SKÝRSLAN: Jafntefli í leik Tindastóls og Vals á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Vals konur voru klárlega meira með boltinn og fengu aðeins fleiri færi í dag en það er ekki hægt að seigja að þær hafi verið miklu betri. Tindastóls stelpurnar voru mjög fínar og áttu oft fína kafla.
Bestu leikmenn
1. Elísa Bríet Björnsdóttir
Elísa var mjög góð í dag, flott pressa og alvöru þruma þetta mark frá henni
2. Ragnheiður Þórun Jónsdóttir
Ragnheiður var kröftug í dag, skapaði mikið fyrir Vals liðið á hægri kantinum en uppiskar samt ekki með marki eða stoðsendingu
Atvikið
Það er nú ekki hægt að seigja að það hafi verið eithvað eftirtakanlegt atvik í dag, þá kannski bara seinna mark Vals, þaðan sem ég sat leit boltinn út fyrir að hafa ekki farið inn en í endursýningu sér maður að boltinn fór klárlega inn
Hvað þýða úrslitin?
Tindastóll er í 8 sæti eftir þennan leik og geta verið sáttar með þessa framistöðu og taka hana inn í bikar leikinn á mánudaginn. Valur er í 5 sæti og hafa ekki unnið í síðustu 5 leikjum, sem er vægast sagt óvænt meðan við mannskapinn þeirra.
Vondur dagur
Bryndís Eiríksdóttir átti 2 slæm mistök í dag, og í eitt skiptið endaði það í marki fyrir Stólana. Hún sendi í tvígang hræðilega til baka og Stólarnir stálu sendingunni og í eitt skipti skoraði Makala Woods. Bryndís reyndar gerði smá upp fyrir þetta með að skora fyrir Vals liðið
Dómarinn - 5
Lítið hægt að kvarta yfir dómaranum í dag, dæmdi ekki mikið og því flott flæði á leiknum



