Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
Besta-deild karla
Stjarnan
45' 1
0
Breiðablik
Lengjudeild karla
Selfoss
45' 1
0
Leiknir R.
Lengjudeild karla
ÍR
45' 1
0
Grindavík
Lengjudeild karla
Þróttur R.
45' 1
2
HK
Besta-deild karla
KA
73' 1
4
Valur
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 0
5
Þór
Vináttulandsleikur
Serbía
LL 1
3
Ísland
Stjarnan
1
0
Breiðablik
Benedikt V. Warén '8 1-0
27.06.2025  -  19:15
Samsungvöllurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
1. Aron Dagur Birnuson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson
11. Adolf Daði Birgisson
22. Emil Atlason
24. Sigurður Gunnar Jónsson
28. Baldur Logi Guðlaugsson
30. Kjartan Már Kjartansson
37. Haukur Örn Brink
41. Alexander Máni Guðjónsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Rajko Stanisic
Þór Sigurðsson
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Aleksandar Cvetic
Steven Roy Caulker

Gul spjöld:
Örvar Eggertsson ('30)
Örvar Logi Örvarsson ('42)

Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
Það er komin hálfleikur Sigurður Hjörtur flautar til hálfleiks. Fyrri hálfleikurinn hefur í raun verið í eign gestanna úr Smáranum en Stjarnan er yfir eftir frábært mark frá Benedikt Warén sem kom eftir skyndisókn.

Tökum okkur korter.
45. mín
Stjarnan fær hornspyrnu Jóhann Árni tekur hana og boltinn inn á teiginn en Anton Ari kýlir boltann í burtu og síðan er dæmt brot á Stjörnumenn fyrir að taka Viktor Karl niður.
45. mín
Þremur mínútum bætt við Uppbótartími fyrri hálfleiks er að lágmarki þrjár mínútur.
43. mín
Ágúst Orri með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn, boltinn endar hjá Andra Yeoman sem leggur boltann á Kidda sem á skot en Alex Þór kastar sér fyrir boltann.
42. mín Gult spjald: Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
Tekur Águst Orra niður á miðjum velli.
39. mín
Benedikt Warén með hættulegan bolta fyrir en enginn Stjörnumaður klár inn á teignum. Stjörnumenn halda þó boltanum.
36. mín
Örvar Eggertsson að leika sér að eldinum Er á gulu spjaldi og tekur Anton Loga niður og Blikar fá aukaspyrnu.

Verður Örvar tekinn útaf í hálfleik?
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Gult spjald: Örvar Eggertsson (Stjarnan)
28. mín
Örvar Logi með fyrirgjöf frá vinstri inn á Örvar Eggertsson sem nær skallanum en boltinn beint í hendur Anton Ara.
27. mín Gult spjald: Anton Logi Lúðvíksson (Breiðablik)
Stöðvar Örvar Eggerts sem var á leið upp völlinn.
25. mín
Leikurinn hefur farið fram á vallarhelmingi Stjörnunar Breiðablik hefur sótt og sótt en Stjarnan hefur ekki skapað sér eitt einasta færi fyrir utan þetta skyndisóknar mark.

Talandi um lið sem kunna að refsa!
21. mín
ÁRNI SNÆR MEÐ ROSALEGA MARKVÖRSLU! Blikar lyfta boltanum inn á teiginn. Sindri Snær nær ekki að skalla boltann nógu vel í burtu, boltinn berst á Viktor Karl sem lætur hann skoppa einusinni áður en hann lætur vaða en Árni Snær með frábæra markvörslu

Þarna var tækifæri fyrir Blika til að jafna leikinn.
18. mín
Kristinn Steindórsson fær boltann og reynir að finna sendingu inn í hlaupaleið Ágúst Orra en boltinn aðeins of fastur og rúllar afturfyrir.

Þetta hefur róast örlítið en það á eftir að kveikna í þessu aftur.
13. mín
BLIKAR NÁLÆGT ÞVÍ AÐ JAFNA Ágúst Orri fær boltann við endamörkin, leggur boltann út á Viktor Karl sem feikar skot yfir á hægri fótinn og á skot sem Stjörnumenn kasta sér fyrir.
8. mín MARK!
Benedikt V. Warén (Stjarnan)
VÁÁÁ TAKE A BOW BENEDIKT WARÉÉN!!! Þetta gerðist ekkert eðlilega hratt maður lifandi!!

Eftir þungasókn Breiðablik þar sem ég skil ekki hvernig Kiddi Steindórs náði ekki að skora þá keyra Stjörnumenn upp völlinn. Benedikt Warén fær boltann út til vinstri tekur boltann með sér, sker inn á völlinn og hamrar boltanum í fjærhornið, þvílíkt slútt!!

Gjörsamlega óverjandi fyrir Anton Ara.
5. mín
Ágúst Orri með flottan sprett upp hægramegin og á fyrirgjöf sem endar á fjær. Andri Rafn fær boltann, finnur Viktor Karl inn á teignum sem leggur boltann aftur á Andra sem á slaka fyrirgjöf sem fer afturfyrir.
3. mín
Vel mætt á Samsungvöllinn Það er sitið þétt í stúkunni hér í kvöld og það er eitthvað sem kemur mér ekkert á óvart enda um stórleik að ræða.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað á Samsung Sigurður Hjörtur flautar til leiks. Breiðablik byrjar með boltann.

Góða skemmtun.
Fyrir leik
10 mínútur í upphafsflautið Áhorfendur eru farnir að koma sér fyrir í stúkuna og liðin halda til búninsherbegja að leggja lokahönd á undirbúning fyrir leik.

Þetta verður einhver veislu leikur, ég trúi ekki öðru.
Fyrir leik
Epic Early win alert á Stjörnuna! 2.40 í stuðul sem dettur ef Stjarnan kemst yfir í leiknum á einhverjum tímapunkti.

Er ekki skrifað í skýin að Óli Valur skori gegn sínum gömlu félögum, stuðull 4.00 á Epic.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Jökull Elísarbetarson þjálfari Stjörnunnar gerir eina breytingu á sigurleiknum gegn ÍA. Örvar Logi Örvarsson kemur inn í liðið og fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson fær sér sæti á bekknum

Halldór Árnason þjálfari Breiðablik gerir tvær breytingar frá jafnteflinu gegn Fram. Ásgeir Helgi Orrason og Kristinn Steindórsson koma inn í liðið fyrir Höskuld Gunnlaugsson og Tobias Thomsen sem eru báðir í leikbanni í kvöld.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Breiðablik Svona spáum við að Breiðablik stilli liði sínu upp í kvöld.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrir leik
Líklegt byrjunarlið Stjörnunnar Svona spáum við að Stjarnan stilli liði sínu upp í kvöld.

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fyrir leik
Spámaðurinn Ásmundur Haraldsson, aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins, fékk það verkefni að spá í leikina sem framundan eru. Ási hefur verið aðstoðarþjálfari landsliðsins í yfir 100 leiki og er á leið á sitt þriðja stórmót með liðinu. Í kvöld spilar kvennalandsliðið æfingaleik gegn Serbíu, en það er síðasti leikur liðsins fyrir EM í Sviss.

Stjarnan 2 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Þetta verður hressasti leikur umferðarinnar. Hlakka til að sjá viðtöl eftir leik. Stjarnan kemst í 2-0 en Blikar jafna um miðjan seinni hálfleik af miklu harðfylgi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjörnufréttir Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Stjörnunni undnafarnadaga. Einn lykilmaður hefur framlengt og Steven Caulker, fyrrum leikmaður Liverpool og Tottenham er genginn í raðir Stjörnunnar. Það er ljóst að þetta eru ein stærstu félagaskipti í sögu íslensks fótbolta. Caulker á að baki 123 leiki í ensku úrvalsdeildinni á sínum ferli.




Mynd: Stjarnan

Fyrir leik
Alltaf gaman að mæta Stjörnunni Sæbjörn Steinke ræddi einnig við Halldór Árnason þjálfara Breiðablik í aðdraganda leiksins í kvöld.

„Þessi leikur leggst virkilega vel í mig, síðustu daga hef ég horft á síðasta leik við þá, það var hrikalega skemmtilegur leikur, einn af skemmtilegri leikjum sumarsins. Það er alltaf gaman að mæta Stjörnunni, þeir vilja pressa og geta bæði verið beinskeyttir og spilað boltanum. Þetta eru yfirleitt mjög fjörugir leikir og ég er mjög spenntur,"

Hvernig metur Dóri stöðuna á sínu liði fyrir leikinn?

„Við erum vonsviknir að hafa gert klaufalegt jafntefli á heimavelli í síðasta leik, en þar á undan voru tveir virkilega sterkir sigrar og frábær frammistaða. Við erum fullir sjálfstraust líka og ætlum okkur ekkert annað en sigur í Garðabæ. Við erum spenntir og kokhraustir. Við ætlum okkur að spila góðan leik og gera allt sem við getum til að ná í góð úrslit."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Jökull er spenntur fyrir leiknum í kvöld Sæbjörn Steinke ræddi við Jökul Elísarbetarson þjálfara Stjörnunnar í aðdraganda leiksins í kvöld.

„Leikurinn leggst mjög vel í mig, ég er mjög spenntur fyrir þessum leik, takturinn í liðinu og stemningin er góð. Við erum að fara mæta mjög öflugu liði og ég held að þetta verði mjög skemmtilegur leikur," segir Jökull Elísabetarson

Stjarnan hafa verið á goðu skriði í síðustu leikjum eftir frekar slæma byrjun í deildinni. Breytti Jökull einhverju?

„Já og nei eiginlega, ég ætla ekki að taka það einn því við sem hópur erum búnir að gera allskonar, búnir að spjalla og fara yfir allskonar hluti og vinna okkur í rétta átt. Ég myndi segja að allur hópurinn á hrós skilið fyrir hvernig við höfum komið okkur upp úr því sem við vorum í og á réttan stað sem ég tel okkur vera á núna. Við getum gert betur, og munum reyna að gera betur en við höfum verið að gera, en ég tel okkur vera komna á rétta leið."



Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Tveir lykilmenn Breiðablik ekki með í kvöld Höskuldur Gunnlaugsson og Tobias Thomsen eru báðir í leikbanni og geta ekki tekið þátt í leiknum hér í kvöld.

Blóðtaka fyrir Blika!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan?? Stjarnan fyrir leik kvöldsins situr í fjórða sæti deildarinnar með 20.stig og hefur liðið verið eitt heitasta lið deildarinnar ef horft er á síðustu fjórar umferðir. Stjarnan fór upp á Skaga í síðustu umferð og slátraði vængbrotnum Skagamönnum 3-0.

Breiðablik situr fyrir leik kvöldsins í öðru sæti deildarinnar með 23.stig. Breiðablik fékk Fram í heimsókn í leik sem endaði 1-1 eftir mikla dramatík á síðustu mínútum leiksins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Höskuldur tryggði Breiðablik stig og fékk svo að líta rautt spjald í kjölfarið.
Fyrir leik
Dómarararnir koma frá Akureyri Sigurður Hjörtur Þrastarson sér um allt fari vel fram á Samsungvellinum í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Eðvarðsson. Fjórði dómari er svo Hreinn Magnússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Friday night football í Garðabænum Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur á Samsungvöllinn í Garðabæ þar sem Stjarnan og Breiðablik mætast í Bestu deild karla.

Flautum til leiks klukkan 19:15

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
6. Arnór Gauti Jónsson
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
10. Kristinn Steindórsson
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
11. Aron Bjarnason
19. Kristinn Jónsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
24. Viktor Elmar Gautason
28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson
33. Gylfi Berg Snæhólm
39. Breki Freyr Ágústsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason

Gul spjöld:
Anton Logi Lúðvíksson ('27)

Rauð spjöld: