Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
ÍR
1
0
Leiknir R.
Óðinn Bjarkason '16 1-0
13.06.2025  -  19:15
AutoCenter-völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Það er bongó!
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Maður leiksins: Óðinn Bjarkason (ÍR)
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
3. Breki Hólm Baldursson
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson ('74)
6. Kristján Atli Marteinsson
7. Óðinn Bjarkason
8. Alexander Kostic (f)
9. Bergvin Fannar Helgason
14. Víðir Freyr Ívarsson
16. Emil Nói Sigurhjartarson ('81)
23. Ágúst Unnar Kristinsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
15. Mikael Trausti Viðarsson
17. Óliver Andri Einarsson
21. Sigurður Orri Ingimarsson
22. Jónþór Atli Ingólfsson ('74)
25. Gundur Ellingsgaard Petersen ('81)
26. Sadew Vidusha R. A. Desapriya
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Halldór Arnarsson
Helgi Freyr Þorsteinsson
Ívan Óli Santos
Andri Magnús Eysteinsson
Arnór Sölvi Harðarson
Davíð Örvar Ólafsson

Gul spjöld:
Bergvin Fannar Helgason ('84)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍR klárar þetta! Risastór þrjú stig fyrir topplið deildarinnar. Sárt fyrir nágranna þeirra, Leiknismenn, sem höfðu unnið tvo í röð fyrir þennan leik.

Viðtöl og skýrsla koma inn á síðuna seinna í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
96. mín
Þarna voru ÍR-ingar í kringum mig mjög stressaðir, en þeir virðast vera að landa þessum sigri.
96. mín
VÁÁÁÁÁ! Leiknir fær aukaspyrnu. Boltinn inn á teig. Dettur fyrir Kára Stein og hann á skot sem fer rétt yfir markið. Hélt að þessi væri inni. Vilhelm horfði á eftir boltanum og var ekki viss.
93. mín Gult spjald: Dusan Brkovic (Leiknir R.)
Fyrir brot á miðjum vellinum. Það var sjö mínútum bætt við og það er enn nóg eftir af leiknum.
90. mín
Þetta hefði klárað leikinn Óðinn með skot rétt fram hjá!
89. mín
Inn:Gísli Alexander Ágústsson (Leiknir R.) Út:Jón Arnar Sigurðsson (Leiknir R.)
89. mín
Inn:Jóhann Kanfory Tjörvason (Leiknir R.) Út:Daði Bærings Halldórsson (Leiknir R.)
89. mín
Bergvin skallar frá og rangstaða dæmd í þokkabót.
89. mín
Leiknismenn eiga aukaspyrnu við miðjuna sem Shkelzen ætlar að smella inn á teiginn.
87. mín
Shkelzen með sendingu fyrir en Bergvin skallar frá markinu.
86. mín
Leiknir fær aukaspyrnu ekki svo langt frá teignum. Shkelzen gerir sig kláran í að gefa fyrir eða skjóta. Hann er alveg líklegur til að skjóta.
84. mín Gult spjald: Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Vildi fá innkast en fékk það ekki. Tuðaði svo og fékk spjald.
81. mín
Inn:Gundur Ellingsgaard Petersen (ÍR) Út:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
80. mín
Inn:Kári Steinn Hlífarsson (Leiknir R.) Út:Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)
80. mín
Það eru rúmar tíu mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Fáum við annað mark í þetta?
76. mín
Þorsteinn Emil tekur skot fyrir utan teig sem fer af varnarmanni og ratar á markið, en Vilhelm er vel á tánum og nær að verja.
74. mín
Inn:Jónþór Atli Ingólfsson (ÍR) Út:Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
Kristján Atli fer í miðvörðinn.
73. mín
Leiknismenn með veik köll eftir vítaspyrnu. Mjög lítið í þessu.
72. mín
Leiknismenn eru að hóta! Stórhættuleg sókn hjá Leikni! Daði Bærings í frábærri stöðu á teignum og nær skoti, en Kristján Atli nær að henda sér fyrir skotið. Það liggur mark í loftinu.
70. mín
Gústi búinn að fá nóg Gústi Gylfa ósáttur við þá ÍR-inga sem eru fyrir ofan fjölmiðlaboxið. Vill að Arnar Þór vísi þeim í burtu. ,,Ég nenni ekki að hafa þessa menn rífandi kjaft hérna," segir Gústi meðal annars.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
69. mín
DAUÐAFÆRI!! Róbert Quental með geggjaða fyrirgjöf og Dagur Ingi Hammer er í algjöru dauðafæri en einhvern veginn nær Vilhelm að verja. Þarna hélt ég að gestirnir væru að jafna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
67. mín
Emil Nói með hörkuskot sem Óli Íshólm ver en nær ekki að halda. ÍR-ingar næstum því búnir að ná frákastinu en markvörður Leiknismanna nær að handsama boltann í annarri tilraun.
66. mín
Bergvin fær boltann inn á teignum og tekur hann með sér, en tekur of langan tíma og Leiknismenn ná að koma sér fyrir.
63. mín
Vallarmet á þessari öld Það er geggjuð mæting á þennan leik; fullsetið í brekkunni og stúkan svo gott sem full líka.

Það er 1050 áhorfendur á leiknum sem er vallarmet á þessari öld hér á ÍR-vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
60. mín
Emil Nói fær boltann með bakið í markið og tekur skotið í fyrsta en boltinn endar lengst upp í brekku.
59. mín
Óðinn tekur skot sem Óli Íshólm nær að verja og halda.
57. mín
Shkelzen með flotta takta og setur boltann á bak við vörnina, en Vilhelm í marki ÍR er vel á verði.
54. mín
Óðinn með skalla að marki en Óli Íshólm grípur auðveldlega. Seinni hálfleikurinn fer rólega af stað.
51. mín
Róbert Quental með fyrirgjöf sem endar næstum því í markinu! Þetta var lúmskt.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
48. mín
Dagur Ingi Hammer með geggjaðan snúning og nær skoti en það fer langt fram hjá. Engin stjórn á skotinu.
47. mín
Óðinn keyrir af miklum krafti inn á teig Leiknis og reynir skot með vinstri en það fer beint í varnarmann.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn Leiknismenn ekki sáttir með að sóknarhelmingur ÍR hafi bara verið vökvaður í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Flautað til hálfleiks og ÍR leiðir með einu marki. ÍR byrjaði leikinn mun betur en Leiknismenn hafa sótt í sig veðrið eftir því sem liðið hefur á hálfleikinn. Það á enn nóg eftir að gerast í þessum leik!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Shkelzen finnur Axel í svæðinu á bak við vörnina og hann reynir skot úr þröngri stöðu, en það fer fram hjá markinu. Leiknismenn líklegri þessa stundina.
45. mín
Shkelzen reynir skot úr aukaspyrnunni. Langt utan af velli, mikil bjartsýni og ekki mjög líklegt.
45. mín
Daði með geggjaðan snúning og finnur Róbert sem sækir aukaspyrna á ágætis stað fyrir Leikni.
45. mín
Sex mínútum bætt við fyrri hálfleikinn Út af meiðslum.
44. mín
Aftur fær ÍR aukaspyrnu á ágætis stað en aukaspyrnan er slök, alveg eins og áðan.
43. mín Gult spjald: Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
Þetta var gróf tækling. Alveg appelsínugult.
42. mín
Róbert Quental er mikið að reyna en það gengur lítið upp hjá honum.
38. mín
Mikill barningur inn á teignum en Leiknismenn koma boltanum frá.
38. mín
Shkelzen með skot að marki en það fer í varnarmann og Leiknir fær hornspyrnu.
36. mín
Vel spilað hjá Leiknismönnum en rangstaða dæmd á Shkelzen Veseli. Gestirnir eru aðeins að ná að vinna sig meira inn í leikinn.
33. mín
Axel er að klæða sig aftur í skóinn. Líklega að koma aftur inn á.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
31. mín
Axel Freyr liggur eftir og er farinn úr bæði skónum og sokknum. Lítur ekkert svakalega vel út. Þarf Leiknis að gera aðra skiptingu?
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Ágúst finnur Víði utarlega í teignum og hann reynir skot en Leiknismenn komast fyrir. Svo er dæmd aukaspyrna.
28. mín
Alexander Kostic með hörkuskot rétt yfir markið eftir svolítið skondna sókn.
26. mín
Markvarsla! Misskilningur í vörn ÍR og Axel Freyr kemst í góða stöðu. Hann nær fínu skoti en Vilhelm ver frábærlega í marki ÍR!
25. mín
Óðinn með skot með vinstri sem fer fram hjá markinu. Ekki sáttur með sjálfan sig.
25. mín
Langur bolti fram hjá Leiknismönnum og Vilhelm kemur á móti. Axel Freyr er á undan í boltann og nær að pota í hann. Reynir svo að setja boltann yfir Vilhelm sem var mættur aftur niður á línu og hann nær að grípa.
22. mín
Leikurinn farið nánast eingöngu fram á vallarhelmingi Leiknis. Breki Hólm með hornspyrnuna núna sem Óli Íshólm grípur að lokum.
22. mín
Ágúst Unnar með skot rétt fram hjá markinu og fær hornspyrnuna. Boltinn hefur farið af varnarmanni.
21. mín
Hrafn mætir á nærstöngina en skallar fram hjá. ÍR vill fá fjórðu hornspyrnuna en Leiknismenn sleppa við það.
20. mín
Leiknismenn virka bara mjög stressaðir í þessum hornspyrnum. Ná að skalla frá núna. Og svo aftur. ÍR fær þriðju hornspyrnuna á sama kaflanum.
19. mín
Flott sókn hjá ÍR og þeir vinna hornspyrnu. Hrikalega góð samvinna hjá Gú, eins og hann er kallaður, og Óðni á hægri vængnum.
17. mín
Dagur Ingi Hammer var kominn í ágætis færi hinum megin en ég held að það hafi verið flögguð rangstaða. Vilhelm varði líka.
16. mín MARK!
Óðinn Bjarkason (ÍR)
Stoðsending: Breki Hólm Baldursson
MARK!!!!!!! ÍR-ingar elska hornspyrnur!

Breki Hólm með hornspyrnuna fyrir og Óðinn mættur á nærstöngina þar sem hann stýrir boltanum í markið.

Enn eitt markið sem ÍR skorar eftir hornspyrnu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
15. mín
Emil Nói tekur aukaspyrnuna en hún fer beint í vegginn! Væntanlega pirraður að hafa ekki náð að reyna á Óla Íshólm þarna.
14. mín Gult spjald: Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)
ÍR að fá aukaspyrnu á hættulegum stað!
13. mín
Heiðursgesturinn!
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
13. mín
Djorde einn á fjærstönginni eftir hornspyrnu en hann nær engum krafti í skallann. Hefði líklega átt að reyna að skalla aftur fyrir markið.
12. mín
Shkelzen reynir skot úr aukaspyrnunni sem fer í varnarmann og Vilhelm blakar boltanum yfir markið. Leiknir fær hornspyrnu.
12. mín
Mikil barátta út í horni sem endar með því að Róbert Quental vinnur aukaspyrnu. Hann gafst ekki upp og uppskar út frá því.
11. mín
Hrafn með skalla að marki eftir hornspyrnu, en skallinn er laus og skapar ekkert vesen fyrir Óla Íshólm í markinu.
10. mín
Það er mun meiri kraftur í ÍR í byrjun leiks. Leiknismenn ekkert komist inn í leikinn enn sem komið er.
8. mín
Inn:Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.) Út:Sindri Björnsson (Leiknir R.)
Fyrsta skipting leiksins.
6. mín
Sindri Björns er lagstur og þarf aðhlynningu. Ég held að hann sé að fara af velli. Stutt gaman hjá honum í dag.
5. mín
Víðir vinnur boltann og er kominn í dauðafæri, en aukaspyrna dæmd. ÍR-ingar langt frá því að vera sáttir. Óli Íshólm varði hvort sem er.
5. mín
Svona er ÍR að stilla upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
4. mín
Óðinn með góðan bolta upp í hornið á Ágúst Unnar og hann reynir sendingu fyrir markið. Víðir er að koma á fjærstöngina en sendingin er aðeins of föst.
3. mín
ÍR-ingar taka langt innkast og það skapar smá hættu en boltinn fer alveg í gegnum þvöguna og endar í markspyrnu fyrir Leikni.
2. mín
Svona er Leiknir að stilla upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Leiknismenn byrja með boltann og sækja í átt að ÍR-heimilinu.
Fyrir leik
Ekki enn fullt í stúkunni Það eru enn laus sæti í stúkunni við völlinn. Fólk situr í brekkunni líka, en það hljóta enn fleiri að mæta. Það eru þrjár mínútur í upphafsflaut.
Fyrir leik
Sölvi Haralds, kóngurinn Veikasti ÍR-ingur landsins kemur hér með hamborgara. Alvöru þjónusta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Gústi gerir eina breytingu Leiknismenn gera eina breytingu á sigurliði sínu úr leiknum gegn Völsungi í síðustu umferð. Kári Steinn Hlífarsson fer á bekkinn og inn í hans stað kemur Róbert Quental Árnason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
McAusland er í banni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Það er högg fyrir ÍR að fyrirliðinn Marc McAusland er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Þór í síðasta leik.

Það eru annars þrjár breytingar á byrjunarliði ÍR frá þeim leik. McAusland dettur út og ásamt honum fara Hákon Dagur Matthíasson og Arnór Sölvi Harðarson úr liðinu. Inn í þeirra stað koma Sigurður Karl Gunnarsson, Óðinn Bjarkason og Víðir Freyr Ívarsson.
Fyrir leik
Það er bongó! Það er glampandi sól og svona 15 gráður. Maður biður ekki meira um það. Bæði lið eru á fullu í upphitun og andinn er góður.
Fyrir leik
Leikurinn í opinni dagskrá à Livey!


Mate Dalmay
Fyrir leik
Arnar Þór með flautuna Það er óhætt að fullyrða að það verði hiti í þessum leik. Arnar Þór Stefánsson fær það verðuga verkefni að dæma leikinn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikirnir í fyrra Það var stuð og stemning þegar þessi tvö lið mættust í fyrra. Leiknir vann fyrri leikinn á heimavelli 1-0 þar sem Omar Sowe, núverandi leikmaður ÍBV, gerði sigurmarkið en Guðjón Máni Magnússon gerði svo sigurmarkið í seinni leik liðanna. Sá leikur endaði einnig 1-0.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Fyrir leik
Guðjón Pétur spáir jafntefli Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem eru framundan í áttundu umferð Lengjudeildarinnar. Hann spáir því að þessi leikur muni enda með jafntefli.

ÍR 2 - 2 Leiknir R.
Leikurinn um Breiðholtið verður ein stór veisla og eftir að galdramaðurinn Gústi Gylfa tók við Leikni þá geta þeir ekki hætt að vinna. En núna mætir Jói með sitt feykisterka lið og leikurinn verður opinn og skemmtilegur en þetta verður heiðursmannajafntefli.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Fyrir leik
Jón Gnarr verður heiðursgestur Nýjasti meðlimurinn í stuðningsmannahópi ÍR, Jón Gnarr, verður heiðursgestur á AutoCenter-vellinum í kvöld.

Fyrir leik
Jói Birnir að gera frábæra hluti Jóhann Birnir Guðmundsson tók við sem aðalþjálfari ÍR í vetur eftir að Árni Freyr Guðnason tók við Fylki. Jói og Árni stýrði ÍR-liðinu saman í fyrra en Jói tók við stjórnartaumunum í vetur og hefur verið að gera frábæra hluti með þetta lið. ÍR hefur haldið í sömu gildi og í fyrra og eru orðnir enn sterkari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Staðan? Staðan er sú að ÍR er á toppi Lengjudeildarinnar með 15 stig úr sjö leikjum. ÍR-ingar komu gríðarlega mikið á óvart í fyrra með því að komast í umspilið sem nýliðar og þeir hafa bara haldið áfram með sama dampi í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknismenn byrjuðu tímabilið hörmulega og náðu aðeins í eitt stig úr fyrstu fimm leikjunum. Þeir ákváðu að fara í þjálfarabreytingar í kjölfarið og hafa síðan tekið tvo sigra í röð. Gústi Gylfa hefur byrjað vel og spurning hvort að hann nái í þriðja sigurinn í röð í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá Breiðholtsslagnum. Hér mætast erkifjendurnir ÍR og Leiknir í mjög svo áhugaverðum leik sem gaman verður að fylgjast með.

Endilega fylgist með!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


8. umferð:

föstudagur 13. júní

Lengjudeild karla
19:15 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Fjölnir (Kórinn)
19:15 ÍR-Leiknir R. (AutoCenter-völlurinn)

laugardagur 14. júní
14:00 Selfoss-Þróttur R. (JÁVERK-völlurinn)
14:00 Völsungur-Keflavík (PCC völlurinn Húsavík)
16:00 Njarðvík-Þór (JBÓ völlurinn)
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
5. Daði Bærings Halldórsson (f) ('89)
6. Jón Arnar Sigurðsson ('89)
7. Róbert Quental Árnason
8. Sindri Björnsson ('8)
10. Shkelzen Veseli
19. Axel Freyr Harðarson
20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
25. Dusan Brkovic
45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson ('80)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Hilmar Örn Pétursson (m)
3. Bogdan Bogdanovic
4. Patryk Hryniewicki
9. Jóhann Kanfory Tjörvason ('89)
11. Gísli Alexander Ágústsson ('89)
22. Þorsteinn Emil Jónsson ('8)
43. Kári Steinn Hlífarsson ('80)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Nemanja Pjevic
Ari Þór Kristinsson
Ellert Ingi Hafsteinsson
Konráð Grétar Ómarsson

Gul spjöld:
Anton Fannar Kjartansson ('14)
Þorsteinn Emil Jónsson ('43)
Dusan Brkovic ('93)

Rauð spjöld: