Leik lokið!
97. mín
Erum djúpt inni í uppbótartíma og Grótta er búið að færa sig vel upp.Fáum við dramatík?
94. mín
Grótta að ýta sér ofar.
93. mín
InnRakel Rós Unnarsdóttir
ÚtBirta Eiríksdóttir
91. mín
Við fáum sennilega einhvern smá uppbótartíma en þegar María og Eydís Arna skullu saman áðan fór alveg smá tími í það.
89. mín
Beint úr horni!
Beint úr horni!
Tinna Hrönn Einarsdóttir
Tinna Hrönn með hornspyrnu upp í vindinn og Margrét Rún lendir í smá vandræðum með þetta og nær ekki að slá boltann burt og hann endar í netinu!Beint úr horni!
87. mín
Svoo nálægt!
Emma Phillips með flotta pressu á Margréti Rún sem kemur út á móti og sparkar boltanum í hana og hann rúllar rétt framhjá markinu.
86. mín
Fáum við sigurmark í þessum leik?
80. mín
InnBirta Eiríksdóttir
ÚtEydís Arna Hallgrímsdóttir
80. mín
InnÞórunn Elfa Helgadóttir
ÚtMaría Martínez López
Markmannsskipting.
76. mín
Fyrirgjöf frá Gróttu fyrir markið og María Lopez og Eydís Arna sýnist mér það vera sem skella samann og leikurinn stopp.
73. mín
InnMargrét Edda Lian Bjarnadóttir
ÚtLovísa Davíðsdóttir Scheving
69. mín
Þær jafna!
Emma Nicole Phillips
Grindavík/Njarðvík með skot sem Margrét Rún heldur ekki og Emma Phillips hendir sér á frákastið og jafnar leikinn!68. mín
Brookelynn með tilraun rétt framhjá markinu.
67. mín
Sleggja!
Danai Kaldaridou
Boltinn dettur fyrir fæturnar á Danai fyrir utan teig sem lætur vaða og boltinn syngur í netinu!65. mín
Aðeins meira líf í Grindavík/Njarðvík í seinni með vindinn í bakið.
61. mín
Gult spjald
Emma Nicole Phillips
60. mín
InnDanai Kaldaridou
ÚtEydís María Waagfjörð
55. mín
Færi
Mistök í öftustu línu Grindavík/Njarðvík og Hulda Ösp kemst á milli og reynir að lyfta boltanum yfir Maríu Lopez en nær ekki að hitta á rammann.
48. mín
Fínasta tilraun en yfir markið.
47. mín
Grindavík/Njarðvík að fá aukaspyrnu á flottum stað. Tinna Hrönn stillir sér upp að taka þessa spyrnu.
47. mín
Gult spjald
Telma Sif Búadóttir
46. mín
Þetta er farið af stað aftur og það eru heimakonur sem sparka okkur af stað aftur.
45. mín
Grótta leiðir í hálfleik nokkuð sannfærandi og sanngjarnt. Ódýr mörk sem Grindavík/Njarðvík fá á sig en það er ekkert alltaf spurt af því. Leikurinn svo gott sem farið fram á vallarhelmingi heimakvenna enda Grótta með vindinn í bakið.
Verður áhugavert að sjá hvort þetta muni snúast eitthvað í seinni þegar Grindavík/Njarðvík spila með vindinn í bakið.
Verður áhugavert að sjá hvort þetta muni snúast eitthvað í seinni þegar Grindavík/Njarðvík spila með vindinn í bakið.
41. mín
María Lopez fékk skot á sig stuttu áður sem var líka tæpt á að vera slegið inn en þá slapp það og boltinn barst út á hægri væng þar sem fyrirgjöf varð að marki.
Úfff...
Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
Sigrún Ösp kemur með fyrirgjöf frá hægri fyrir markið sem María Lopez slær í netið.María Lopez fékk skot á sig stuttu áður sem var líka tæpt á að vera slegið inn en þá slapp það og boltinn barst út á hægri væng þar sem fyrirgjöf varð að marki.
39. mín
Brookelynn liggur eftir og meðan það er hugað af henni taka liðin lítil leikhlé til að fara yfir stöðuna.
37. mín
Grótta að spila með vindinn í bakið en eru þó ekki að nýta sér það neitt af viti. Skora gott mark með flottu skoti utan af velli úr aukaspyrnu sem skapaði urlsa en hafa þess utan ekkert verið að prufa sig áfram með vindinn í bakið.
30. mín
Grótta að leita af opnunum en þétt vörn Grindavík/Njarðvík stendur enn sem komið er.
23. mín
Grótta reynir skot af löngu færi en beint í fangið á Maríu Lopez.
18. mín
Það er ekki mikið spil í þessu og boltinn átt það til að fjúka úr leik.
11. mín
Grótta byrjað mun betur og búnar að þrýsta Grindavík/Njarðvík vel niður.
7. mín
Grótta tekur forystuna!
Lovísa Davíðsdóttir Scheving
Aukaspyrna inn á teig sem dettur fyrir Lovísu í kraðakinu og hún leggur hann í netið. María Lopez ver aukaspyrnuna en fellur svo fyrir fætur Lovísu sem klárar.6. mín
Það er mjög blautt hérna og hvast.. Fótboltinn svolítið eftir því.
1. mín
Það eru gestirnir í Gróttu sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Ekki alveg sama rjómablíðan
Þetta er ekki alveg sama rjómablíðan og hefur blessað okkur síðustu daga. Heiðarlegt reality check að við séum víst á Íslandi eftir allt er tekið við..
Fyrir leik
Lengjan í beinni
Leikir dagsins í Lengjudeild kvenna eru í beinni útsendingu á Fótbolti.net í samstarfi við Livey.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík byrjaði mótið á sigri hér heima gegn ÍBV en hafa síðan tapað gegn Fylki og gerðu jafntefli í síðasta leik gegn ÍA þar sem þær fengu á sig mjög svo umdeilt jöfnunarmark í lokin.
Fjögur stig og þær vonast til þess að komast aftur á sigurbraut.

Fjögur stig og þær vonast til þess að komast aftur á sigurbraut.

Fyrir leik
Grótta
Grótta hefur átt brösótta byrjun þar sem þær töpuðu fyrstu tveim leikjum sínum en unnu þó sterkan sigur á Fylki í síðustu umferð 3-0 svo þær koma með smá byr inn í leikinn í kvöld og freista þess að bæta við stigum á töfluna.


Fyrir leik
Dómari
Konráð Garðar Guðlaugsson fær það verkefni að halda utan um flautuna hér í kvöld og honum til aðstoðar verða Margeir Valur Sigurðsson og Kristinn Freyr Victorsson.


Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá JBÓ vellinum í Njarðvík þar sem Grindavík/Njarðvík taka á móti Gróttu í fjórðu umferð Lengjudeild kvenna í kvöld.







Sterkur sigur í erfiðum aðstæðum.