Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
ÍA
ÍA
Besta-deild karla
ELKEM völlurinn
0 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 140' Alex Freyr Hilmarsson0 - 255' Sverrir Páll Hjaltested0 - 384' Sverrir Páll Hjaltested
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Yfirburðir Eyjamanna á Skaganum

Hvað réði úrslitum?

Eyjamenn voru klárlega betri aðilinn í leiknum og höfðu yfirhöndina nánast allan tímann. Fyrir utan stuttan kafla í upphafi seinni hálfleiks, þar sem Skagamenn sýndu aðeins líf, stjórnuðu heimamenn gangi leiksins frá upphafi til enda. Skagamenn áttu afar erfitt uppdráttar og náðu einungis að skapa eitt raunverulegt færi – þegar Gísli Laxdal átti viðstöðulaust skot af stuttu færi sem Marcel greip örugglega. Eyjamenn voru með yfirburði á öllum sviðum leiksins – í vörn, á miðju og í sókn. Flestir, ef ekki allir, skiluðu góðri frammistöðu og liðið virkaði vel skipulagt og kraftmikið í öllum sínum aðgerðum.

Bestu leikmenn

1. Sverrir Páll Hjaltested

Var hreint út frábær í þessum leik og það er fyrir utan þessi tvö mörk sem hann skoraði hér í kvöld. Ógnaði marki Skagamanna stöðugt, hélt boltanum vel, vann aukaspyrnur og átti að fá víti. Fyrra markið hans var frábært sem og seinna markið sem hann afgreiðir virkilega vel eftir vandræðagang í vörn ÍA.

2. Vicente Valor

Kom til baka eftir meiðsli og sýndi í kvöld hversu mikilvægur hann er fyrir miðjuna hjá ÍBV. Hann stjórnaði miðjuspili liðsins af öryggi, tengdi vörn og sókn með góðum sendingum og var sívinnandi – virtist vera alls staðar á vellinum. Auk þess átti hann nokkrar góðar fyrirgjafir og hornspyrnur sem sköpuðu hættu. Hann kórónaði sína frammistöðu með stoðsendingu á Alex Frey, sem skoraði fyrsta mark leiksins og kom ÍBV yfir.

Atvikið

Atvik leiksins var án efa fyrsta mark Sverris, og það af dýrari gerðinni. Boltinn barst hratt frá marki ÍBV og Sverrir tók við honum rétt fyrir ofan miðju. Hann sýndi frábæra sjón og snögga ákvarðanatöku þegar hann sá að Árni, markvörður ÍA, var illa staðsettur – og með laglegri spyrnu sendi hann boltann yfir hann og beint í netið. Glæsilegt einstaklingsframtak sem slökkti á leiknum og kom ÍBV í 2-0.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV fer upp í sjötta sæti og býr til smá bil á milli þeirra og liðin í neðsta sæti. Tveir flottir sigrar í röð hjá Eyjamönnum sem sanna það að liðið getur alveg skorað án Omars og Olivers. Fyrir Skagamenn þýða úrslitin einfaldlega að liðið er á sama stað og fyrir leik í tólfta og neðsta sæti deildarinnar. ÍA nær ekki að fylgja eftir frábærum sigri á móti Breiðablik í síðustu umferð.

Vondur dagur

Haukur Andri Haraldsson átti í basli í leiknum í kvöld og náði sjaldan að setja mark sitt á leikinn. Hann átti erfitt með að tengja við liðsfélaga sína, missti boltann ítrekað og sendingar hans í kvöld voru flestar lélagar. Þrátt fyrir ungan aldur en Haraldur er einungis 19 ára verður að segjast að frammistaðan í kvöld var undir væntingum.

Dómarinn - 5

Fyrir utan tvo kolranga dóma þá var leikurinn vel dæmdur hjá Arnari. Engin gul spjöld í leiknum og leyfði honum að fljóta vel sem var frábært fyrir leikinn. En þessi tvö stóru atvik draga einkuninna niður. Fyrsta atvikið var þegar Árni fellir Sverri inn í teig en ekkert víti dæmt. Atvik númer tvö er þegar Viktor Jónsson skorar glæsilegt mark sem er ranglega dæmt af vegna rangstöðu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.