Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
Breiðablik
1
1
Fram
0-1 Vuk Oskar Dimitrijevic '49
Höskuldur Gunnlaugsson '91 , víti 1-1
Höskuldur Gunnlaugsson '92
Kyle McLagan '92
23.06.2025  -  19:15
Kópavogsvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Maður leiksins: Freyr Sigurðsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
6. Arnór Gauti Jónsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('77)
9. Óli Valur Ómarsson ('87)
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman ('83)
77. Tobias Thomsen
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
4. Ásgeir Helgi Orrason
10. Kristinn Steindórsson
19. Kristinn Jónsson ('77) ('83)
24. Viktor Elmar Gautason
28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson ('87)
39. Breki Freyr Ágústsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Höskuldur Gunnlaugsson ('92)
@ Alexander Tonini
Skýrslan: Fram óheppið – Vitleysan réði för í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Vítaspyrnan sem dæmd var virtist í fljótu bragði ekki standa undir nafni — líklegra að um vel útfærða dýfu Ágústs hafi verið að ræða sem fékk dómarann til að kaupa leikfléttuna. Höskuldur, fyrirliði liðsins, steig samt örugglega á punktinn og kláraði vítið af miklu öryggi. Það reyndist þó ekki endapunkturinn á kvöldinu, því skömmu síðar tók hann sig til og ruðningstæklaði Viktor, markvörð Framara, sem endaði í stimpingum og rauðu spjaldi fyrir fyrirliðann sem og Kyle McLagan.
Bestu leikmenn
1. Freyr Sigurðsson
Erfitt var að gera upp á milli Freys, Sigurjóns og Kennie – allir áttu góðan leik hér í kvöld. En það var Freyr sem skapaði mestan usla í sóknarleik gestanna og hlýtur því nafnbótina maður leiksins. Hann átti stóran þátt í marki Fram með kraftmiklum spretti upp völlinn sem leiddi til stoðsendingar Kennie á Vuk Oskar. Þá var hann óheppinn að bæta ekki sjálfur við marki þegar hann komst einn í gegn, en skot hans small í þverslánni
2. Sigurjón Rúnarsson
Það þarf ekki að segja neitt annað en að Tobias mun fá vondan dag titilinn enda sást hann ekki í leiknum. Sigurjón hreinlega pakkaði honum saman. Sigurjón átti fjölmargar glæsilegar hreinsanir og toppaði frammistöðuna með stórkostlegri tæklingu á Viktor á 75. mínútu – af fullorðinsgerðinni.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn var án nokkurs vafa stærsta atvik kvöldsins. Framarar virtust vera á góðri leið með að tryggja sér öll þrjú stigin og sigla sigrinum örugglega heim til Reykjavíkur – þar til dæmt var víti sem einfaldlega var ekki víti. Heimamenn jöfnuðu úr spyrnunni og í kjölfarið fylgdi svo öll hin vitleysan – atvik og uppákoma sem á frekar heima á Wrestle Mania en á fótboltavelli.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Blikarnir eru áfram í 2. sæti sem var svo sem alltaf að verða niðurstaðan fyrir leik en missa Víkinga aðeins á undan sér og nú munar þremur sigum á liðunum. Fyrir Fram er fyrsta jafntefli sumarsins staðfest og dettur niður í 7. sæti í töflunni.
Vondur dagur
Tobias Thomsen fær titilinn vondur dagur í kvöld. Næst markahæsti maður Bestu deildar sást vart í 90 mínútur og virtist lengst af fastur í gjörgæslu – undir dyggri umsjá Sigurjóns Rúnarssonar og co. Tobias tók varla þátt í leiknum, að undanskildu einu slöppu skoti og einni uninni hornspyrnu – og það var bókstaflega allt og sumt frá markahróknum mikla í kvöld.
Dómarinn - 4
Léleg frammistaða hjá Arnari Þór hér í kvöld og ég skil alveg að Halldór þjálfari Blika hafi talað um að missa leikinn í vitleysu. Kennie og Kyle fengu ítrekað að haga sér eins og ruddar án afleiðinga. Á 64. mínútu hrinti Kennie Ágústi niður þegar sá síðarnefndi var kominn framhjá – ekkert dæmt. Þá nýtti Kyle sér ótrúlegt umburðarlyndi dómarans og skall harkalega á Höskuld á 87. mínútu, boltinn hvergi í augsýn. Erfitt er að líta framhjá því að dómari kvöldsins beri ríka ábyrgð á því hvernig atburðarásin þróaðist – og að vitleysan sem fylgdi með tveimur rauðum spjöldum undir lokin megi rekja til hans.
Byrjunarlið:
22. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
3. Þorri Stefán Þorbjörnsson ('92)
5. Kyle McLagan
8. Haraldur Einar Ásgrímsson
9. Róbert Hauksson ('70)
10. Fred Saraiva
12. Simon Tibbling
19. Kennie Chopart (f)
25. Freyr Sigurðsson ('83)
26. Sigurjón Rúnarsson
29. Vuk Oskar Dimitrijevic ('83)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Bjarki Arnaldarson (m)
4. Arnar Daníel Aðalsteinsson ('92)
7. Guðmundur Magnússon
11. Magnús Þórðarson ('83)
15. Jakob Byström
16. Israel Garcia ('83)
23. Már Ægisson ('70)
32. Hlynur Örn Andrason
33. Kajus Pauzuolis
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Rúnar Kristinsson (Þ)
Helgi Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson
Einar Haraldsson
Gareth Thomas Owen
Friðgeir Bergsteinsson
Kirian Elvira Acosta

Gul spjöld:
Haraldur Einar Ásgrímsson ('77)
Viktor Freyr Sigurðsson ('94)

Rauð spjöld:
Kyle McLagan ('92)