Napoli heillar Nunez - Barcelona gæti reynt við Rashford - Fenerbahce hefur áhuga á Sancho
Magni
1
3
Kormákur/Hvöt
Gunnar Darri Bergvinsson '30 1-0
1-1 Kristinn Bjarni Andrason '63
1-2 Sigurður Pétur Stefánsson '70
1-3 Sigurður Bjarni Aadnegard '93
Stefán Freyr Jónsson '96
25.06.2025  -  19:15
Grenivíkurvöllur
Fótbolti.net bikarinn
Aðstæður: Það blæs aðeins og smá úrkoma
Dómari: Sveinn Arnarsson
Maður leiksins: Sigurður Pétur Stefánsson
Byrjunarlið:
24. Einar Ari Ármannsson (m)
2. Haukur Leo Þórðarson
6. Aron Elí Kristjánsson ('71)
8. Sigurður Brynjar Þórisson
9. Gunnar Darri Bergvinsson
14. Garðar Gísli Þórisson
17. Ibrahim Boulahya El Miri ('59)
27. Þorsteinn Ágúst Jónsson (f)
32. Halldór Jóhannesson ('81)
47. Sigurður Hrafn Ingólfsson
80. Ottó Björn Óðinsson ('71)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
23. Steinar Adolf Arnþórsson (m)
10. Alexander Ívan Bjarnason ('59)
19. Birkir Már Hauksson ('81)
21. Oddgeir Logi Gíslason
30. Bjarki Þór Viðarsson ('71)
68. Ingólfur Birnir Þórarinsson
99. Birgir Valur Ágústsson ('71)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Guðmundur Óli Steingrímsson (Þ)
Gísli Gunnar Oddgeirsson
Gunnar Berg Stefánsson
Óli Þór Hauksson

Gul spjöld:
Ottó Björn Óðinsson ('26)
Halldór Jóhannesson ('78)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Kormákur/Hvöt áfram í 16-liða úrslitin Verðskuldaður endurkomusigur á Grenivík.
96. mín Rautt spjald: Stefán Freyr Jónsson (Kormákur/Hvöt)
Eftir lokaflautið, sá ekki hvað gerðist.
94. mín
Inn:Stefán Freyr Jónsson (Kormákur/Hvöt) Út:Marko Zivkovic (Kormákur/Hvöt)
Þreföld breyting, sá ekki hinar tvær.
93. mín MARK!
Sigurður Bjarni Aadnegard (Kormákur/Hvöt)
Stoðsending: Goran Potkozarac
Sigurinn innsiglaður Önnur frábær hornspyrnu og annar Sigurður kominn á blað hjá gestunum. Skallar boltann í netið af stuttu færi.
92. mín
Kormákur/Hvöt fær hornspyrnu.
90. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín
Inn:Sigurður Bjarni Aadnegard (Kormákur/Hvöt) Út:Kristinn Bjarni Andrason (Kormákur/Hvöt)
89. mín Gult spjald: Hlib Horan (Kormákur/Hvöt)
Fyrirgjafarstaða fyrir Alexander Ívan. Alltof innarlega þessi bolti frá Alexander.
88. mín
Gestirnir svolítið bara að reyna þrauka þetta síðustu mínúturnar, langir boltar fram.
85. mín
Magnamenn að leita að opnunum. Papa og Sergio öflugir í hjarta varnarinnar hjá gestunum, stæðilegir hafsentar.
83. mín
Inn:Hlib Horan (Kormákur/Hvöt) Út:Matheus Bettio Gotler (Kormákur/Hvöt)
82. mín
Alexander Ívan í skotfæri en missir boltann aðeins of langt frá sér. Papa kemur þessu í burtu.

Lítið að frétta í sóknarleik heimamanna.
81. mín
Inn:Birkir Már Hauksson (Magni) Út:Halldór Jóhannesson (Magni)
80. mín
Einar Ari! Götler með geggjaðan bolta inn á Kristin Bjarna en Einar Ari sér við honum. Virkilega gott færi.
79. mín
Færi Khalok með fyrirgjöf, Kristinn Bjarni hittir ekki boltann og svo hittir Jaheem Burke boltann eiginlega enn verr á fjær.
78. mín Gult spjald: Halldór Jóhannesson (Magni)
Ein fullorðins Halldór pirraður, vildi væntanlega fá aukaspyrnu rétt áðan. Rennir sér í eina alvöru á Marko og uppsker gult spjald.
71. mín
Inn:Bjarki Þór Viðarsson (Magni) Út:Aron Elí Kristjánsson (Magni)
71. mín
Inn:Birgir Valur Ágústsson (Magni) Út:Ottó Björn Óðinsson (Magni)
70. mín MARK!
Sigurður Pétur Stefánsson (Kormákur/Hvöt)
Þvæææææælumark! Boltinn fellur veeeeel út fyrir vítateig Magna eftir hornið og Sigurður Pétur smeeeeelllhittir boltann. Algjörlega óverjandi. Gestirnir taka forystuna.
69. mín
Dauðafæri hjá gestunum Khalok í virkilega góðu færi, flott tækling frá Sigurði Hrafni, sé ekki hvort það er hann eða Einar Ari sem fer fyrir.
68. mín
Jaheem Burke með vinstri fótar skot hægra megin í teignum, setur hann framhjá nærstönginni.

Jón Gísli hinu megin hefur verið meira í boltanum og sýndi gríðarlegan hraða rétt áðan, en fann ekki samherja.
65. mín
Einar Ari! Matheus Götler spólar sig í gegnum vörn Magna, kemst í dauðafæri, á skot en Einar Ari sér við honum!
63. mín MARK!
Kristinn Bjarni Andrason (Kormákur/Hvöt)
Stoðsending: Goran Potkozarac
Tíunda hornið skilaði jöfnunarmarki Goran búin að taka síðustu horn fyrir gestina, teiknar einn glæsilegan bolta inn á teiginn og Kristinn er ákveðnastur og skallar boltann í netið.

Finnst eins og gestirnir séu ekki alveg í efsta gír, en eru búnir að jafna.
60. mín
Ottó Björn með skot vinstra megin, utarlega í teignum, sem fer rétt framhjá.
59. mín
Inn:Alexander Ívan Bjarnason (Magni) Út:Ibrahim Boulahya El Miri (Magni)
Fyrirliði Magna kemur inn á.
58. mín
Khalok með skot framhjá í kjölfar hornsins.
58. mín
Gestirnir ferskari í upphafi seinni hálfleiks. Fá núna sitt níunda horn í leiknum.
55. mín
Ibrahim með alvöru bjartsýnistilraun á sprettinum, rennur og boltinn í hendurnar á Zupancic. Skrítin ákvörðun með samherjana klára báðu megin.
54. mín
Áttunda hornið fyrir gestina, Jón Gísli vinnur það.
53. mín
Sergio með hörkuskalla eftir hornspyrnuna en boltinn fer í Goran sýnist mér sem er fyrir innan og Sveinn Óli lyftir flagginu, rangstaða.
52. mín
Gestirnir fá fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins.
50. mín Gult spjald: Jaheem Burke (Kormákur/Hvöt)
Brýtur á Ibrahim.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða í leikhléi 45+1
44. mín
Marko Zivkovic í fyrirgjafastöðu en Haukur Leo Þórðarson tæklar þennan bolta afturfyrir.
39. mín Gult spjald: Papa Diounkou Tecagne (Kormákur/Hvöt)
38. mín
Ibrahim með skot sem fer af varnarmanni og beint í hendurnar á Zupancic í marki gestanna.
35. mín
Vel spilað hjá gestunum, Khalok með fyrirgjöf en Sigurður Hrafn kemst í boltann og skallar afturfyrir. Hornspyrna fyrir gestina.
34. mín
Dauðafæri Glæsilegt spil hjá heimamönnum, gabbhreyfing, boltinn fer á Gunnar Darra sem er í dauðafæri en Zupancic sér við honum. Ekki jafn góð afgreiðsla og áðan.
33. mín
Marko Zivkovic í góðum séns eftir hornspyrnu, lætur vaða en skotið fer vel yfir mark Magna.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Gunnar Darri Bergvinsson (Magni)
Stoðsending: Ottó Björn Óðinsson
Heimamenn nýta sér mistök gestanna Gestirnir tapa boltanum við vítateiginn, Ottó Björn yfirvegaðir, leggur hann til hægri á Gunnar Darra sem leggur boltann á vinstri fótinn og skrúfar boltanum út fyrir Sergio og í fjærhornið.

Magnamenn leiða!
28. mín
Jón Gísli reynir að finna Kristin Bjarna en boltinn kemur of innarlega inn á vítateig Magna. Gestirnir líklegri.
26. mín
Garðar Gísli með skot fer í varnarmann og boltinn aftur í Garðar og þaðan afturfyrir.
26. mín Gult spjald: Ottó Björn Óðinsson (Magni)
Kominn í bókina, fyrsta spjaldið.
21. mín
Eldgami darraðadansinn inn á vítateig heimamanna, Haukur Leó bjargar á línu eftir hælspyrnu Kristins Bjarna. Sýnist svo Sergio eiga tilraun sem hlýtur að hafa farið af varnarmanni því gestirnir fá aðra hornspyrnu.

Ottó Björn fær aðhlynningu.
21. mín
Jón Gísli með skot sem fer af Sigurði Hrafni og aftur fyrir. Gestirnir að banka.
20. mín
Aron Elí er í brasi í hægri bakverðinum en liðsfélagar hans sópa upp eftir hann þarna, galin tækling en fór sem betur fer ekki í Jón Gísla.
19. mín
Sigurður Pétur með mjög flottan bolta út á Jón Gísla sem er í fínu færi en Einar Ari sér við honum.
18. mín
Flott sókn hjá gestunum en Jón Gísli er fyrir innan þegar Götler þræðir boltanum inn á hann.
13. mín
Alvöru skot! Ibrahim er allt í öllu, frábært skot sem Zupancic ver í horn.
Boltinn fer svo í gegnum allan pakkann, þarna var séns!
11. mín
Víti? Þarna fannst mér Magni alveg gera tilkall til vítaspyrnu, en heimamenn sem eru að lýsa útsendingu frá leiknum eru ekki sannfærðir. Ibrahim fór niður i vítateig gestanna.
9. mín
Kormákur/Hvöt Zupancic
Marko - Papa - Sergio- Khalok
Sigurður Pétur - Goran
Götler
Jaheem - Kristinn Bjarni - Jón Gísli
8. mín
Ibrahim í liði Magna góðu færi en nær ekki að nýta það. Besta færið til þessa.

Magni fengið tvær hornspyrnur í upphafi leiks, en ekkert komið út úr þesim.
3. mín
Magni Einar Ari
Aron Elí - Sigurður Hrafn - Sigurður Brynjar - Garðar Gísli
Haukur Leó
Ottó Björn - Halldór
Gunnar Darri - Þorsteinn Ágúst - Ibrahim
1. mín
Gunnar Darri Bergvinsson með skot sem markvörður gestanna ver nokkuð þægilega. Flott fyrsta sókn leiksins.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja með boltann!
Fyrir leik
Tíu breytingar á liði Magna frá leiknum gegn Sindra Einungis Einar Ari í markinu heldur sæti sínu.
Fyrir leik
Magni án lykilmanns þar sem hann fékk að líta rauða spjaldið í Mjólkurbikarnum. Tómas Örn Arnarsson tekur út leikbann í dag. Hann hefur skorað sex mörk í níu deildarleikjum.
Fyrir leik
Það er marka lykt í Grýtubakkahreppnum í kvöld yfir 3.5 mörk er í boði á Epic á stuðlinum 1.95
Mate Dalmay
Fyrir leik
Í sitthvorri deildinni Magni situr í 3. sæti 3. deildar með 17 stig úr fyrstu níu leikjunum. Magni hefur ekki tapað í síðutu fjórum leikjum og vann 2-0 sigur á Sindra um helgina.

Kormákur/Hvöt er í 6. sæti 2. deildar með tólf stig úr fyrstu níu umferðunum. K/H tapaði 2-1 gegn toppliði Þróttar Vogum um liðna helgi.
Fyrir leik
Velkomin til Grenivíkur!
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Hér fer fram leikur Magna og Kormáks/Hvatara í 32-liða úrslitum Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.

miðvikudagur 25. júní
18:00 KF-Álftanes (Ólafsfjarðarvöllur)
18:00 Grótta-Dalvík/Reynir (Vivaldivöllurinn)
19:15 Magni-Kormákur/Hvöt (Grenivíkurvöllur)
19:15 Sindri-Árbær (Jökulfellsvöllurinn)
19:15 KV-Hvíti riddarinn (KR-völlur)
19:15 Víkingur Ó.-Elliði (Ólafsvíkurvöllur)
19:15 KFG-Víðir (Samsungvöllurinn)
19:15 Haukar-Ægir (BIRTU völlurinn)
19:15 ÍH-Þróttur V. (Skessan)

mánudagur 7. júlí
18:00 KFS-Vængir Júpiters (Týsvöllur)
Fyrir leik
Dregið á föstudag Þess má geta að drátturinn í 16-liða úrslit verður í hádeginu á föstudag. Í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Simon Zupancic (m)
4. Papa Diounkou Tecagne
6. Sigurður Pétur Stefánsson
9. Kristinn Bjarni Andrason ('90)
10. Matheus Bettio Gotler ('83)
11. Jón Gísli Stefánsson
15. Sergio Francisco Oulu
17. Goran Potkozarac
22. Abdelhadi Khalok
32. Marko Zivkovic ('94)
44. Jaheem Burke
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
3. Acai Nauset Elvira Rodriguez
13. Sigurður Bjarni Aadnegard ('90)
14. Hlib Horan ('83)
26. Haukur Ingi Ólafsson
53. Egill Þór Guðnason
66. Stefán Freyr Jónsson ('94)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Dominic Louis Furness (Þ)

Gul spjöld:
Papa Diounkou Tecagne ('39)
Jaheem Burke ('50)
Hlib Horan ('89)

Rauð spjöld:
Stefán Freyr Jónsson ('96)