Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
Besta-deild karla
ÍBV
56' 0
1
Breiðablik
Besta-deild karla
Vestri
LL 1
0
KA
Besta-deild kvenna
Stjarnan
46' 1
0
Þróttur R.
Besta-deild kvenna
Valur
LL 1
2
Fram
Besta-deild kvenna
FHL
LL 0
4
Víkingur R.
Stjarnan
3
2
Valur
Jóhann Árni Gunnarsson '17 1-0
1-1 Patrick Pedersen '26
Emil Atlason '62 2-1
Guðmundur Baldvin Nökkvason '68 3-1
3-2 Patrick Pedersen '77
Bjarni Mark Duffield '78
14.06.2025  -  19:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild karla
Aðstæður: Sturlaðar. Þær gerast varla betri.
Dómari: Þórður Þorsteinn Þórðarson
Maður leiksins: Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson ('87)
8. Jóhann Árni Gunnarsson ('79)
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason ('92)
23. Benedikt V. Warén
30. Kjartan Már Kjartansson ('45)
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
4. Þorri Mar Þórisson ('45)
11. Adolf Daði Birgisson ('87)
24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
37. Haukur Örn Brink ('79)
41. Alexander Máni Guðjónsson
49. Aron Freyr Heimisson
99. Andri Rúnar Bjarnason ('92)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic

Gul spjöld:
Emil Atlason ('33)
Þorri Mar Þórisson ('81)
Adolf Daði Birgisson ('95)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið ÞÞÞ flautar til leiksloka. Stjarnan vinnur hér Val 3-2 í frábærum knattspyrnuleik.

Eigið gott kvöld og takk fyrir mig.
95. mín Gult spjald: Adolf Daði Birgisson (Stjarnan)
Adolf Daði og Kiddi Freyr lenda eitthvað saman og fá báðir spjald.
95. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
93. mín
Albin fær boltann eftir fyrirgjöf frá vinstri og nær skoti að marki en boltinn framhjá.
92. mín
Inn:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan) Út:Emil Atlason (Stjarnan)
90. mín
Fimm mínútur í uppbótartíma á Samsungvellinum
89. mín
Inn:Tómas Bent Magnússon (Valur) Út:Jónatan Ingi Jónsson (Valur)
88. mín
Adolf Daði gerir skemmtilega úti hægra megin og á fyrirgjöf inn á teiginn og Emil Atla ekki nálægt því að ná tökum á boltanum.

Horn Stjarnan.
87. mín
Inn:Adolf Daði Birgisson (Stjarnan) Út:Örvar Eggertsson (Stjarnan)
85. mín
Guðmundur Baldvin! Fær boltann við vítateig Vals en skotið hans fer yfir.
81. mín
Bjarni Mark er ekki Team Samsung Bjarni Mark líkar ílla við Samsung, hann var að fara í sturtu og var einnig rekinn útaf hér á sama velli á síðasta tímabili.
81. mín Gult spjald: Þorri Mar Þórisson (Stjarnan)
79. mín
Inn:Haukur Örn Brink (Stjarnan) Út:Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
78. mín Rautt spjald: Bjarni Mark Duffield (Valur)
Bjarni Mark er sendur í sturtu! Örvar Eggertsson fær boltann í gegn og Bjarni tekur hann niður.

Bjarni Mark er aftasti maður og það er samkvæmt bókinni beint rautt
77. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
VIÐ FÁUM LEIK Valur lyftir boltanum inn á teiginn. Orri Sigurður nær að skalla boltann í átt að marki. Patrick mætir á ferðinni og tæklar boltann í netið.
75. mín
Valur fær hornspyrnu
73. mín
Orri Sigurður fær boltann hátt uppi á vellinum og leggur boltann inn á teig en Adam Ægir með skot framhjá.
71. mín
Guðmundur Baldvin verið frábær í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

70. mín
Inn:Adam Ægir Pálsson (Valur) Út:Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
70. mín
Inn:Albin Skoglund (Valur) Út:Orri Hrafn Kjartansson (Valur)
70. mín
Inn:Sigurður Egill Lárusson (Valur) Út:Lúkas Logi Heimisson (Valur)
68. mín MARK!
Guðmundur Baldvin Nökkvason (Stjarnan)
Stoðsending: Þorri Mar Þórisson
STJARNAN LEIÐIR MEÐ TVEIMUR MÖRKUM!!! Jóhann Árni fær boltann fyrir utan teig Vals. Þorri Mar tekur straujið upp hægri vænginn, fær boltann og á fyrirgjöf inn á hættusvæðið og þar mætir Guðmundur Baldvin og potar boltanum í netið.

3-1.
67. mín
Hvernig svara Valsmenn? Stjörnumenn komust yfir í fyrri hálfleik og Valsmönnum tókst að jafna og eru lentir undir aftur og það verða athyglisverðar síðustu 20 mínútur hér í Garðabæ.
62. mín MARK!
Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsending: Jóhann Árni Gunnarsson
STJARNAN ER KOMIÐ YFIR AFTUR! Stjörnumenn vinna boltann á vallarhelmingi Vals. Jóhann Árni leggur boltann á Emil Atla sem snýr tekur hann örlítið með sér áður en á skot sem endar í netinu.

2-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
61. mín
KIDDI FREYR Jónatan Ingi gerir vel úti hægramegin og finnur Kidda Frey sem á skot réttframhjá.
59. mín
Stuðningsmenn Stjörnunnar vilja víti Warén með fyrirgjöf frá hægri inn á teiginn verður ekkert úr. Örvar Eggertsson fellur inn á teignum eftir samskipti sín við Bjarna Mark en ekkert dæmt.
58. mín
Stjarnan fær hornspyrnu Stjarnan fengið rosalegan fjölda af hornspyrnum í kvöld.
56. mín
Örvar Eggertsson fær boltann út til hægri og á fyrirgjöf sem Orri Sigurður setur afturfyrir endamörk og Stjarnan fær hornspyrnu.

Ekkert verður úr henni.
52. mín
Frábært spil hjá Stjörnunni Örvar Eggertsson fær boltann og á skot sem fer af Guðmundi Baldvini og aftufyrir.
50. mín
Stjarnan byrjar betur líkt og í fyrri hálfleik og eru líkegri en Valsmenn þessa stundina.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Inn:Þorri Mar Þórisson (Stjarnan) Út:Kjartan Már Kjartansson (Stjarnan)
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur Þórður Þorsteinn flautar til hálfleiks. Skemmtilegum fyrri hálfleik lokið.

Tökum okkur korter.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
43. mín Gult spjald: Markus Lund Nakkim (Valur)
Alltof seinn í Guðmund Baldvin.
39. mín
Valur fær hornspyrnu Tryggvi Hrafn fer inn á völlinn og á sendingu yfir á Jónatan sem vinnur hornspyrnu fyrir Val.

Ekkert kemur upp úr hornspyrnunni.
37. mín
Eins og borðtennisleikur síðustu mínútur Liðin skiptast á að sækja og það er ekkert sem kemur í veg fyrir að við fáum að sjá fleiri mörk hér í kvöld.
35. mín
Kjartan Már fær boltann vinstra megin eftir langt innkast frá hægri og á skot sem fer yfir markið.
33. mín Gult spjald: Emil Atlason (Stjarnan)
Sparkar aftan í Jónatan Inga sem var á leið upp völlin.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Frábærar fyrstu 30 mínútur Það hefur verið gríðarlega mikið líf í þessu og ég fagna því!
26. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
VALUR JAFNAR OG HVER ANNAR Í SÍNUM 200 LEIK!!! Orri Sigurður fær boltann úti til hægri og leggur boltann á Orra Hrafn sem fær boltann inn á vítateig Stjörnunnar. Orri fær allan tíman í heiminum til að finna sendinguna á Patrick sem á skot sem fer í Samúel Kára og í netið.

1-1 !

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


WHAT A PLAYER!
17. mín MARK!
Jóhann Árni Gunnarsson (Stjarnan)
Stoðsending: Guðmundur Baldvin Nökkvason
Þetta er bara verðskuldað!! Jónatan Ingi fær boltann á vallarhelmingi Stjörnunnar. Örvar Logi og Stjörnumenn pressa Valsmenn gríðarlega hátt, vinna boltann. Örvar Logi færir boltann á Guðmund Baldvin sem framlengir boltanum á Jóhann Árna sem hamrar boltann í nær frá D-boganum.

1-0 STAR!!


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
16. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu á hættulegum stað Gummi Kri sem spilar í hægri bakverðinum hjá Stjörnunni í kvöld fær boltann upp hægra megin og brotið er á honum.

Warén tekur spyrnuna og Samúel Kári fær boltann inn á teignum en á máttlaust skot sem fer yfir.
12. mín
Stjarnan fær hornspyrnu
10. mín
Meðbyr með heimamönnum Stjörnumenn hafa byrjað þennan leik töluvert betur og hafa fengið tvö dauðafæri í byrjun leiks.

Það liggur Stjörnumark í loftinu.
8. mín
HVAÐ GERÐIST ÞAARNA!?!?! Frederik tekur útspark og setur boltann upp á Kidda Frey sem gefur boltann beint á Örvar Eggertsson sem er allt í einu aleinn gegn Frederik en Schram lokar.
7. mín
Stjarnan fær hornspyrnu Guðmundur Baldvin fær boltann inn á teignum en á skot sem fer framhja.
6. mín
Orri Hrafn fær boltann og framlengir boltanum áfram á Lúkas Loga sem reynir að vinna Patrick inn á teignum en Stjörnumenn koma boltanum í burtu.
2. mín
Frederik Schram þarf að hafa fyrir þessu Jóhann Árni fær boltann og leggur hann til hliðar á Örvar sem á skot frá vítateigshorninu hægra megin og Schram ver í hornspyrnu sem ekkert verður úr.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað ÞÞÞ flautar til leiks og vonandi er veisla framundan.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
Liðin ganga til leiks Þórður Þorsteinn leiðir liðin til til leiks og búið er að kynna liðin og bjóða vallargesti velkomna á Samsungvöllin. Mætingin er vonbrigði en það er líklega vegna útskrifta.

Það fer allt að verða til reiðu í Garðabæ.
Fyrir leik
Tveir fæddir 2009 á bekknum Tveir strákar á sextánda aldursári, Alexander Máni Guðjónsson og Aron Freyr Heimisson, eru á bekknum hjá Stjörnunni. Eins og fjallað var um í dag er Alexander Máni á leið til Midtjylland í sumar.
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Gott veður.og sólin skín á höfuðborgarsvæðinu. Laugardagskvöld og fullur völlur á Samsung vellinum.3,5 á Epic á Stjörnusigur er vel boðið, fagfjárfestar í Garðabæ segja að þetta sé jafnvel betur boðið en útboðið hjá Íslandsbanka.
Fyrir leik
Byrjunarlið Það eru þrjár breytingar á liði Stjörnunnar sem gerði jafntefli gegn KA á Akureyri í síðustu umferð. Guðmundur Kristjánsson, Örvar Eggertsson og Guðmundur Baldvin Nökkvason koma inn í liðið.

Þorri Mar Þórisson og Haukur Örn Brink setjast á bekkinn en Alex Þór Hauksson er í banni eftir að hafa verið rekinn af velli gegn KA.

Það er ein breyting á liði Vals eftir 2-1 sigur á Fram. Orri Hrafn Kjartansson kemur inn fyrir Aron Jóhannsson sem er ekki í hópnum. Tómas Bent Magnússon kemur inn á bekkinn eftir að hafa verið fjarverandi vegna meiðsla.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Peder­sen í tvö hundruð leikja klúbbinn Eins og kom fram á Vísi.is í dag þá er sóknarmaðurinn Patrick Pedersen að fara leika leik númer 200 fyrir Val í efstu deild og er það risa áfangi.

„Þetta skiptir mig miklu máli, er stór áfangi að ná. Eitt­hvað sem ég er mjög stoltur af. Ég bjóst klár­lega ekki við því að spila tvö hundruð leiki hér. En hérna erum við þó. Tvö hundruð leikjum síðar.“ sagði Pedersen við Vísi.is.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hinrik spáir markaleik! Hinrik Harðarson, sóknarmaður Odd í Noregi er spámaður Fótbolta.net fyrir komandi umferð sem hefst í kvöld. Þetta hafði hann að segja um leik kvöldsins.

Stjarnan 2 - 3 Valur (19:15 í kvöld)
Það er ekki nóg fyrir Stjörnuna að fá Gumma Baldvin og Kjartan Má aftur frá ævintýrunum í Kaíró. Það er eitthvað í loftinu í Vals klefanum eftir að Arnór Smára fékk lyklakippuna að Hlíðarenda. Það er ekki nóg að hafa lyklana heldur hefur hann opnað hurðirnar sem þurfti að opna og læsa í vetur.

Mynd: Odd

Fyrir leik
Alex Þór tekur út leikbann í kvöld Alex Þór Hauksson leikmaður Stjörnunnar verður ekki með í kvöld en hann tekur út leikbann eftir að hafa fengið beint rautt spjald á Akureyri í síðustu umferð í jafnteflinu gegn KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tufa talar um öðruvísi nálgun hjá Stjörnunni Steinke ræddi einnig við Tufa þjálfara Vals en liðið hefur verið að sýna stöðuleika í síðustu leikjum og er liðið tveimur stigum frá toppnum.

„Ég er meðvitaður um að þetta verður hörku leikur. Þetta er flott lið, á góðum aldri, og með mikinn kraft; ferskleiki og hraði í liðinu. Þeir spila yfirleitt betur heima og það bíður okkur hörku leikur."

„Mér finnst þeir spila aðeins öðruvísi í ár en í fyrra, þá fannst mér þeir mikið byggja á því að halda í boltann. Núna, inn á milli, finnst mér þeir vera beinskeyttari; langir boltar fram á Emil (Atlason), Örvar (Eggertsson) og Benó (Benedikt Warén). Það er aðeins öðruvísi, hvernig ég upplifi það að minnsta kosti, nálgun á hlutina. Við höfum stúderað þá vel og höfðum góðan tíma til að fara yfir hvað við þurfum að stoppa og hvaða veikleika þeir hafa sýnt hingað til - og hvernig við viljum reyna nota þá. Við erum klárir í slaginn."

Tufa talar um að liðið sé á fínum stað.

„Heilt yfir held ég að við séum á fínum stað, tíu leikir búnir í deildinni og tveir í bikar. Það er alltaf hægt og við tölum alltaf hreint út við leikmenn, það voru hlutir sem við gátum gert betur, en heilt yfir þá held ég að við séum á fínum stað. Við erum áfram í bikar og erum við toppinn. Við verðum bara að halda áfram."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jökull er peppaður fyrir kvöldinu! Steinke ræddi við Jökul Elísarbetarson þjálfara Stjörnnunar í aðdragenda leiksins í kvöld.

„Valsliðið er gott og vel þjálfað líka, Túfa hefur gert vel. Þeir eru mjög agaðir, vel skipulagðir og sterkir varnarlega. Þeir fá ekki mikið af færum á sig þegar þeir eru komnir í varnarformið sitt, eru mjög fastir á sínum varnar-prinsippum í sínum varnarleik. Þeir eru svo með afburðasóknarlínu; allir mjög fljótir og miklir markaskorarar. Við erum búnir að fara vel yfir þá og sjáum tækifæri á móti þeim, fullt af tækifærum, sem við vonandi náum að nýta á morgun."

Jökull segir að Guðmundur Kristjánsson sé orðinn klár í slaginn eftir að hafa misst af leiknum gegn KA. „Gummi er klár, Örvar (Eggertsson) var ekki heldur með fyrir norðan, hann er klár. Daníel Finns fékk högg, hefur verið aðeins frá og er aðeins lengur að ná sér af því en við héldum."

„Andri Adolphsson er farinn að æfa á fullu eftir höfuðhöggið inni í Akraneshöllinni. Það er frábært. Staðan er bara mjög góð."


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Staðan? Stjarnan situr fyrir leik kvöldsins í fimmta sæti deildarinnar með 14.stig. Stjarnan fór norður á Akureyri í síðustu umferð og gerði liðið 1-1 jafntefli við KA þar sem Benedikt V. Warén skorði mark Stjörnunnar.

Valur situr í öðru sæti deildarinnar með 18.stig, tveimur stigum á eftir toppliði Víkings R. Valur vann Fram á Hlíðrenda 2-1 í síðustu umferð. Patrick Pedersen og Tryggvi Hrafn Haraldsson gerðu mörk Vals í þeim leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Dómarar Þórður Þorsteinn Þórðarson verður á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Gylfi Már Sigurðsson.

Varadómari í kvöld er Jóhann Ingi Jónsson og eftirlitsmaður KSÍ er Hjalti Þór Halldórsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Saturday night á Samsungvellinum Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í Garðabæinn þar sem Stjarnan og Valur mætast í Bestu deild karla.

Landsleikjahléið er á enda og við keyrum Bestu af stað aftur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Frá leik liðanna á síðasta tímabili.
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
4. Markus Lund Nakkim
6. Bjarni Mark Duffield
8. Jónatan Ingi Jónsson ('89)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson ('70)
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson ('70)
19. Orri Hrafn Kjartansson ('70)
20. Orri Sigurður Ómarsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Tómas Bent Magnússon ('89)
11. Sigurður Egill Lárusson ('70)
13. Kristján Oddur Kristjánsson
14. Albin Skoglund ('70)
16. Stefán Gísli Stefánsson
21. Jakob Franz Pálsson
23. Adam Ægir Pálsson ('70)
33. Andi Hoti
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Srdjan Tufegdzic (Þ)
Haukur Páll Sigurðsson
Kjartan Sturluson
Halldór Eyþórsson
Einar Óli Þorvarðarson
Jóhann Emil Elíasson
Örn Erlingsson
Chris Brazell

Gul spjöld:
Markus Lund Nakkim ('43)
Kristinn Freyr Sigurðsson ('95)

Rauð spjöld:
Bjarni Mark Duffield ('78)