SKÝRSLAN: Þróttur stöðvar sigurgöngu Framara í dal draumanna
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn réðst að mestu leyti í fyrri hálfleik, þar sem heimakonur áttu í miklum vandræðum og fóru 0-2 undir í hlé. Þróttur sýndi mikla yfirburði og fór með örugga forystu inn í klefa – staðan hefði hæglega getað orðið enn stærri. Seinni hálfleikurinn var jafnari, en það dugði skammt. Þegar Þróttur bætti við þriðja markinu var niðurstaðan í raun ráðin.
Bestu leikmenn
1. Jelena Tinna Kujundzic
Hún var frábær í leiknum og átti stóran þátt í því að Murielle Tiernan náði sér aldrei almennilega á strik. Hún var róleg og yfirveguð með boltann, lét pressuna ekki hafa áhrif á sig og sýndi mikla yfirvegun í öllum aðgerðum. Vann nokkur einvígi gegn Tiernan og kórónaði glæsilega frammistöðu sína með marki.
2. Þórdís Elva Ágústsdóttir
Hún var hættuleg eins og svo oft áður og sýndi glögglega í þessum leik hvers vegna hún telst til bestu leikmanna Bestu deildar kvenna. Hún skapaði stöðugan usla í vörn Fram, lagði upp mark fyrir Jelenu og skoraði sjálf sitt eigið til að klára leikinn endanlega.
Atvikið
Það eftirminnilegasta við leikinn var hversu afgerandi yfirburðir Þróttarkvenna voru strax frá upphafsflautinu, á sama tíma og Fram virtist alls ekki tilbúið til leiks. Munurinn kom skýrt í ljós þegar Þróttur komst yfir strax á 3. mínútu.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Þróttur fer aftur á topp Bestu deildarinnar og rýfur þar með tveggja leikja taphrinu. Nýliðarnir í Fram sitja þó enn í þægilegri stöðu í efri hlutanum, nú þegar deildin fer í hlé vegna EM kvenna.
Vondur dagur
Fram-liðið fær þann vafasama heiður í dag eftir afar slakan fyrri hálfleik. Stelpurnar mættu ekki nægilega vel stemmdar til leiks og fátt gekk upp á fyrstu 45 mínútunum. Liðið reyndi sífellt að senda vonlausa bolta á Murielle Tiernan, sem var í gjörgæslu hjá vörn Þróttar – ekki síst hjá Jelenu. Þjálfari liðsins, Óskar Smári, má þó eiga það að hann tók ábyrgðina á sig í viðtali eftir leik.
Dómarinn - 8
Bríet dæmdi leikinn vel og leyfði honum að fljóta án þess að missa tökin. Gula spjaldið var réttilega dæmt og ákvörðun hennar þar staðföst. Leikurinn var ekki sá erfiðasti að dæma, þar sem lítið var um vafasöm brot eða erfiðar aðstæður.




