Fotbolti.net
Besta deildin
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
12° og smá vindkæling
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 1
Afturelding
Afturelding
Nikolaj Andreas Hansen 50'1 - 01 - 152' Aron JóhannssonNikolaj Andreas Hansen 79'2 - 1
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Helgi Þór Gunnarsson

SKÝRSLAN: Sterkur heimasigur Víkings gegn nýliðunum

Hvað réði úrslitum?

Reynsla heimamanna kom þeim að góðum notum í þessum leik. Þeir áttu ekkert endilega skilið þrjú stig úr þessum leik en þeir fara bara og sækja þau.

Bestu leikmenn

1. Nikolaj Hansen

Sjálfvalið. Skorar tvö mörk og er alltaf réttur maður á réttum stað.

2. Oliver Ekroth

Klettur í vörninni, eins og alltaf. Á svo frábæra sendingu yfir vörn Aftureldingar í sigurmarkinu.

Atvikið

Sigurmarkið á 79 mínútu leiksins. Það gerði endanlega út af við leikinn og kannski að einhverju leyti óvænt.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Víkingur heldur toppsæti Bestu deildar karla og eru með þriggja stiga forskot á Breiðablik. Nýliðarnir úr Mosó sitja hins vegar sem fastast í sjöunda sætinu með 17 stig eftir þrettán leiki.

Vondur dagur

Erfitt að segja til um þetta. Það má alveg nefna vörn Aftureldingar í þessu samhengi. Fyrra markið kemur eftir auðvelda stungusendingu í gegnum vörnina. Þar hefði verið hægt að gera betur. Seinna markið kemur svo yfir bolta sem svífur yfir alla vörnina og bara formsatriði fyrir Nikolaj að klára það.

Dómarinn - 7

Twana skilaði bara af sér fínu verki í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.