Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
HK
3
0
Fjölnir
Brynjar Snær Pálsson '18 1-0
Dagur Orri Garðarsson '20 2-0
Dagur Orri Garðarsson '43 , misnotað víti 2-0
Birnir Breki Burknason '89 3-0
13.06.2025  -  19:15
Kórinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Kaldara inni en úti
Dómari: Guðni Páll Kristjánsson
Áhorfendur: 280
Maður leiksins: Brynjar Snær Pálsson (HK)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
3. Ívar Orri Gissurarson ('8)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
7. Dagur Ingi Axelsson ('75)
9. Jóhann Þór Arnarsson ('81)
11. Dagur Orri Garðarsson ('81)
14. Brynjar Snær Pálsson
15. Haukur Leifur Eiríksson
16. Eiður Atli Rúnarsson
21. Ívar Örn Jónsson (f)
28. Tumi Þorvarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
2. Kristján Snær Frostason ('8)
10. Birnir Breki Burknason ('75)
18. Atli Arnarson
19. Atli Þór Gunnarsson ('81)
23. Rúrik Gunnarsson
33. Hákon Ingi Jónsson ('81)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Þjóðólfur Gunnarsson
Arnþór Ari Atlason
Birkir Örn Arnarsson
Halldór Geir Heiðarsson
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Hermann Hreiðarsson ('57)
Eiður Atli Rúnarsson ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið Guðni Páll flautar til leiksloka. Öruggur 3-0 sigur HK á mölbrotnum Fjölnismönnum.

Takk fyrir mig í kvöld.
95. mín
Guðni Páll er í rauninni bara að kvelja Fjölnismenn með því að vera ekki búin að flauta til leiksloka.
93. mín
Fjölnir Sigurjóns með fyrirgjöf inn á teiginn en hún er á engan og Óli grípur.
90. mín
Klukkan slær 90 hér í Kórnum. Uppbótartíminn er ekki gefinn upp en ég ætla gíska á svona 5.
89. mín MARK!
Birnir Breki Burknason (HK)
GAME OVER!! Brynjar Snær fær boltann og keyrir inn á teig. Brynjar Snær leggur boltann inn á hættusvæðið þar sem Birnir mætir og neglir boltanum í netið.
85. mín
ÉG SÁ ÞENNAN INNI!! Tumi fær boltann inn á teiginn og á skot sem fer í hliðarnetið

Dauðafæriii
83. mín Gult spjald: Eiður Atli Rúnarsson (HK)
81. mín
Inn:Hákon Ingi Jónsson (HK) Út:Jóhann Þór Arnarsson (HK)
81. mín
Inn:Atli Þór Gunnarsson (HK) Út:Dagur Orri Garðarsson (HK)
80. mín
HK nálægt því að bæta við!1

Birnir Breki fær boltann inn á teig og á skot sem Snorri ver. Dagur nær til boltans en nær ekki að setja boltann í netið og Snorri ver vel í tvígang.
77. mín
Það er ekkert að frétta HK ekkert að stressa sig á stöðunni enda 2-0 yfir. Fjölnismenn hafa ekkert gert sóknarlega.
75. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (HK) Út:Dagur Ingi Axelsson (HK)
70. mín
Inn:Þorkell Kári Jóhannsson (Fjölnir) Út:Orri Þórhallsson (Fjölnir)
67. mín
Dagur Orri fær boltann við vítateigslínuna og á skot sem Snorri ver.
66. mín
Inn:Fjölnir Sigurjónsson (Fjölnir) Út:Árni Elvar Árnason (Fjölnir)
64. mín
Menn eru búnir að liggja rosalega mikið í jörðinni og leikurinn hefur verið rosalega mikið stopp.
58. mín
Inn:Rafael Máni Þrastarson (Fjölnir) Út:Einar Örn Harðarson (Fjölnir)
58. mín
Inn:Kristófer Dagur Arnarsson (Fjölnir) Út:Bjarni Þór Hafstein (Fjölnir)
58. mín
Inn:Óskar Dagur Jónasson (Fjölnir) Út:Árni Steinn Sigursteinsson (Fjölnir)
57. mín Gult spjald: Hermann Hreiðarsson (HK)
Hemmi er spjaldaður fyrir tuð. Hefur hugsanlega vilja fá eitthvað þegar Jóhann Árni keyrði inn á teiginn og féll.

Það var ekkert í þessu.
57. mín
Jóhann Örn fær boltann og keyrir inn á teiginn en Þengill mætir og lokar vel á Jóhann.
55. mín
HK Á BARA SKORA ÞARNA!! Dagur Orri þræðir boltann frábærlega í gegn á Jóhann Þór sem tók frábært hlaup inn fyrir. Jóhann Þór er aleinn gegn Snorra og á skot sem Snorr lokar á.
54. mín
Eiður stendur á lappir og leikurinn farinn í gang aftur.
52. mín
Eiður Aron liggur eftir og þarf aðhlyningu.
49. mín
Kristján Snær fær boltann og fer inn á völlinn. Kristján á skot sem fer framhjá markinu.
46. mín
Jóhann Þór sparkar síðari hálfleiknum af stað.
45. mín
Frábær þjónusta í kórnum Ég ætla nýta tækifærið í hálfleik og þakka fyrir mig til HK inga. Alvöru þjónusta á drykk og burger.

Til fyrirmyndar.
45. mín
Hálfleikur
Guðni flautar til hálfleiks. HK leiðir inn í hálfleikinn með tveimur mörkum.

Tökum okkur korter.
45. mín
Brynjar Snær fær boltann og á gott skot sem Snorri blakar í hornspyrnu.

Ívar tekur spyrnuna en Fjölismenn koma boltanum í burtu.
45. mín
Fjölnismenn með útfærslu af aukaspyrnu. Bjarni tekur spyrnuna stutt og leggur boltann til hliðar á Einar Örn sem á skot beint á Ólaf.
43. mín Misnotað víti!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
Snorri Þór étur Dag Orra og ver þessa spyrnu.
42. mín Gult spjald: Daníel Ingvar Ingvarsson (Fjölnir)
42. mín
HK FÆR VÍTIII

Daníel Ingvar tekur Tuma niður inn á teignum og Guðni bendir á punktinn.
41. mín
Kristján Snær með fyrirgjöf frá vinstri sem Snorri grípur.

Rólegt í þessu.
36. mín
Fjölnir fær aukaspyrnu á fínum stað Bjarni með fínaspyrnu inn á fjær. Þenginn nær skallanum en boltinn beint í hendur Ólafs.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín
Fjölnir fær hornspyrnu Sme ekkert verður úr. Jóhann Þór og HK ingar keyra upp og Jóhann kemst upp að endamörkum en Brynjar Gauti setur boltann í hornspyrnu.
28. mín Gult spjald: Brynjar Gauti Guðjónsson (Fjölnir)
Hárrétt.
28. mín
Þorsteinn Aron setur boltann upp á Kristján sem keyrir af stað. Brynjar Gauti kemur á ferðinni og hamrar hann niður. HK heldur boltanum. Dagur Orri kemst inn á teig en HK ná ekki að gera sér mat úr þessu.
26. mín
Dagur Orri tekur spyrnuna en boltinn yfir.
25. mín Gult spjald: Snorri Þór Stefánsson (Fjölnir)
25. mín
Snorri Þór í skógarhlaup HK lyftir boltanum innfyrir á Brynjar sem fær boltann. Snorri Þór kemur út á móti og tekur Brynjar Snæ niður.

20. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
ÞAÐ ER BARA SVOLEIÐIS!! Dagur Orri fær boltann inn á teig Fjölnis og klárar færið vel framhjá Snorra.

2-0!
18. mín MARK!
Brynjar Snær Pálsson (HK)
Stoðsending: Tumi Þorvarsson
HK KOMIÐ YFIR!! Tumi Þorvarsson með sendingu inn á teiginn á Brynjar sem klárar vel.
17. mín
HK fær hornspyrnu Þorsteinn Aron fær boltann inn á teignum og nær til boltans en boltinn framhjá.
11. mín
Brynjar Gauti með skalla yfir Bjarni Þór tekur hornspyrnu frá vinstri og finnur kollinn á Brynjari sem skallar yfir markið.
11. mín
Fjölnir fær hornspyrnu
8. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (HK) Út:Ívar Orri Gissurarson (HK)
8. mín
HK undirbýr skiptingu Þetta virtist rosalega lítið, eina sem mér dettur í hug að Ívar Orri hafi misstígið sig eða fengið einhvern slínk.

6. mín
Ívar Orri fær boltann og sólar tvo og fellur og liggur eftir. Ívar þarf aðhlyningu.
4. mín
FÆRI!! Tumi Þorvarsson fær langan bolta inn fyrir vörn Fjölnis en Brynjar Gauti verst vel og boltinn í hornspyrnu sem verður ekkert úr.
3. mín
Fjölnir fær hornspyrnu Ekkert verður úr henni.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað Fjölnir byrjar með boltann.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks Guðni Páll leiðir liðin til leiks. Rauð og hvít öll þessi ár er komið á fóninn, vallarþulur HK býður vallargesti velkomna og er byrjaður að kynna liðin.

Það er allt að verða til reiðu.
Fyrir leik
Arnþór Ari meiddur Samkvæmt mínum heimildarmönnum þá er Arnþór Atli ekki með í kvöld vegna meiðsla.
Fyrir leik
Leikurinn í beinni à Livey!

p>


Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru inni HK gerir tvær breytingar á sínu liði frá tapinu gegn HK. Aron Kristófer tekur út leikbann í kvöld og þá er Arnþór Ari Atlason ekki í leikmannahópi HK. Inn koma Ívar Örn Jónsson og Brynjar Snær Pálsson.

Fjölnismenn gera einnig tvær breytingart frá tapinu heima gegn Selfoss. Bjarni Þór Hafstein og Árni Elvar Árnason koma báðir inn. Rafael Máni Árni Þrastarson fær sér sæti á bekknum. Reynir Haraldsson tekur út leikbann í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Hvar er Arnþór Ari?
Fyrir leik
Guðjón Pétur hefur trú á Fjölnismönnum Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem eru framundan í áttundu umferð deildarinnar.

HK 1 - 2 Fjölnir (19:15 í kvöld)

Fjölnir hafa hikstað í byrjun móts og þó að ég sé á því að HK sé best mannaða lið deildarinnar með mikla reynslu og gæði í lykilmönnum, þá er þetta leikurinn sem Fjölnir bíta frá sér. Annars fer að hitna vel undir þjálfarateyminu. Fjölnir styrkti liðið sitt ekki nóg eftir að hafa misst lykilmenn í önnur lið og aðrir lykilmenn hættu. Bjarni Þór þarf að stíga upp og hann Daníel Ingvar leiða þennan óvænta sigur.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Fyrir leik
Bæði lið töpuðu í síðustu umferð HK fór til Grindavíkur og tapaði gegn Grindavík 2-1 í síðustu umferð. HK komst yfir í fyrri hálfleik og voru með leikinn nokkurnveigin í lás. Grindavík missti mann af velli þegar tuttugu mínútur voru eftir en tókst liðinu samt að tapa. Hálf ótrúlegt.

Fjölnismenn hafa ekkert getað á tímabilinu og eiga enþá eftir að vinna fótboltaleik og staðan er rosalega svört í Grafarvoginum. Fjölnir tapaði gegn Selfoss í síðustu umferð í algjörum sex stiga leik. Ná þeir að rétta af skútuna í kvöld? Ég er ekki svo viss.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Arnþór Ari skoraði mark HK í síðustu umferð.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fjölnismenn voru stigi frá því að fara upp um deild í fyrra en eiga enþá eftir að vinna fótboltaleik þegar sjö umferðir eru búnar af deildinni.
Fyrir leik
Leikir umferðarinnar Heil umferð í deildinni verður leikin í kvöld og á morgun

Í kvöld.
19:15 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Fjölnir (Kórinn)
19:15 ÍR-Leiknir R. (AutoCenter-völlurinn)

Á morgun
14:00 Selfoss-Þróttur R. (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Völsungur-Keflavík (PCC völlurinn Húsavík)
16:00 Njarðvík-Þór (JBÓ völlurinn)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar Guðni Páll Kristjánsson sér um að allt fari vel fram hér í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Smári Stefánsson og Rögnvaldur Þ Höskuldsson.

Jóhann Gunnarsson er eftirlitsmaður KSÍ í kvöld.

Fyrir leik
Stutt á milli í Lengjunni þessa daganna Góðan og gleðilegan föstudag og verið hjartanlega velkomin með okkur í Kórinn í efribyggðum Kópavogs þar sem HK tekur á móti Fjölni í Lengjudeild karla.

Flautum til leiks klukkan 19:15

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


8. umferð:

föstudagur 13. júní

Lengjudeild karla
19:15 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Fjölnir (Kórinn)
19:15 ÍR-Leiknir R. (AutoCenter-völlurinn)

laugardagur 14. júní
14:00 Selfoss-Þróttur R. (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Völsungur-Keflavík (PCC völlurinn Húsavík)
16:00 Njarðvík-Þór (JBÓ völlurinn)
Byrjunarlið:
13. Snorri Þór Stefánsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson (f)
4. Þengill Orrason
6. Árni Elvar Árnason ('66)
8. Orri Þórhallsson ('70)
9. Árni Steinn Sigursteinsson ('58)
11. Bjarni Þór Hafstein ('58)
14. Daníel Ingvar Ingvarsson
16. Mikael Breki Jörgensson
23. Hilmar Elís Hilmarsson
26. Einar Örn Harðarson ('58)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Sigurjón Daði Harðarson (m)
7. Óskar Dagur Jónasson ('58)
15. Fjölnir Sigurjónsson ('66)
18. Þorkell Kári Jóhannsson ('70)
45. Rafael Máni Þrastarson ('58)
77. Axel Freyr Ívarsson
88. Kristófer Dagur Arnarsson ('58)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Gunnar Már Guðmundsson (Þ)
Gunnar Sigurðsson
Kári Arnórsson
Kristinn Þór Guðmundsson
Margrét Ársælsdóttir

Gul spjöld:
Snorri Þór Stefánsson ('25)
Brynjar Gauti Guðjónsson ('28)
Daníel Ingvar Ingvarsson ('42)

Rauð spjöld: