Liverpool berst við spænsku risana um Wharton - Nkunku orðaður við Liverpool - Rodrygo í enska boltann?
Lengjudeild karla
Selfoss
76' 1
0
Völsungur
Besta-deild kvenna
Víkingur R.
56' 1
2
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Fram
60' 1
3
Þór/KA
Besta-deild kvenna
Stjarnan
LL 1
0
FHL
Lengjudeild kvenna
Grindavík/Njarðvík
LL 1
1
ÍA
Besta-deild kvenna
Þróttur R.
LL 4
1
FH
Lengjudeild kvenna
KR
LL 5
4
HK
Fram
1
3
Þór/KA
0-1 Amalía Árnadóttir '20
0-2 Sandra María Jessen '30
Murielle Tiernan '45 1-2
1-3 Sandra María Jessen '60
17.05.2025  -  16:15
Lambhagavöllurinn
Besta-deild kvenna
Aðstæður: Bongó en smá vindur
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Elaina Carmen La Macchia (m)
3. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
5. Dominiqe Evangeline Bond-Flasza
7. Alda Ólafsdóttir
9. Murielle Tiernan
10. Una Rós Unnarsdóttir
11. Lily Anna Farkas
13. Mackenzie Elyze Smith (f)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir ('46)
30. Kamila Elise Pickett
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
6. Katrín Erla Clausen ('46)
16. Karítas María Arnardóttir
18. Júlía Margrét Ingadóttir
22. Ólína Sif Hilmarsdóttir
23. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir
25. Thelma Lind Steinarsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Pálmi Þór Jónasson (Þ)
Svava Björk Hölludóttir
Thelma Björk Theodórsdóttir
Gareth Thomas Owen
Kirian Elvira Acosta
Guðlaug Embla Helgadóttir

Gul spjöld:
Alda Ólafsdóttir ('31)

Rauð spjöld:
60. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Angela Mary Helgadóttir
SANDRA MARÍA VÖKNUÐ Sú er góð maður lifandi. Glæsileg fyrirgjöf frá hægri frá Angelu, beint á pönnuna á Söndru, sem á ekki í neinum vandræðum með að skalla boltann í markið.
58. mín
Fram konur komast í færi Sending fram völlinn sem Murielle skallar aftur fyrir sig. Alda kemur boltanum á Söru Svanhildi sem tekur skot á nærstöngina en Jessica vel á verði og handsamar knöttinn.
55. mín
Þór/KA hættulegri fyrstu mínútur seinni hálfleiks Búnar að komast mikið inn á teig Fram og í raun bara spurning hvenær þær setja þriðja markið.
49. mín
Skarð fyrir skildi fyrir Þór/KA Henríetta, sem tók allar aukaspyrnur og hornspyrnur gestanna í fyrri hálfleik, er farinn af velli og það verður forvitnilegt að sjá hvernig föstu leikatriðin ganga hjá þeim í seinni hálfleik án hennar.
47. mín
Inn:Kolfinna Eik Elínardóttir (Þór/KA) Út:Henríetta Ágústsdóttir (Þór/KA)
Henríetta spilar ekki nema 90 sek af seinni hálfleik Eru þetta mögulega eftirmálar af tæklingunni frá Öldu í fyrri hálfleik?
46. mín
Inn:Katrín Erla Clausen (Fram) Út:Freyja Dís Hreinsdóttir (Fram)
Fram gerir skiptingu í hálfleik
46. mín
Aftur af stað Guðni flautar leikinn á aftur. Gestirnir byrja seinni hálfleikinn.
45. mín
Hálfleikur
1-2 fyrir gestina í hálfleik Guðni flautar af áður en miðjan er tekin. Þór/KA hafa verið betri aðilinn í leiknum en það gerir leikinn skemmtilegri að Fram hafi náð að pota einu inn rétt fyrir hálfleik.
45. mín MARK!
Murielle Tiernan (Fram)
Stoðsending: Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
+5 Fram minnka muninn! Glæsileg aukaspyrna frá Dominiqe frá miðlínu inn í teiginn á fjærstöngina þar sem boltinn berst aftur inn á teiginn til Murielle sem nær að setja boltann í markið.

Akkúrat það sem leikurinn þurfti svona rétt fyrir hálfleik.
45. mín
+4 Tryllt sókn hjá Fram. Þór/KA á aðra hornspyrnuna sína í röð og Fram konur ná boltanum fram völlinn. Dominiqe sendir út á Kamila sem keyrir upp vinstri kantinn og reynir að senda aftur á Dominiqe en hún nær ekki boltanum og brýtur af sér.
45. mín
Uppbótartíminn er að lágmarki 4 mínútur Líklega vegna þess að Henríetta lá í dágóðan tíma áðan.
44. mín
Henríetta með enn eitt fast leikatriðið Tekur aukaspyrnu utan af velli inn í teig en Þór/KA ná ekki boltanum.
41. mín
Já þær eru að vakna Alda Ólafs kemst í gott færi en skot hennar framhjá marki gestanna.
39. mín
Murielle brunar upp Murielle Tiernan með glæsilegan sprett upp vinstri kantinn eftir að Fram vinna boltann af Huldu Ósk, sem er búin að vera eins og eimreið á hægri kanti Þórs/KA, en skot Murielle lélegt og í horn. Eru heimakonur að vakna?
31. mín Gult spjald: Alda Ólafsdóttir (Fram)
Pirringsbrot? Algjörlega óþörf ljót tækling á miðjum vellinum og Henríetta liggur óvíg eftir og þarfnast aðhlynningar.
30. mín MARK!
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Stoðsending: Henríetta Ágústsdóttir
Maður heldur ekki í við þennan leik Jessica sendir á Henríettu úr markspyrnunni og hún á þessa glæsilegu utanfótar snuddu á Söndru Maríu sem geysist ein í gegn og á ekki í nokkrum vandræðum með að dúndra boltanum með vinstri í markið.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Hvernig var þetta ekki inni? Una Rós með aukaspyrnu inn í teiginn og boltinn á Dominiqe sem nær einhvern veginn að setja boltann yfir af 1 meters færi.
27. mín
Sandra María að sleppa í gegn Hulda Ósk á flottan sprett á hægri kantinum og kemst inn á völlinn en sendir boltann aðeins of seint á Söndru Maríu, sem var í góðu hlaupi, en sendingin aðeins of sein og rangstaða dæmd.
24. mín
Fram í færi Alda Ólafs geysist upp hægri kantinn og nær sendingu inn í teig Þór/KA sem gestirnir ná að hreinsa, þó með hálfkæringi, og boltinn er að fara að renna á Murielle en hún nær ekki til hans og sóknin fjarar út.
20. mín MARK!
Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Sandra María Jessen
ÞAÐ ER KOMIÐ MARK Akkúrat það sem leikurinn þurfti.

Glæsileg sending frá Söndru inn fyrir vörn Fram og Amalía nær að pota boltanum framhjá Elaina en boltinn fer í stöngina og aftur til Amalíu sem setur boltann í autt markið.

Fram 0 Þór/KA 1
13. mín
Henríetta með skot úr horninu Henríetta tekur hornið og nær flottum sveig á boltann, með smá aðstoð frá vindinum, og Elaina blakar boltanum út í teiginn þar sem samherjar hennar hreinsa.
12. mín
Gestirnir fá horn Þór/KA hafa verið að koma sér í betri stöður, taka hornið stutt en ná boltanum ekki inn í og Fram hreinsar í annað horn.
9. mín
Þór/KA fá aukaspyrnu Hulda Björg mundar skotfótinn og nær flottu skoti, undir vegg Fram, og Elaina þarf að hafa sig alla við að handsama knöttinn.
6. mín
Fram konur sækja Þær koma boltanum inn á teig Þór/KA en gestirnir ná boltanum að lokum og koma honum fram.
2. mín
Sonja Björg í hörkufæri Sonja fær boltann inni á miðjum teig Framara en missir boltann eiginlega aftur fyrir sig og Elaina nær til boltans. Boltinn fer samt eiginlega af Elaina og Sonja nær öðru skoti, en það er máttlítið.
1. mín
Leikur hafinn
Leikurinn farinn í gang Fram konur byrja leikinn og sækja í átt að Hólmsheiði.
Fyrir leik
Fer að styttast í þetta Glæsilegt veður hérna í Úlfarsárdalnum og það fer að styttast í leikinn. Strekkingur í átt að markinu Dalslaugar megin og verður fróðlegt að sjá hvort liðin nýti sér það.
Fyrir leik
Gengi í síðustu leikjum Bæði lið töpuðu síðustu leikjum sínum í deildinni en spilað var í Mjólkurbikarnum í byrjun vikunnar. Þá fengu Þór/KA KR í heimsókn og pökkuðu þeim saman 6-0 á meðan að Fram tók á móti Val á Lambhagavellinum þar sem gestirnir rétt mörðu 2-3 sigur og Fram þar með úr leik í bikarnum.

Staðan í deildinni er sú að Þór/KA situr í 4. sæti deildarinnar með 9 stig en Fram er í 6. sæti með 6 stig.
Fyrir leik
Þriðja liðið Dómari leiksins er Guðni Páll Kristjánsson en honum til aðstoðar eru Steinar Stephensen og Eydís Ragna Einarsdóttir. Þá er Hallgrímur Viðar Arnarson varadómari leiksins.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, er spámaður 6. umferðar Bestu-deildar kvenna að þessu sinni en Katla hafði þetta um leikinn að segja:

Fram 0 - 3 Þór/KA

„Sandra María er komin í gang og setur tvö mörk og síðan kemur vinnuvélin á miðjunni Kimberley Dóra og setur eitt eftir fast leikatriði.“

Fyrir leik
Gleðilegan gameday! Góðan og gleðilegan leikdag og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Lambhagavellinum í Úlfarsárdal, þar sem heimakonur í Fram taka á móti Þór/KA klukkan 16:15 í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
20. Jessica Grace Berlin (m)
2. Angela Mary Helgadóttir
7. Amalía Árnadóttir
8. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir
10. Sandra María Jessen (f)
13. Sonja Björg Sigurðardóttir
14. Margrét Árnadóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir
21. Henríetta Ágústsdóttir ('47)
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
24. Hulda Björg Hannesdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Bríet Kolbrún Hinriksdóttir (m)
3. Kolfinna Eik Elínardóttir ('47)
4. Ellie Rose Moreno
6. Hildur Anna Birgisdóttir
11. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir
17. Emelía Ósk Kruger
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Kristinn Gunnarsson (Þ)
Haraldur Ingólfsson
Jóhann Hilmar Hreiðarsson
Eva Rut Ásþórsdóttir
Bjarni Geir Gunnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: