Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild kvenna
AVIS völlurinn
Stórkostlegar, ekkert flóknara en það
Þróttur R.
Þróttur R.
4 - 1
FH
FH
Freyja Karín Þorvarðardóttir 3'1 - 0Unnur Dóra Bergsdóttir 6'2 - 02 - 124' Thelma Karen PálmadóttirÞórdís Elva Ágústsdóttir 27'3 - 1Freyja Karín Þorvarðardóttir 45'4 - 1
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Þægilegur Þróttar sigur í blíðunni á Avis

Hvað réði úrslitum?

Engin spilar betur en andstæðingurinn leyfir er gamall frasi sem á eflaust vel við eftir leik eins og þennan. Þróttur byrjaði leikinn á því að stíga hátt á lið FH sem bar ávöxt strax í upphafi leiks þegar Freyja Karin skoraði eftir rétt tæpar þrjár mínútur. Vörn FH riðaði þá strax til falls og gekk Þróttur á lagið. Þær gáfu varnarmönnum FH engan tíma á boltann sem endaði oftar en ekki með því að þær unnu boltann og komu sér í færi. Eitthvað sem liði FH tókst ekki að leysa fyrr en alltof seint og úrslitin svo gott sem ráðin.

Bestu leikmenn

1. Freyja Karín Þorvarðardóttir

Iðin í pressunni þann tíma sem hún spilaði. Vann boltann margoft á vallarhelmingi FH og skoraði þessu utan tvö mörk. Prýðisleikur hjá Freyju sem að er heldur betur að springa út í upphafi móts.

2. Þórdís Elva Ágústsdóttir

Gríðarlegur kraftur í Þórdísi í leiknum. Gott auga fyrir spili og tímasetur hlaup sín inn á teiginn gríðarlega vel.

Atvikið

Mark Þórdísar þar sem hún spólar sig í gegnum vörn FH í teignum og skorar glæsilega úr þröngu færi stendur upp úr fyrir mig.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur heldur í við Breiðablik á toppi deildarinnar stigalega séð. -Sitja í öðru sæti með 16 stig en talsvert lakari markatölu en Blikar. FH áfram í þriðja sæti með 13 stig.

Vondur dagur

Fyrri hálfleikurinn hjá liði FH var frekar skrýtin og þá einna helst varnarlega. Þær voru mjög gjafmildar í öftustu línu á þessum fallega sólardegi og sannarlega sjálfum sér verstar. Bætti ekki úr skák að fyrirliði þeirra Arna Eiríksdóttir þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla á hné. Það er vonandi að þau meiðsli séu ekki alvarleg og komi ekki til með að halda henni frá vellinum í langan tíma.

Dómarinn - 7

Guðmundur og hans teymi áttu fínan dag á vellinum að mínu mati. Liðin tókust alveg vel á á köflum en dómarar leiksins komust vel frá sínu og án þess að hægt sé að benda á einhver stór atvik sem þeir klikkuðu á.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.