Newcastle vill Elanga - Liverpool leggur fram nýtt tilboð í Wirtz - Höjlund til Inter?
Breiðablik
6
0
FHL
Samantha Rose Smith '14 1-0
Agla María Albertsdóttir '45 2-0
Barbára Sól Gísladóttir '50 3-0
Birta Georgsdóttir '52 4-0
Andrea Rut Bjarnadóttir '55 5-0
Berglind Björg Þorvaldsdóttir '60 6-0
07.06.2025  -  14:00
Kópavogsvöllur
Besta-deild kvenna
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Áhorfendur: 112 - Lögreglumál hvað það er fámennt
Byrjunarlið:
12. Telma Ívarsdóttir (m)
4. Elín Helena Karlsdóttir
5. Samantha Rose Smith ('62)
7. Agla María Albertsdóttir (f)
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('74)
11. Andrea Rut Bjarnadóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir ('40)
22. Heiðdís Lillýardóttir
23. Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('62)
27. Barbára Sól Gísladóttir
28. Birta Georgsdóttir ('74)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Katherine Devine
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('62)
16. Írena Héðinsdóttir Gonzalez ('74)
21. Guðrún Þórarinsdóttir ('74)
24. Helga Rut Einarsdóttir
26. Líf Joostdóttir van Bemmel ('40)
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('62)
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Ana Victoria Cate
Bjarki Sigmundsson
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Valdimar Valdimarsson
Herdís Halla Guðbjartsdóttir
Erna Katrín Óladóttir
Eiríkur Raphael Elvy

Gul spjöld:
Líf Joostdóttir van Bemmel ('41)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þessu er lokið Breiðablik með 6-0 stórsigur á FHL hér á Kópavogsvelli í dag.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma - Ása með skot Hrafnhildur Ása nær skoti í átt að marki FHL en boltinn fer í hliðarnetið.
90. mín
Hornspyrna frá Öglu Maríu Boltinn berst á fjærstöngina þar sem hann fer af höfðinu á Elínu Helenu og Keelan nær að handsama boltann að lokum.
86. mín
Hrafnhildur Ása með geggjaðan sprett! Keelan er að halda liðinu frá því að fá á sig 20 mörk. Ása kemst í gegnum vörn FHL á spólinu en Keelan mætir út og étur hana.
81. mín
Rósey hendir sér fyrir skot Edith gerir vel að komast í flott skotfæri en Rósey hendir sér niður og fyrir skotið.
77. mín
Aukaspyrna fyrir Breiðablik Boltinn berst á Andreu sem nær ekki skoti og eftir klafs kemur boltinn aftur inn á teiginn þar sem Hrafnhildur Ása á skot framhjá marki FHL.
77. mín
Inn:Sóldís Tinna Eiríksdóttir (FHL) Út:Björg Gunnlaugsdóttir (FHL)
Björg meidd og getur ekki haldið leik áfram
74. mín
Inn:Guðrún Þórarinsdóttir (Breiðablik) Út:Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
74. mín
Inn:Írena Héðinsdóttir Gonzalez (Breiðablik) Út:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Breiðablik)
71. mín
Andrea Rut í dauðafæri! Ótrúlegt að staðan sé ekki 7-0. Keelan Terrell er að halda liðinu inn í leiknum, sem er eiginlega ótrúlegt að segja þegar liðið er að tapa 6-0.
66. mín
Inn:Ásdís Hvönn Jónsdóttir (FHL) Út:María Björg Fjölnisdóttir (FHL)
Enginn leikmaður númer 19 en ég ætla að giska á að Ásdís Hvönn sé mögulega í einu númeri ofar en hún er skráð á skýrslu.
64. mín
Ása strax með skot Hrafnhildur Ása með skot með vinstri sem Keelan nær að handsama.
62. mín
Inn:Edith Kristín Kristjánsdóttir (Breiðablik) Út:Samantha Rose Smith (Breiðablik)
62. mín
Inn:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Út:Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
60. mín MARK!
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Birta Georgsdóttir
Ekkert eðlilega vel gert hjá Birtu Birta fær flotta sendingu inn fyrir og nær að taka boltann flott niður. Hún sendir svo boltann til hliðar á Berglindi sem setur boltann af öryggi í markið. Hvað er að gerast hérna?
56. mín
Inn:Christa Björg Andrésdóttir (FHL) Út:Calliste Brookshire (FHL)
56. mín
Inn:Íris Vala Ragnarsdóttir (FHL) Út:Viktoría Einarsdóttir (FHL)
55. mín MARK!
Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Heiða Ragney Viðarsdóttir
FLÓÐGÁTTIRNAR ERU OPNAR STUUUUURLAAAÐ SKOT FRÁ ANDREU. Vá vá vá.

Heiða á stutta sendingu á Andreu sem setur boltann á vinstri og krullar hann ekkert eðlilega fallega eftir grasinu og framhjá Keelan í markinu.

Blikakonur eru að slátra gestunum hér á nokkrum mínútum.
52. mín MARK!
Birta Georgsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Samantha Rose Smith
MÖRKIN LEKA INN Samantha kemur boltanum á Birta sem bombar boltanum á milli fóta Keelan og Breiðablik er komið í 4-0. Eru flóðgáttirnar að opnast á Kópavogsvelli?
50. mín MARK!
Barbára Sól Gísladóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Berglind Björg Þorvaldsdóttir
3-0 BREIÐABLIK Berglind Björg kemur boltanum af harðfylgi á Barbáru sem á glæsilegt skot í nærhornið.
49. mín
Aukaspyrnan gerir ekkert
48. mín Gult spjald: Alexia Marin Czerwien (FHL)
Togar í Sammy Samantha kemst framhjá Alexia og Alexia á engra annarra kosta völ en að toga á Sammy rétt fyrir utan teig og uppsker hún gult spjald að launum.
47. mín
Keelan næstum því búin að missa boltann inn Andrea Rut á flotta skot/fyrirgjöf utan af kanti sem svífur hátt í átt að marki FHL. Keelan næstum því búin að missa þessa auðveldu fyrirgjöf í gegnum hendurnar á sér og inn í markið.
46. mín
Leikurinn farinn í gang að nýju Blikar byrja seinni hálfleikinn á því að sækja.
46. mín
Hálfleikur
Gleymdi að skrifa að það væri hálfleikur áðan Afsakið þetta, undirritaður svolítiið utan við sig.
45. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Birta Georgsdóttir
ÞARNA KOM ÞAÐ Blikar hafa verið að hóta þessu. Andrea Rut kemst upp hægra megin og á fyrirgjöf inn á teiginn sem Birta nær. Keelan ver skot Birtu en Agla María er fyrst að átta sig og nær að skora framhjá Keelan eftir að hafa hirt frákastið.
45. mín
+2 Samantha fær sendingu frá Heiðu og kemst framhjá einum varnarmanni FHL áður en hún á skot yfir markið.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbót Uppbótartíminn hér í fyrri hálfleik á Kópavogsvelli er að minnsta kosti þrjár mínútur.
45. mín
Birta Georgs með skot framhjá Heiða Ragney á fína sendingu inn fyrir vörn FHL á Birtu Georgs en skot Birtu með vinstri er fast og framhjá marki FHL.
43. mín
Hornspyrna sem Keelan grípur Agla María með enn eina hornspyrnuna frá vinstri en Keelan vel á verði og grípur þessa spyrnu þótt Heiðdís reyni að gera atlögu að boltanum.
41. mín Gult spjald: Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik)
Ooooog Líf er komin með gult spjald Líf lendir á eftir Björgu og þarf að toga aðeins í hana til að ná henni. Hárrétt gult spjald.
40. mín
Inn:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik) Út:Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Jæja, eða ekki Krstín Dís getur ekki haldið leik áfram og Líf Joostsdóttir, sem er fædd 2007, kemur inn á fyrir hana.
39. mín
ÞVÍLÍK VARSLA HJÁ KEELAN Berglind Björg fær þarna geggjaða sendingu inn á teiginn sem hún tekur niður en Berglind er of lengi að athafna sig og Keelan gerir vel að verja frá henni.
37. mín
Berglind næstum því! Barbára Sól með glæsilega fyrirgjöf inn á teig FHL og hún virtist hafa miðað fullkomlega á Berglindi Björgu en Berglind nær ekki að setja hausinn í boltann.
36. mín
Blikar sterkari aðilinn FHL komast hvorki lönd né strönd með boltann þessar mínúturnar og Blikar hafa átt nokkur hálffæri.
33. mín
Kristín staðin á fætur og leikurinn farinn í gang Hún virðist hafa svarað spurningunni minni og ætlar að halda áfram. Sé ekki að hún stingi við svo þetta hlýtur að vera eitthvað annað en fæturnir sem er að plaga hana.
31. mín
Getur Kristín Dís haldið leik áfram? Kristín Dís situr á miðjum vellinum og þarf aðhlynningu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Agla María með skot af varnarmanni Keelan ekki í neinum vandræðum með að handsama þetta skot.
24. mín
Agla María kallar eftir víti Lítið um færi beggja megin síðustu mínútur. Kemur þá ekki ein fín fyrirgjöf frá Andreu Rut sýndist mér og Agla María fellur við í teignum. Held að þetta tilkall hennar til vítaspyrnu hafi ekki átt rétt á sér.
18. mín
FHL að komast í fínar stöður Það er ekki allur vindur úr FHL þótt þær séu lentar undir. Calliste á góðan sprett upp vinstri kantinn en sending hennar á Björgu ratar ekki rétta leið. Blikar ná þó ekki að hreinsa lengra en á Alexia Marin sem tekur þrumuskot yfir markið.
14. mín MARK!
Samantha Rose Smith (Breiðablik)
Stoðsending: Kristín Dís Árnadóttir
Samantha Smith kemur Blikum yfir Sammy á flottan sprett upp hægri kantinn eftir sendingu frá Kristínu Dís og endar Sammy á því að þruma boltanum með vinstri framhjá Keelan og í markið.

Glæsilegt mark hjá þessum fyrrum leikmanni FHL!
12. mín
Horn fyrir Blika Agla María tekur hornspyrnu frá vinstri sem hún skrúfar inn á teiginn. Þar rís Sammy Smith kvenna hæst en skallinn hennar er framhjá markinu.
8. mín
Björg aftur Nú fær Björg boltann fyrir utan teig í fínu skotfæri. Kemur skotinu framhjá Elínu en framhjá markinu sömuleiðis.
6. mín
FHL ógna FHL komast upp hægri kantinn þar sem Björg á góðan sprett. Hún reynir fyrirgjöf en Hope hefur enga von um að ná þessari fyrirgjöf.
2. mín
Berglind Björg strax í færi Agla María með góðan samleik við Birtu Georgs og á fyrirgjöf sem Berglind nær rétt svo til en boltinn berst af Berglindi á Keelan.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! FHL konur sparka leiknum í gang og sækja í átt að Fífunni á meðan að heimakonur sækja í átt að Sporthúsinu.
Fyrir leik
ÞETTA FER AÐ BRESTA Á Liðin ganga hér inn á völlinn og þetta fer að byrja.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Nik gerir þrjár breytingar frá tapinu gegn FH. Björgvin Karl gerir tvær breytingar frá stórtapinu gegn Þrótti.

Nik tekur þær Hrafnhildi Ásu, Karítas Tómasdóttur og Helgu Rut úr liðinu og inn koma Andrea Rut, Barbára Sól og Birta Georgsdóttir.

Kalli tekur Mikaelu Nótt tilneyddur úr liðinu enda er hún í eigu Breiðabliks og einnig tekur hann Ólínu Helgu úr liðinu. Inn koma Anna Caitlin og Viktoría Einarsdóttir.
Fyrir leik
Breiðablik hefur skorað mest í deildinni eða 29 mörk í 7 leikjum. FHL hefur fengið á sig flest mörk í deildinni ásamt Víking eða 18 talsins. Að því sögðu er stuðullinn 2,10 á Epic á -4,5 í forgjöf á Breiðablik ansi áhugaverður.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Gengi FHL Stutta sagan er sú að FHL er búið að tapa öllum 7 leikjum sínum í deildinni til þessa. Langa sagan er samt sú að liðið hefur tapað 2 leikjum með 1 marki, skorað 3 mörk og er alltaf að verða líklegra til að sækja stig í pokann góða.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi Breiðabliks Breiðablik var ekki búið að tapa leik í deildinni þegar liðið mætti í Kaplakrika og tapaði 2-1 fyrir FH í síðustu umferð. Liðið hafði þar á undan unnið 5 leiki og gert 1 jafntefli en Breiðabliksliðið er búið að skora langflest mörk í deildinni eða 29 talsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þriðja liðið Stefán Ragnar Guðlaugsson er dómari á Kópavogsvelli í dag og honum til aðstoðar eru þeir Ásgeir Viktorsson og Steinar Stephensen. Þá er Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson varadómari leiksins.
Fyrir leik
Vigdís Lilja spáir í spilin Vigdís Lilja Kristjánsdótir, leikmaður Anderlecht í Belgíu og U23 landsliðsins, spáir í leiki 8. umferðar.

Breiðablik 4 - 0 FHL

Blikastelpurnar taka solid 4-0 sigur, Berglind og Birta skora sitthvort markið í fyrri hálfleik og Sammy og Ása skora í seinni.


Fyrir leik
Blautur leikdagur! Góðan og gleðilegan leikdag kæru lesendur. Það er Hilmar Jökull sem heilsar ykkur frá blautum Kópavogsvelli, þar sem heimakonur í Breiðabliki taka á móti nýliðum FHL. Austurlendingar sitja sem fastast á botni Bestu-deildarinnar með 0 stig eftir 7 leiki.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Keelan Terrell (m)
4. Rósey Björgvinsdóttir (f)
6. María Björg Fjölnisdóttir ('66)
8. Katrín Edda Jónsdóttir
10. Anna Caitlin Hurley
13. Hope Santaniello
14. Alexia Marin Czerwien
15. Björg Gunnlaugsdóttir ('77)
17. Viktoría Einarsdóttir ('56)
22. Hrafnhildur Eik Reimarsdóttir
24. Calliste Brookshire ('56)
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Embla Fönn Jónsdóttir (m)
3. Íris Vala Ragnarsdóttir ('56)
11. Christa Björg Andrésdóttir ('56)
18. Ásdís Hvönn Jónsdóttir ('66)
30. Sóldís Tinna Eiríksdóttir ('77)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Björgvin Karl Gunnarsson (Þ)
Ljubisa Radovanovic (Þ)
Hjörvar Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Alexia Marin Czerwien ('48)

Rauð spjöld: