Eze og Olise gætu sameinast á ný - Veglegur launapakki Wirtz - De Bruyne á leið til Napoli
Í BEINNI
Besta-deild karla
FH
LL 2
0
Breiðablik
FH
2
0
Breiðablik
Björn Daníel Sverrisson '45 1-0
Sigurður Bjartur Hallsson '67 2-0
25.05.2025  -  19:15
Kaplakrikavöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Léttur úði og 8 gráður, toppaðstæður
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 1467
Byrjunarlið:
13. Mathias Rosenörn (m)
2. Birkir Valur Jónsson
4. Ahmad Faqa
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson ('87)
9. Sigurður Bjartur Hallsson ('82)
10. Björn Daníel Sverrisson (f) ('77)
21. Böðvar Böðvarsson
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
11. Bragi Karl Bjarkason
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
18. Einar Karl Ingvarsson ('77)
27. Jóhann Ægir Arnarsson ('87)
32. Gils Gíslason
34. Óttar Uni Steinbjörnsson
36. Dagur Traustason ('82)
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Emil Pálsson
Kristján Finnbogi Finnbogason
Guðmundur Jón Viggósson
Andres Nieto Palma
Kjartan Henry Finnbogason
Benjamin Gordon Mackenzie

Gul spjöld:
Kjartan Kári Halldórsson ('57)
Grétar Snær Gunnarsson ('88)
Ahmad Faqa ('94)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
FH hirðir stigin þrjú! Jóhann Ingi flautar til leiksloka við mikinn fögnuð stuðningsmanna FH.

FH-ingar vinna gífurlega sterkan 2-0 sigur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Breiðabliks. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
95. mín Gult spjald: Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)
Höskuldur grípur í kjölfarið í Faqa og lætur nokkur vel valin orð falla, ósáttur við framkomu FHingsins.
94. mín Gult spjald: Ahmad Faqa (FH)
Fagnar í andlitið á Kidda Og uppsker verðskuldað gult spjald fyrir.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
90. mín
5 mínútum bætt við! Blikar sækja og sækja, fáum við dramatík?
90. mín
Tobias Thomsen með skalla úr teignum en yfir fer boltinn.
88. mín
Góð varsla! Höskuldur tekur spyrnuna í markmannshornið, nær miklum krafti en Rosenörn sér við honum og ver vel.
88. mín Gult spjald: Grétar Snær Gunnarsson (FH)
Blikar fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað Grétar Snær brýtur af sér á D-boganum.
87. mín
Inn:Jóhann Ægir Arnarsson (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
87. mín
VARIÐ Á LÍNU! Anton Logi með fyrirgjöf sem fer af varnarmanni, boltinn á leiðinni í netið en Böðvar ver meistaralega á línu. Böddi löpp stendur undir nafni.
84. mín
Tobias Thomsen með skalla langt framhjá marki heimamanna.
82. mín
Inn:Dagur Traustason (FH) Út:Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
82. mín
Þarna munaði litlu! Valgeir Valgeirs með skot utarlega úr teignum rétt framhjá marki FH!
81. mín
Gestirnir fá hornspyrnu en FH-ingar skalla frá.
79. mín
Áhorfendatölur! Frábær mæting í Krikann, 1467 manns létu sjá sig.
77. mín
Inn:Einar Karl Ingvarsson (FH) Út:Björn Daníel Sverrisson (FH)
Björn Daníel fær mikið lófatak þegar hann gengur af velli.
74. mín
Úlfur Ágúst með skot eftir góðan undirbúning Kjartans Kára en Anton ver örugglega marki gestanna.
67. mín MARK!
Sigurður Bjartur Hallsson (FH)
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
FH TVÖFALDAR FORYSTUNA! Kjartan Kári með fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og boltinn dettur fyrir Sigurð Bjart sem skorar af stuttu færi!
Róðurinn þyngist fyrir þá grænklæddu.
65. mín
Inn:Tobias Thomsen (Breiðablik) Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Blikar gera þrefalda breytingu
65. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Viktor Elmar Gautason (Breiðablik)
Batakveðjur á Viktor!
65. mín
Inn:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik) Út:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
64. mín
Viktor Elmar meiddur í öxlinni og þarfnast aðhlynningar, Blikar manni færri þessa stundina.
62. mín
Léttleikandi FH-ingar Sigurður Bjartur og Kjartan Kári með frábæran samleik, Kjartan fer í skotið en boltinn í varnarmann Blika og þaðan í hornspyrnu.
59. mín
Kristófer Ingi með brasilíska takta, rennir boltanum svo á Óla Val sem tekur skotið en boltinn í varnarmann FH og hættan líður hjá.
57. mín Gult spjald: Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Fer harkalega í Höskuld og fær að líta gula spjaldið.
56. mín
Höskuldur Gunnlaugs tekur skot úr aukaspyrnu rúmum 30 metrum frá marki, skotið hafnar í varnarvegg FH.
55. mín
Sveppur er víða
49. mín
SLÁIN! Kristófer Ingi sneiðir boltann í þverslánna.
Blikar byrja seinni hálfleikinn af krafti!
48. mín
Breiðablik fær hornspyrnu en FH-ingar skalla frá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað!
45. mín
Hálfleikur
FH leiðir í hálfleik! Jóhann Ingi flautar til hálfleiks skömmu eftir mark heimamanna. Jafnræði með liðunum hér í þessum fyrri hálfleik en FH-ingar leiða!
45. mín MARK!
Björn Daníel Sverrisson (FH)
Stoðsending: Kjartan Kári Halldórsson
Á BESTA TÍMA! Kjartan Kári með frábæra fyrirgjöf á Björn Daníel sem stangar boltann í netið af nærsvæðinu!

FH-ingar brjóta ísinn rétt fyrir hálfleik!
44. mín
Sigurður Bjartur með viðstöðulaust skot sem fer framhjá marki Breiðabliks.
43. mín
Arnór Gauti með skalla af stuttu færi sem fer rétt framhjá marki FH.
40. mín Gult spjald: Arnór Gauti Jónsson (Breiðablik)
Arnór Gauti fer í bókina góðu eftir brot á miðjum velli.
38. mín
Ágúst Orri með góða takta og lætur vaða en Rosenörn ver örugglega í marki FH.
32. mín
Aftur fær FH hornspyrnu en aftur skalla Blikar frá.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
FH fær hornspyrnu en Ásgeir Helgi skallar frá.
27. mín
KJARTAN KÁRI! Kjartan Kári með bylmingsskot sem fer rétt framhjá marki gestanna.
Stuðningsmenn FH byrjuðu að fagna, héldu að boltinn syngi í netinu, en svo var ekki.
Þarna skall hurð nærri hælum!
23. mín Gult spjald: Halldór Árnason (Breiðablik)
Smá tuð Dóri fær gult spjald fyrir tuð. Vildi líklegast sjá Björn Daníel fara í bókina góðu fyrir peysutog á Antoni.
23. mín
Björn Daníel hangir í Antoni Loga en sleppur með tiltal.
21. mín
Fyrsta marktilraun gestanna Blikar fá hornspyrnu, boltinn dettur fyrir Arnór Gauta sem tekur skot hátt yfir mark FH.
17. mín
Ahmad Faqa missir boltann á hættulegum stað en Blikar ná ekki að refsa.
15. mín
Heimamenn fá hornspyrnu en ná ekki að nýta hana.
7. mín
Uppstilling liðanna Breiðablik
Anton Ari (m)
Valgeir - Ásgeir Helgi - Viktor Örn - Viktor Elmar
Höskuldur (f) - Arnór Gauti - Anton Logi
Ágúst Orri - Óli Valur - Kristófer Ingi

FH
Kjartan Kári - Úlfur Ágúst - Sigurður Bjartur
Baldur Kári - Tómas Orri - Björn Daníel (f)
Böðvar - Grétar Snær - Faqa - Birkir Valur
Rosenörn (m)
6. mín
Sigurður Bjartur með skalla rétt framhjá marki gestanna.
5. mín Gult spjald: Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Kristófer Ingi stimplar sig inn Fer í hressilega tæklingu á Birki Val út við hornfána og fær réttilega að líta gula spjaldið.

Óþarfa tækling hjá Kristóferi, kannski einhver innbyrgð reiði, hver veit?
4. mín
Breiðablik fær fyrstu hornspyrnu leiksins, Baldur Kári hreinsar frá.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað Breiðablik byrjar með boltann!
Fyrir leik
Inn:Viktor Elmar Gautason (Breiðablik) Út:Andri Rafn Yeoman (Breiðablik)
Andri Rafn meiddist í upphitun Andri Rafn Yeoman meiddist í baki í upphitun og getur því ekki spilað hér í kvöld.

Viktor Elmar Gautason byrjar í stað Andra. Þessi spennandi leikmaður spilar óvænt sinn fyrsta leik í Bestu-deildinni í byrjunarliði.
Fyrir leik
Styttist í leik! Liðin ganga til vallar og Frikki Dór í græjunum, allt eins og það á að vera.
Fyrir leik
Andri Rafn Yeoman meiddist í upphitun Andri Rafn Yeoman dregur sig úr upphitun Breiðabliks. Virðist vera bakið sem hrjáir hann. Andri verður því líklegast ekki í byrjunarliði Breiðabliks hér í kvöld.
Sýnist Viktor Elmar Gautason vera að gera sig tilbúinn í stað Andra.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Fyrir leik
Tvöfaldur séns FH/jafntefli er í boði á stuðlinum 1.72 á Epic, girnilegt á Kaplakrika. Breiðablik hafa unnið einn leik síðan 2019 á útivelli gegn FH.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Óbreytt hjá FH, fjórar breytingar Blika Heimir Guðjónsson þjálfari FH heldur byrjunarliði sínu óbreyttu frá 1-3 útisigri gegn ÍA.

Halldór Árnason þjálfari Breiðabliks gerir fjórar breytingar á byrjunarliði sínu frá 2-1 sigri gegn Val.

Inn í liðið koma þeir Arnór Gauti Jónsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Ágúst Orri Þorsteinsson og fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson.

Þeir Viktor Karl, Kristinn Steindórsson og Tobias Thomsen víkja úr byrjunarliði Breiðabliks og taka sér sæti á bekknum. Aron Bjarnason er utan hóps.

Fyrir leik
Spáir óvæntum úrslitum Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður er spámaður vikunnar, hann spáir óvæntum úrslitum í Krikanum í kvöld.

FH 2 - 1 Breiðablik
Sigurleikir FH til þessa í deildinni hafa komið á grasi og ég spái því að í kjölfar afar góðs sigurs á ÍA í síðustu umferð komi óvæntustu úrslit umferðarinnar á Kaplakrikavelli. 2-1 FH sigur, minn maður Emil Pálsson er búinn að greina Íslandsmeistarana fram og til baka, finnur leiðina að sigri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
FH hafði betur kvennamegin FH - Breiðablik fór fram í Bestu-deild kvenna síðastliðinn föstudag. FH fór þar með sigur af hólmi eftir að hafa lent 0-1 undir. Spurning hvort það sama verði uppi á teningnum hér í Krikanum í kvöld.

FH 2 - 1 Breiðablik
0-1 Samantha Rose Smith ('6 )
1-1 Maya Lauren Hansen ('10 )
2-1 Ída Marín Hermannsdóttir ('31 )
Lestu um leikinn

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
FH-ingar að ná áttum Eftir slaka byrjun á tímabilinu er útlitið í Hafnarfirði aðeins bjartara. Liðið hefur unnið tvo af síðustu þremur leikjum sínum.

FH 3-0 Valur
Víkingur R. 3-1 FH
ÍA 1-3 FH

FH er þó enn í fallsæti með sjö stig. Með sigri í dag getur liðið híft sig upp í sjöunda sæti.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
Blikar geta komist á toppinn Með sigri í dag getur Breiðablik endurheimt stöðu sína á toppi deildarinnar.

Breiðablik vann sterkan sigur í Kaplakrika í fyrra. Þar á undan höfðu síðustu fimm heimsóknir Blika í Krikann skilað aðeins tveimur stigum af 15 mögulegum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fyrir leik
Kaplakriki heilsar! Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Kaplakrika þar sem FH tekur á móti Breiðablik í lokaleik 8. umferðar Bestu-deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson ('65)
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('65)
30. Andri Rafn Yeoman ('0)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
8. Viktor Karl Einarsson ('65)
10. Kristinn Steindórsson ('65)
24. Viktor Elmar Gautason ('0) ('65)
31. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
38. Birkir Þorsteinsson
38. Maríus Warén
39. Breki Freyr Ágústsson
77. Tobias Thomsen ('65)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason

Gul spjöld:
Kristófer Ingi Kristinsson ('5)
Halldór Árnason ('23)
Arnór Gauti Jónsson ('40)
Höskuldur Gunnlaugsson ('95)

Rauð spjöld: