Arsenal leggur fram tilboð - Schick til Englands - Emi á útleið og fer Inzaghi til Sádi?
Lengjudeild kvenna
Keflavík
LL 2
2
KR
Besta-deild kvenna
Valur
LL 1
3
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
FHL
LL 2
5
Þór/KA
Besta-deild kvenna
Tindastóll
LL 1
5
Breiðablik
Tindastóll
1
5
Breiðablik
Birgitta Rún Finnbogadóttir '14 1-0
1-1 Birta Georgsdóttir '27
1-2 Berglind Björg Þorvaldsdóttir '30
1-3 Andrea Rut Bjarnadóttir '69
1-4 Berglind Björg Þorvaldsdóttir '72
1-5 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '88
08.05.2025  -  16:30
Sauðárkróksvöllur
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Smá gola og völlurinn rakur.
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Maður leiksins: Andrea Rut Bjarnadóttir
Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
4. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('89)
6. Laufey Harpa Halldórsdóttir
9. María Dögg Jóhannesdóttir
10. Elísa Bríet Björnsdóttir ('75)
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir ('86)
14. Lara Margrét Jónsdóttir ('75)
18. Katherine Grace Pettet
21. Nicola Hauk
27. Makala Woods
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Saga Ísey Þorsteinsdóttir ('75)
5. Bergljót Ásta Pétursdóttir ('89)
11. Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('75)
15. Emelía Björk Elefsen
16. Sunneva Dís Halldórsdóttir
17. Katla Guðný Magnúsdóttir ('86)
20. Kristrún María Magnúsdóttir
23. Magnea Petra Rúnarsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Konráð Freyr Sigurðsson (Þ)
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Hugrún Pálsdóttir
Aldís María Jóhannsdóttir
Helena Magnúsdóttir
Lee Ann Maginnis
Nikola Stoisavljevic

Gul spjöld:
Hrafnhildur Salka Pálmadóttir ('61)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik vinnur endurkomusigur Mjög öflug endurkoma hjá Blikum eftir að hafa lent undir snemma leiks. Meistararnir svara með fimm mörkum og vinna öruggan sigur á Króknum. Fjórði stóri sigur Breiðabliks í fimm leikjum.
94. mín
Frábær tækling frá Katherine, kemst fyrir skottilraun frá Lilju Þórdísi sem var í góðu færi.
93. mín
Langur bolti inn fyrir á Makalu Woods, nær til boltans vinstra megin í teignum en skotið frá henni er laust og Telma ver þægilega.
91. mín
Fjórum mínútum bætt við
89. mín
Inn:Bergljót Ásta Pétursdóttir (Tindastóll ) Út:Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
88. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Telma Ívarsdóttir
Upp allan völlinn - Smiðshöggið Ég held að Ása hafi bara hlaupið upp allan völlinn eftir að hafa fengið boltann frá Telmu í markinu, fékk hann rétt fyrir utan eigin vítateig.

Stólarnir fáliðaðir til baka og Ása gat valið að gefa boltann eða ekki og kaus að skjóta sjálf. 5-1!
87. mín
Dauðafæri Makala Woods með geggjað stungusendingu inn fyrir, Áslaug Munda nær ekki að tækla fyrir og María Dögg er í DAUÐA DAUÐA færi, en nær ekki að skora framhjá Telmu.

Tindastóll fær hornspyrnu sem Telma handsamar.
87. mín
Áslaug Munda reynir skot sem fer af varnarmanni og svo til Genevieve í markinu.
86. mín
Inn:Katla Guðný Magnúsdóttir (Tindastóll ) Út:Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
84. mín
Inn:Lilja Þórdís Guðjónsdóttir (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
84. mín
Inn:Helga Rut Einarsdóttir (Breiðablik) Út:Samantha Rose Smith (Breiðablik)
84. mín
Inn:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik) Út:Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
82. mín
Blikar fá þrjár hornspyrnu í röð. Áslaug Munda tekur.
80. mín
Birta finnur Samönthu inn á teignum en móttakan svíkur hana aðeins og Genevieve handsamar boltann.
79. mín
Blikar spila sig hægt og rólega upp völlinn. Ekkert stress. Gestirnir reyna að pressa.
75. mín
Inn:Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Tindastóll ) Út:Elísa Bríet Björnsdóttir (Tindastóll )
75. mín
Inn:Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll ) Út:Lara Margrét Jónsdóttir (Tindastóll )
75. mín
Inn:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Út:Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
73. mín
Frábær leikur hjá Andreu til þessa!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óstöðvandi í dag
72. mín MARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir
Andrea fær boltann inn á teignum frá Kristínu og nær að koma honum þvert fyrir, inn á markteiginn, Berglind hendir sér á boltann og skorar sitt fimmta mark í sumar.

Breiðablik í essinu sínu!
69. mín MARK!
Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Samantha Rose Smith
Þetta var bara tímaspursmál Samantha kemst framhjá Katherine úti hægra megin, leggur boltann út í markteiginn og þar er besti leikmaður vallarins, Andrea Rut, laus og klárar þægilega í netið.

Breiðablik hefur verið með öll völd í seinni hálfleik og þetta mark var á leiðinni.
68. mín
Birta með slaka fyrirgjöf og Nik lætur í sér heyra. ,,There's noone there."
68. mín
Aftur frekar laust skot frá Öglu Maríu sem Genevieve ver örugglega.
67. mín
Andrea Rut vinnur aukaspyrnu fyrir Breiðablik. Hrafnhildur Salka dæmd brotleg. Reynir Agla María annað skot?
66. mín
Inn:Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik) Út:Karitas Tómasdóttir (Breiðablik)
Kristín Dís færir sig yfir í hægri bakvörðinn. Fyrsti leikur Áslaugar Mundu í sumar.
64. mín
Frábær varnarleikur hjá Hrafnhildi Birta leikur á Nicole og er komin í góða stöðu en Hrafnhildur Salka stígur Birtu út og hættan inn á vítateig Tindastóls líður hjá. Einhver köll eftir vítaspyrnu en þetta var bara frábær varnarleikur.
62. mín
Berglind aftur í dauðafæri Andrea Rut finnur Berglindi inn á teignum, Berglind nær frábærum snúning og er komin í dauðafæri en missir aðeins jafnvægið og setur boltann yfir.
62. mín
Ótrúlega laust skot hjá Öglu Maríu sem Genevieve ver auðveldlega.
61. mín Gult spjald: Hrafnhildur Salka Pálmadóttir (Tindastóll )
Fyrsta gula spjaldið í dag. Birtagerir áras, setur boltann á milli Hrafnhildar og Nicola Hauk og Hrafnhildur brotleg. Agla María getur látið vaða úr þessari stöðu.
60. mín
Andrea Rut vill fá hendi víti á Hrafnhildi en Bergvin sér ekkert athugavert. Þetta var skrítið skopp á boltanum inn á vítateig Tindastóls.
57. mín
Blikar að banka Andrea Rut reynir skot fyrir utan teig Tindastóls en það fer yfir mark heimakvenna.
56. mín
Elín Helena með skalla eftir hornspyrnu Öglu Maríu en boltinn fer yfir. Katherine liggur eftir og þarf aðhlynningu.
53. mín
Annað færi innan við mínútu síðar Andrea Rut með frábæra stungusendingu inn á Berglindi en hún setur boltann framhjá í góðu færi.
53. mín
Færi Agla María með skot sem Genevieve ver vel í marki Tindastóls. Vel gert hjá Öglu Maríu í aðdragandanum en virkilega vel varið.
51. mín
Mislukkuð sending til baka frá Heiðdísi sem Telma reynir að bjarga frá því að fari aftur fyrir en nær því ekki. Tindastóll fær gefins hornspyrnu. Flott pressa hjá Makalu Woods.

Hornspyrnan endar hins vegar beint ofan á þaknetinu, markspyrna fyrir Breiðablik.
49. mín
Fín spyrna frá Laufeyju en Katherine nær ekki að stýra skallanum á markið, boltinn hátt yfir.
48. mín
Þarna var séns! Elísa Bríet Björnsdóttir gerir mjög vel úti vinstra megin, finnur Maríu Dögg sem er í góðu færi, kýs að reyna finna samherja sem tekst ekki. Þarna átti María að láta vaða.

Tindastóll fær hornspyrnu sem Laufey tekur.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Blikar beint upp í sókn sem endar á fastri fyrirgjöf frá Öglu Maríu sem samherjar hennar komast ekki i.
45. mín
Hálfleikur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birta skoraði í fyrri hálfleiknum sitt annnað mark í sumar, eftir sendingu frá Andreu Rut.
45. mín
Hálfleikur
Blikar leiða í hálfleik Tindstóll leiddi í 13 mínútur en þá skoraði Breiðablik tvö mörk á þriggja mínutna kafla og kom sér yfir í leiknum.
43. mín
Makala Woods lendir illa og liggur eftir í annað sinn á stuttum tíma. Hún hristir þetta af sér og heldur áfram.
41. mín
Agla María finnur aftur Andreu Rut eftir stutt horn. Donni var búinn að kalla á Makalu Woods að fara út í Andreu og hún kom á ferðinni og hirti af henni boltann. Vel lesið hjá henni og þjálfaranum.
37. mín
Makala Woods í góðu færi En setur boltann yfir! Þetta var alvöru séns fyrir Tindastól að jafna, slapp inn fyrir vörnina en náði ekki að setja boltann á markið.
36. mín
Berglind og Samantha nú markahæstar í deildinni Breiðablik hefur skorað 21 mark í deildinni og Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur nú líkt og Samantha skorað fjögur mörk í deildinni. Sú markahæsta í sögu félagsins heldur áfram að raða inn mörkum!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

   21.03.2025 16:43
Sú markahæsta mætt aftur í grænt: Langaði að fara heim og finna gleðina
35. mín
Andrea reynir skot eftir að hafa fengið sendingu frá Öglu Maríu eftir hornspyrnu. Skotið fer í varnarmann.
34. mín
Heiða Ragney reynir skot sem fer hátt yfir mark Tindastóls.
33. mín
Samantha í dauðafæri Gott spil hjá Blikum á miðjum vellinum og Laufey fer í pressu og þá opnast allt fyrir Samönthu. Hún fær boltann í gegn en nær einungis lausu skoti sem Genevieve á ekki í neinum vandræðum með. Þarna var séns.
31. mín
Makala Woods með skot vinstra megin úr teignum sem Telma ver.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Blikar komnir yfir! Kristín Dís á helling í þessu marki. Fær boltann fá Birtu sýnist mér eftir þríhyrningsspil, er komin inn á teiginn, reynir skot, fær frákastið og skallar i átt að marki, boltanum hreinsað í burtu frá Katherine, en fer ekki lengra en á markavélina Berglindi sem skorar í autt netið.

Klaufalegur varnarleikur hjá Tindastóli, of einfalt hjá gestunum, og það er tekinn stuttur liðsfundur í kjölfarið. Tvö þríhyrningsspil og tvö mörk hjá Blikum.
29. mín
Katherine Grace Pettet með alvöru bjartsýnis skot sem fer yfir mark Breiðabliks.
27. mín MARK!
Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Andrea Rut Bjarnadóttir
Allt jafnt Frábærlega útfærð sókn hjá Blikum. Andrea byrjar þetta með því að gera atlögu að vörn Tindastóls, sendir boltann á Samönthu við hlið sér, Samantha klárar þríhyrningsspilið með því að finna Andreu aftur inn á teignum og Andrea sendir inn á markteiginn þar sem Birta getur ekki annað en skorað þegar hún fær boltann.
26. mín
Agla María með skot í varnarmann og Samantha gerði sig svo líklega í kjölfarið en þetta endar á að Tindastóll á markspyrnu.
25. mín
Til þessa í leiknum hefur Laufey, sem er í vinstri vængbakverði Tindastóls, verið dugleg að koma inn á völlinn og elta Samönthu þegar Breiðablik er með boltann. Samantha, sem er frábær leikmaður, hefur lítið komist í boltann.
22. mín
Mjög tæp rangstaða á Birgittu Rún, held hún hafi hallað sér inn fyrir rétt áður en sendingin kom. Donni ekki sáttur við að sjá flaggið fara á loft. Birgitta hefði sloppið í gegn.
21. mín
Donni vill fá að sjá aukaspyrnur dæmdar á gestina sem hafa látið finna fyrir sér síðustu mínútur. Heyrist vel í þjálfaranum á hliðarlínunni.
19. mín
Í annað sinn á tímabilinu sem Breiðablik lendir undir Breiðablik lenti 2-0 undir gegn Þrótti í annarri umferð og kom þá til baka með því að skora tvö mörk undir lokin.
14. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
Klaufalegt hjá Blikum! Telma sendir til vinstri á Elínu Helenu sem missir boltann, vel gert hjá Birgittu Rún sem nýtir sér mistökin og skorar með skoti sem fer einhvern veginn í gegnum Telmu í markinu. Skrítið mark!

Fyrsta mark Birgittu, sem er fædd 2008, á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
14. mín
Makala Woods í fínni stöðu, stígur klaufalega á boltann og augnablikið siglir svolítið frá henni. Hún lætur vaða úr kyrrstöðu og skotið fer yfir mark Breiðabliks.
13. mín
Hættulegasta sókn leiksins til þessa Birta gerir mjög vel vinstra megin í teignum, ætlar að finna Berglindi inn á markteignum en Katherine nær að hreinsa. Karitas kemst í boltann fyrir utan teig Tindastóls og lætur vaða en skotið fer í utanvert hliðarnetið. Góð sókn.
10. mín
Breiðablik fær sína aðra hornspyrnu. Agla María býr sig undir að taka spyrnuna.

Katherine skallar boltann í burtu.
6. mín
Uppstilling Breiðabliks 4-1-3-2 held ég, einvers konar tígul miðja.

Telma
Karitas - Heiðdís - Elín - Kristín
Heiða
Samantha - Andrea - Agla María
Birta - Berglind
5. mín
Fín fyrirgjöf frá Öglu Maríu en Birta kemst ekki í botlann og Genevieve Jae Crenshaw nær að handsama boltann.
3. mín
Uppstilling Tindastóls 3-4-1-2

Genevieve
Hauk - Bryndís - Katherine
María - Lara - Hrafnildur - Laufey
Elísa
Birgitta - Woods
1. mín
Leikur hafinn
Tindastóll byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin mætt út á völl og þetta fer að hefjast
Fyrir leik
Smá gola og smá úrkoma Það blæs aðeins á Sauðárkróki og það kom örlítil rigning áðan svo völlurinn á að vera góður!
Fyrir leik
Donni vill reyna sækja á hægri bakvörð Breiðabliks Athyglisverð ummæli hjá þjálfara Tindastóls fyrir leikinn. Í viðtali við Stöð 2 Sport fyrir leik sagði Donni að Tindastóll ætlaði að reyna að sækja á hægri bakvörð Breiðabliks. Það væri góður leikmaður, en kannski ekki sú sterkasta varnarlega.
Fyrir leik
Spilað snemma út af úrslitaviðureigninni í körfuboltanum Leiktíminn 16:30 er ekki hefðbundinn en leiknum var flýtt þar sem Tindastóll og Stjarnan mætast í Síkinu á Sauðárkróki í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í Bónus deildinni í körfubolta klukkan 20:15 í kvöld.
Mynd: Mummi Lú

Pétur Rúnar verður í eldlínunni í kvöld
Fyrir leik
Leiknum lýst í gegnum útsendingu Stöð 2 Sport Leikurinn er í beinni útsendingu á rás BD1 hjá Stöð 2 Sport. Leiknum verður lýst í gegnum þá útsendingu en Fótbolti.net verður samt með viðtöl eftir leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Orri lýsir leiknum á Stöð 2 Sport
Fyrir leik
Dómaratríóið Bergvin Fannar Gunnarsson er með flautuna í dag. Sigurjón Þór Vignisson og Leyla Ósk Jónsdóttir eru aðstoðardómarar, Garðar Örn Hinriksson er eftirlitsmaður KSÍ og Björn Benedikt Benediktsson er fjórði dómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Garðar Örn er eftirlitsmaður KSÍ
Fyrir leik
Gengi liðanna og staðan í deildinni Íslandsmeistarar Breiðabliks eru ásamt FH og Þrótti á toppi deildarinnar með tíu stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Blikar hafa unnið stóra sigra gegn Stjörnunni, Víkingi og Fram og gert jafntefli við Þrótt.

Tindastóll er með þrjú stig í 7. - 9. sæti eftir sína fjóra leiki. Stólarnir unnu FHL í fyrsta leik og töpuðu svo naumlega gegn Þór/KA, Stjörnunni og Þrótti í næstu þremur.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár - Áslaug Munda á bekknum Liðið hjá Donna og Konna, þjálfurum Tindastóls, er óbreytt frá síðasta leik, sem var 1-0 tapleikur gegn Þrótti í Laugardalnum. Bergljót Ásta Pétursdóttir kemur inn á bekkinn.

Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, er sömuleiðis með sama byrjunarlið og í síðasta leik, sem vannst 4-0 gegn Víkingi. Landsliðskonan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir er komin frá Bandaríkjunum og byrjar á bekknum hjá Blikum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áslaug Munda
Fyrir leik
GT spáir óvæntri þrennu Gylfi Tryggvason, þjálfari Lengjudeildarliðs Grindavíkur/Njarðvíkur, spáir í leiki 5. umferðarinnar. Hann spáir nokkuð öruggum útisigri í dag og nokkuð óvæntri þrennu.

Tindastóll 0 - 3 Breiðablik
Tindastóll hafa byrjað þetta mót af krafti en þær hafa ekki spilað á móti Sammy Smith. Leikplan Tindastóls verður einfalt: Hrafnhildur Salka á að vera frakki á Sammy Smith í leiknum. Fer ekki betur en svo að Hrafnhildur fær rautt spjald eftir þrjár mínútur fyrir að toga í hárið á henni. Við að sjá rauða spjaldið tryllist hún og labbar alla 306 kílómetrana heim.

Aftur að leiknum. Eftirleikurinn verður auðveldur og Heiða Ragney skorar þrennu.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorar Heiða Ragney þrennu?
Fyrir leik
Fimmta umferðin hefst í dag Góðan daginn og velkomin í textalýsingu frá leik Tindastóls og Breiðabliks í 5. umferð Bestu deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 16:30 og fer fram á Sauðárkróksvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
4. Elín Helena Karlsdóttir
5. Samantha Rose Smith ('84)
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir
11. Andrea Rut Bjarnadóttir ('75)
17. Karitas Tómasdóttir ('66)
18. Kristín Dís Árnadóttir ('84)
22. Heiðdís Lillýardóttir
23. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
28. Birta Georgsdóttir ('84)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Katherine Devine
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('75)
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ('66)
21. Guðrún Þórarinsdóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir ('84)
26. Líf Joostdóttir van Bemmel ('84)
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('84)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Bjarki Sigmundsson
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Valdimar Valdimarsson
Eiríkur Raphael Elvy

Gul spjöld:

Rauð spjöld: