Besta-deild karla
Stjarnan

LL
1
4
4

Lengjudeild karla
Selfoss

LL
2
2
2

Lengjudeild karla
ÍR

LL
6
1
1

Lengjudeild karla
Þróttur R.

LL
2
2
2

Besta-deild karla
KA

LL
2
5
5

Lengjudeild karla
Fjölnir

LL
0
5
5

Vináttulandsleikur
Serbía

LL
1
3
3


Þróttur R.
2
2
HK

Aron Snær Ingason
'10
1-0
1-1
Eiður Atli Rúnarsson
'15
1-2
Birnir Breki Burknason
'38
Liam Daði Jeffs
'70
2-2
27.06.2025 - 19:15
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað 12° létt gola og vel vökvað gervigras. Gerist ekki betra
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
AVIS völlurinn
Lengjudeild karla
Aðstæður: Skýjað 12° létt gola og vel vökvað gervigras. Gerist ekki betra
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Byrjunarlið:
1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson
8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
('77)


19. Benóný Haraldsson
('46)


20. Viktor Steinarsson
('81)

21. Brynjar Gautur Harðarson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason

33. Unnar Steinn Ingvarsson
('86)


80. Liam Daði Jeffs
('81)
- Meðalaldur 22 ár


Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
6. Emil Skúli Einarsson
('86)

7. Eiður Jack Erlingsson
('81)

9. Viktor Andri Hafþórsson
('46)

10. Jakob Gunnar Sigurðsson
('81)

27. Sigfús Árni Guðmundsson
('77)

45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Valgeir Einarsson Mantyla
Stefán Þórður Stefánsson
Hans Sævar Sævarsson
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira
Gul spjöld:
Benóný Haraldsson ('37)
Unnar Steinn Ingvarsson ('59)
Baldur Hannes Stefánsson ('75)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Jafntefli hér í Laugardalnum. Líkast til sanngjörn úrslit, bæði lið fengu sín færi en náðu ekki að klára leikinn.
Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
Hann verður að skora þarna!
Karl Ágúst með frábæran bolta inn á teiginn og Jóhann í dauðafæri. Hann getur unnið leikinn fyrir HK þarna en skýtur beint á Þórhall.
93. mín
Rétt framhjá!
Brynjar Snær tekur skotið fyrir utan teiginn. Virkilega gott skot sem fer rétt framhjá stönginni!
89. mín
Gult spjald: Hákon Ingi Jónsson (HK)

HK-ingar brjálaðir og vilja fá vítaspyrnu. Eiðru Atli var kominn í góða stöðu inn í teig og fær hendina á Kolbein Nóa í bakið. Eiður fellur við þessa snertingu en kannski full auðveldlega og Gunnar dæmir ekki neitt.
Ég held þetta sé bara rétt hjá Gunnari.
Hákon fær gult fyrir tuð.
Ég held þetta sé bara rétt hjá Gunnari.
Hákon fær gult fyrir tuð.
84. mín
Frábær fyrirgjöf frá Eiríki inn í teig og Jakob nær skallanum. Hann nær hinvegar ekki nægilegum krafti í þetta og HK-ingar hreinsa.
77. mín

Inn:Sigfús Árni Guðmundsson (Þróttur R.)
Út:Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)
Baldur meiddist í tæklingunni.
75. mín
Gult spjald: Baldur Hannes Stefánsson (Þróttur R.)

HK fær aukaspyrnu á stórhættilegum stað.
70. mín
MARK!

Liam Daði Jeffs (Þróttur R.)
Þeir jafna!!!
Mistök í öftustu línu hjá HK og Þróttarar vinna boltann af þeim. Liam þá kominn einn gegn markmanni og klárar færið sitt vel!
64. mín
Flott sókn hjá Þrótturum. Þeir koma með fyrirgjöfina inn í teig en HK-ingar hreinsa. Aftur er það Unnar sem nær boltanum fyrir utan teiginn, reynir skotið, en hittir ekki boltann nógu vel og hann fer yfir.
62. mín
Aftur kemur spyrnan inn í teiginn og HK-ingar skalla frá. Þá er það Eiríkur sem nær skotinu fyrir utan teig. Tekur hann í fyrsta á lofti og þessi rétt yfir!
60. mín
Gult spjald: Ívar Örn Jónsson (HK)

Þróttarar fá aukaspyrnu á svipuðum stað og áðan.
58. mín
Eiríkur með spyrnuna inn í teig en HK skalla frá. Þá fær Unnar boltann fyrir utan teiginn og tekur skotið, en þessi rosalega hátt yfir.
57. mín
Gult spjald: Þorsteinn Aron Antonsson (HK)

Þróttarar fá aukaspyrnu nálægt hornfánanum. Þeir spyrna þessum inn í teiginn.
54. mín
Frábær markvarsla!
Aron Snær með boltan inn á teig og kemur boltanum á Viktor sem er í dauðafæri. Hann tekur fast skot en Ólafur stekkur eins og köttur og nær að verja þetta!
52. mín
Dauðafæri!!!
Þórhallur tekur markspyrnu hratt og boltinn er á hreyfingu þegar hann spyrnir í hann en ekkert dæmt. Hann neglir boltanum fram á Viktor Andra sem gerir frábærlega í að fara framhjá sínum varnarmanni og er þá einn gegn Ólafi.
Ólafur kemur vel út úr markinu og lokar á skotið þannig Viktor skýtur bara beint í hann.
Ólafur kemur vel út úr markinu og lokar á skotið þannig Viktor skýtur bara beint í hann.
48. mín
Dagur Ingi með lúmskt skot fyrir utan teig en frekar beint á Þórhall sem grípur boltann.
47. mín
Hlynur liggur í grasinu og þarf aðhlynningu. Hann röltir af velli og þá geta HK tekið hornspyrnuna ´sína. Dagur tók spyrnuna og lyfti boltanum inn á teig en Þórhallur kýldi boltann frá.
46. mín

Inn:Viktor Andri Hafþórsson (Þróttur R.)
Út:Benóný Haraldsson (Þróttur R.)
Ein breyting í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
HK leiðir þegar við tökum okkur smá pásu. Þetta hefur verið jafn leikur hingað til, en HK að nýta færin sín betur.
45. mín
Unnar með skotið fyrir utan teig en þessi fer beint á Ólaf sem grípur bara boltann.
41. mín
Jóhann Þór liggur í grasinu og þarf aðhlynningu. Hann hefur verið í nokkrum baráttum í þessum leik og er eitthvað að finna fyrir þeim.
38. mín
MARK!

Birnir Breki Burknason (HK)
HK-ingar komnir yfir!
Ívar tekur aukaspyrnu fyrir HK á miðjum vellinum og kemur með góðan bolta inn í teig. Tumi er þar í dauðafæri og nær skalla í átt að marki sem Þórhallur ver. Tumi nær öðru skotu sem fer í varnarmann áður en boltinn skýst til Birnis sem hefur autt markið fyrir framan sig og hann potar honum inn.
37. mín
Gult spjald: Benóný Haraldsson (Þróttur R.)

Benóný elti Jóhann einhverja 20 metra með hendurnar á undan sér. Hann var búinn að ákveða að rífa hann niður svona 10 sekúndum áður en hann gerði, það og ætlunarverkið tókst.
32. mín
Aron Kristófer með fast skot af löngu færi. Þetta var alveg hættulegt en Þórhallur gerði vel í að verja þetta.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Eiður Atli og Benóný skalla saman á miðjum vellinum. Halda báðir um hausinn og leikurinn stöðvaður. Þeir eru samt báðir fljótir að standa aftur upp og leikurinn heldur áfram.
24. mín
HK með horn sem Ívar tekur, góðs spyrna inn á teiginn hjá honum og Birnir nær skallanum en framhjá.
22. mín
Flott fyrirgjöf inn í teiginn hjá HK þar sem Dagur er með fullt af plássi. Hann nær hinsvegar ekki alveg að koma hausnum á boltann, fer í hendina á honum sýnist mér og Þróttarar ná boltanum aftur.
18. mín
HK á tvær hornspyrnur í röð en ekkert kemur í þeim. Í seinni spyrnunni nær Þorsteinn skallanum en hann fór langt framhjá.
15. mín
MARK!

Eiður Atli Rúnarsson (HK)
Þeir jafna!!!
HK á aukaspyrnu aðeins inn í vallarhelming Þróttara. Ívar lyftir boltanum inn í teig en Þróttarar skalla frá. Eiður nær til boltans fyrir utan teig og þrumar í átt að marki, Þórhallur átti ekki séns í þetta skot.
13. mín
Eiður Atli með pláss fyrir utan teiginn og tekur skotið, en í varnarmann og HK fær horn.
10. mín
MARK!

Aron Snær Ingason (Þróttur R.)
Stoðsending: Unnar Steinn Ingvarsson
Stoðsending: Unnar Steinn Ingvarsson
Frábærlega klárað!!
Unnar Steinn er með boltann á miðjum vellinum og kemur með einfaldan bolta inn fyrir vörnina. Það er alveg slökkt á vörn HK, og Aron er sá eini sem bregst við. Hahn hleypur á boltann og er kominn einn gegn markmanni. Hann klárar svo mjög vel framhjá Ólafi.
5. mín
Hörku tækling á miðjum velli, Gunnar ákveður að spjalda ekki. Þetta hefði verið gult á 30. mínútu.
1. mín
Hættulegur skalli!
HK með horn eftir svona 30 sekúndur af leiknum. Atli tekur spyrnuna og lyfitr boltanum inn í teig. Dagur Orri sýnist mér nær skallanum inn í teig, frábært færi en hann setur boltann rétt framhjá.
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Þróttur
Sigurvin Ólafsson þjáfari Þróttar gerir fjórar breytingar frá síðasta leik sem tapaðist 4-1 gegn Fjölni. Kolbeinn Nói Guðbergsson, Baldur Hannes Stefánsson, Benóný Haraldsson og Hlynur Þórhallsson koma allir inn í liðið. Emil Skúli Einarsson og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson fá sér sæti á bekknum, en Kári Kristjánsson og Njörður Þórhallsson eru ekki í hóp.
Kári hefur verið einn besti leikmaður Þróttara en er ekki með í dag.
HK
Hermann Hreiðarsson þjálfari HK gerir einnig tvær breytingar, en það er Ólafur Örn Ásgeirsson sem kemur í markið þar sem Arnar Freyr Ólafsson meiddist í síðasta leik. Aron Kristófer Lárusson, Birnir Breki Burknason og Atli Arnarson koma einnig inn í liðið. Kristján Snær Frostason og Brynjar Snær Pálsson fá sér sæti á bekknum, en Haukur Leifur Eiríksson er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik.
Arnar meiddist í síðasta leik og er því ekki með í dag.
Sigurvin Ólafsson þjáfari Þróttar gerir fjórar breytingar frá síðasta leik sem tapaðist 4-1 gegn Fjölni. Kolbeinn Nói Guðbergsson, Baldur Hannes Stefánsson, Benóný Haraldsson og Hlynur Þórhallsson koma allir inn í liðið. Emil Skúli Einarsson og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson fá sér sæti á bekknum, en Kári Kristjánsson og Njörður Þórhallsson eru ekki í hóp.

HK
Hermann Hreiðarsson þjálfari HK gerir einnig tvær breytingar, en það er Ólafur Örn Ásgeirsson sem kemur í markið þar sem Arnar Freyr Ólafsson meiddist í síðasta leik. Aron Kristófer Lárusson, Birnir Breki Burknason og Atli Arnarson koma einnig inn í liðið. Kristján Snær Frostason og Brynjar Snær Pálsson fá sér sæti á bekknum, en Haukur Leifur Eiríksson er í leikbanni eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik.

Fyrir leik
Laufdal spáir í spilin
Það er áhrifavaldurinn Arnar Laufdal sem spáir í leikina að þessu sinni. Arnar er þessa stundina í Serbíu þar sem hann er að sjá um samfélagsmiðlasköpun fyrir kvennalandsliðið í aðdraganda Evrópumótsins sem hefst í Sviss í næstu viku.
Þróttur R. 1 - 3 HK
Þvi? miður fyrir þann gríska og Þróttara þá eru HK alltaf að fara taka 3 punkta með aflitaða galdrakallinn Tuma Þorvars innan sinna raða. Ætli Dagur Garðars setji ekki a.m.k tvö kvikindi?
Þróttur R. 1 - 3 HK
Þvi? miður fyrir þann gríska og Þróttara þá eru HK alltaf að fara taka 3 punkta með aflitaða galdrakallinn Tuma Þorvars innan sinna raða. Ætli Dagur Garðars setji ekki a.m.k tvö kvikindi?

Fyrir leik
Dómarinn
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í þessum leik en honum til aðstoðar verða Smári Stefánsson og Tryggvi Elías Hermannsson.
Eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.
Eftirlitsmaður KSÍ er Ingi Jónsson.

Fyrir leik
HK á góður róli
HK byrjaði tímabilið ekkert sérstaklega vel með aðeins einn sigur í fyrstu fjóru leikjunum. Síðan þá hafa þeir snúið gengi sínu við og unnið fjóra af síðustu fimm. Það skilar þeim upp í 3. sæti deilarinnar, þrem stigum eftir toppliði Njarðvíkur.

Fyrir leik
Þróttarar óstöðugir
Þróttur er í 5. sæti deildarinnar með 14 stig. Þeirra helsta vandamál í sumar hefur verið að halda stöðugleika milli leikja. Í þar síðustu umferð unnu þeir Selfoss örugglega 2-0, en strax í næstu umferð mættu þeir lánlausum Fjölnismönnum og töpuðu 4-1.
Ef að Þróttarar ætla að halda sér í baráttunni ofarlega í töflunni, væri gríðarlega sterkt að vinna í kvöld.
Ef að Þróttarar ætla að halda sér í baráttunni ofarlega í töflunni, væri gríðarlega sterkt að vinna í kvöld.

Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Þorsteinn Aron Antonsson

7. Dagur Ingi Axelsson
9. Jóhann Þór Arnarsson

10. Birnir Breki Burknason
('66)


11. Dagur Orri Garðarsson
('66)

16. Eiður Atli Rúnarsson

18. Atli Arnarson
('46)

21. Ívar Örn Jónsson (f)

28. Tumi Þorvarsson
('85)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
2. Kristján Snær Frostason
('66)


14. Brynjar Snær Pálsson
('46)


19. Atli Þór Gunnarsson
23. Rúrik Gunnarsson
24. Magnús Arnar Pétursson
29. Karl Ágúst Karlsson
('85)

33. Hákon Ingi Jónsson
('66)
- Meðalaldur 21 ár


Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Arnþór Ari Atlason
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Lúðvík Már Matthíasson
Halldór Geir Heiðarsson
Gul spjöld:
Þorsteinn Aron Antonsson ('57)
Ívar Örn Jónsson ('60)
Brynjar Snær Pálsson ('63)
Kristján Snær Frostason ('72)
Jóhann Þór Arnarsson ('84)
Hákon Ingi Jónsson ('89)
Rauð spjöld: