gunnar Kjartan Torfason (Völsungur) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (Völsungur)
67. mín
Inn:Bjarki Baldvinsson (Völsungur) Út:Rafnar Máni Gunnarsson (Völsungur)
67. mín
Inn:Freysteinn Ingi Guðnason (Njarðvík) Út:Valdimar Jóhannsson (Njarðvík)
67. mín
Inn:Kenneth Hogg (Njarðvík) Út:Joao Ananias (Njarðvík)
64. mín
Flott hornspyrna og tilraun frá Dominik Radic er bjargað í horn hinumeginn.
63. mín
Dominik Radic með skot sem fer af varnarmanni og afturfyrir.
58. mín
Joao Ananias með frábæra pressu og vinnur boltann hátt á vellinum og er komin í fínasta færi en skotið beint á Ívar Arnbro.
55. mín
Svavar Örn með tilraun af löngu færi beint á Ívar Arnbro.
51. mín
Oumar Diouck skorar en flaggið á loft.
47. mín
Kraftur í heimamönnum út úr hálfleiknum.
46. mín
Inn:Steinþór Freyr Þorsteinsson (Völsungur) Út:Ólafur Jóhann Steingrímsson (Völsungur)
46. mín
Dominik Radic sparkar okkur af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Njarðvíkignar með öll völd á vellinum og leiða sanngjarnt og sannfærandi.

Tökum stutta pásu og snúum svo aftur með seinni hálfleikinn.
45. mín MARK!
Oumar Diouck (Njarðvík)
Stoðsending: Dominik Radic
Verður ekki mikið aðveldara! Njarðvíkingar spila sig í gegnum vörn Völsungs og Dominik Radic gerir allt rétt og rennir boltanum svo til hliðar á Oumar Diouck sem er fyrir opnu marki og klárar þetta faglega.
43. mín
Njarðvíkingar að spila sig í gegnum Völsung en Oumar Diouck með aðeins of fastann bolta inn á Tómas Bjarka.
42. mín Gult spjald: Elvar Baldvinsson (Völsungur)
Brotlegur í baráttunni við Dominic Radic.
39. mín
Það er ekki mikið um að vera í þessum leik þessa stundina. Völsungur aðeins náð að ýta sér ofar völlinn en eiga þó enn eftir að ná að skapa sér færi.
31. mín Gult spjald: Joao Ananias (Njarðvík)
Fylgir hresst á eftir og fær spjald að launum.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Völsungur fá aukaspyrnu sem þeir lyfta fyrir markið á Inigo Albizuri Arruti á fjærstönginni sem nær skalla að marki og Aron Snær ver það í horn.
28. mín
Leikurinn róast örlítið síðustu mínúturnar.
23. mín
Völsungur stingur Ólafi Jóhann í gegn en Sigurjón Már nær frábærri tæklingu rétt áður en hann lætur skotið ríða af.

Njarðvíkingar vildu sjá flaggið á loft sem kom þó ekki.
21. mín
Ismael Salmi Yagoub með skemmtilega tilraun sem fór mun nær marki en leit út fyrir að vera en þó framhjá markinu.

Skemmtileg tilraun.
18. mín
Völsungur nær skoti á markið en þetta er bara æfingarbolti fyrir Aron Snær í markinu.
17. mín
Njarðvíkignar ráða lögum og lofum hér á upphafsmínútum og gætu hæglega verið búnir að setja fleirri mörk.
14. mín MARK!
Dominik Radic (Njarðvík)
Stoðsending: Oumar Diouck
Njarðvíkingar tvöfalda! Oumar Diouck fær boltann úti hægri og kemur með fastann bolta fyrir markið þar sem Dominik Radic stýrir boltanum í fjærhornið á nærstöng.
11. mín
Varsla! Arnleifur með flottan bolta fyrir markið og Dominik Radic nær skallanum á nærstöng en Ívar Arnbro ver þetta frábærlega!
10. mín
Hættuleg sending í gegn ætluð Elfari Árna en Aron Snær gerir vel og kemur út og sparkar boltanum fram.
7. mín MARK!
Amin Cosic (Njarðvík)
Stoðsending: Joao Ananias
Njarðvíkingar leiða! boltinn dettur fyrir Joao Ananias inni á teig Völsungs hægra meginn og hann lyftir honum fyrir markið þar sem Amin Cosic stangar hann í netið.

Flott sókn hjá heimamönnum.
5. mín
Svavar Örn með flottan bolta fyrir markið og Valdimar Jóhannsson á tilraun sem fer af varnarmanni og í horn.

Njarðvíkingar dæmdir brotlegir í horninu.
3. mín
Oumar Diouck lyftir boltanum rétt yfir mark Völsungs.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar Bjarki Björn fylgir á eftir Júlíusi Mar Júlíussyni sem var með fjóra leiki rétta þegar hann spáði í fyrstu umferðina.

Njarðvík 2-0 Völsungur
Heimavöllurinn sterkur í þessari umferð og Njarðvíkingar númeri of stórir fyrir Völlarana. Davíð Helgi með langa bolta á Diouck sem klára vel og Viggó Valgeirs lokar þessum leik með einu frá miðju.

Fyrir leik
Leiðin úr Lengjunni Leiðin úr Lengjunni er hlaðvarpsþáttur tileinkaður næst efstu deild karla í knattspyrnu. Við munum í sumar gefa Lengjudeildinni góð skil og fara yfir allt það helsta sem gerist í Lengjudeildinni.

Í síðasta þætti rennum við yfir fyrstu umferðina og gerum hana upp. Lengjudeildin fór skemmtilega af stað enda skemmtilegasta deild landsins.

Fyrir leik
Njarðvík Njarðvíkingar tóku á móti Fylki í fyrstu umferð hér á JBÓ vellinum. Amin Cosic kom heimamönnum yfir með góðu marki áður en Pablo Simon jafnaði fyrir Fylkismenn og þar við sat. Njarðvíkingar fengu færin til að vinna og fengu meðal annars vítaspyrnu sem fór forgörðum en urðu að láta stigið nægja.

Njarðvíkingar vonast til þess að koma fyrsta sigrinum á töfluna í dag og hefja sína vegferð að því að vera meðal efstu liða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Völsungur Völsungur heimsóttu ÍR í fyrstu umferð í Egilshöll og urðu að lúta í lægra hald þar 1-0 eftir sjálfsmark frá Ívari Arnbro Þórhallssyni.

Nýliðarnir eru því bæði að leitast eftir fyrstu stigum og fyrsta marki í deildinni í ár en þeir eru eina liðið sem náði ekki að þenja netmöskvana í fyrstu umferð.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarateymið Gunnar Oddur Hafliðason heldur utan um flautuna í dag og honum til aðstoðar verða Daníel Ingi Þórisson og Jovan Subic.
Eftirlitsmaður KSÍ er Þórður Ingi Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem heimamenn taka á móti Völsungi í annari umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
4. Elvar Baldvinsson
5. Arnar Pálmi Kristjánsson (f)
6. Inigo Albizuri Arruti
8. Ólafur Jóhann Steingrímsson ('46)
9. Elfar Árni Aðalsteinsson ('79)
11. Rafnar Máni Gunnarsson ('67)
14. Xabier Cardenas Anorga ('85)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('67)
21. Ismael Salmi Yagoub
30. Davíð Örn Aðalsteinsson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
88. Einar Ísfjörð Sigurpálsson (m)
2. Óskar Ásgeirsson
7. Steinþór Freyr Þorsteinsson ('46)
10. Bjarki Baldvinsson ('67)
12. Gestur Aron Sörensson ('79)
22. Aron Bjarki Kristjánsson ('85)
39. Gunnar Kjartan Torfason ('67)
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Ingvar Björn Guðlaugsson
Róbert Ragnar Skarphéðinsson
Aron Bjarki Jósepsson
Daði Fannar Sverrisson

Gul spjöld:
Elvar Baldvinsson ('42)
Bjarki Baldvinsson ('69)
Steinþór Freyr Þorsteinsson ('80)

Rauð spjöld:
Bjarki Baldvinsson ('75)