Bayern hefur gert tilboð í Díaz - Liverpool vill Ekitike
Lengjudeild karla
Selfoss
LL 3
1
Fylkir
Lengjudeild karla
ÍR
LL 1
2
HK
Lengjudeild karla
Þróttur R.
LL 3
2
Keflavík
Lengjudeild karla
Fjölnir
LL 2
3
Grindavík
ÍR
1
2
HK
0-1 Dagur Orri Garðarsson '38
0-2 Dagur Orri Garðarsson '76
Guðjón Máni Magnússon '89 1-2
11.07.2025  -  19:15
AutoCenter-völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Jens Elvar Sævarsson
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
6. Kristján Atli Marteinsson
7. Óðinn Bjarkason ('80)
9. Bergvin Fannar Helgason
13. Marc Mcausland (f)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('71)
16. Emil Nói Sigurhjartarson ('46)
19. Hákon Dagur Matthíasson ('80)
23. Ágúst Unnar Kristinsson
25. Gundur Ellingsgaard Petersen
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
11. Guðjón Máni Magnússon ('71)
17. Óliver Andri Einarsson ('80)
20. Ísak Daði Ívarsson ('80)
21. Sigurður Orri Ingimarsson
22. Jónþór Atli Ingólfsson
44. Arnór Sölvi Harðarson ('46)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Ómar Atli Sigurðsson
Hrafn Hallgrímsson
Alexander Kostic
Andri Magnús Eysteinsson
Breki Hólm Baldursson
Davíð Örvar Ólafsson

Gul spjöld:
Kristján Atli Marteinsson ('41)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍR tapar sínum fyrsta leik! HK-ingar hirða stigin þrjú eftir stórskemmtilega viðureign hér í Breiðholtinu. Þvílkík spenna hér undir lok leiks.

Viðtöl og skýrsla innan skams.
96. mín
Aftur fá ÍR-ingar hornspyrnu, sem HK-ingar hreinsa í enn aðra hornspyrnuna.
95. mín
FRÁBÆRT FÆRI ÍR fær horn!

Boltinn fer beint á pönnuna á Guðjóni Mána sem skallar framhjá!
93. mín
ÍR í leit að jöfnunarmarki, en HK-ingar þéttir!
92. mín Gult spjald: Hermann Hreiðarsson (HK)
Sýnist Hemmi vera spjaldaður fyrir mótmæli.
91. mín
Karl Ágúst fellur við eftir samskipti við Marc Mcausland, en ekkert dæmt og það tryllist allt á HK bekknum!
89. mín MARK!
Guðjón Máni Magnússon (ÍR)
ÍR MINNKAR MUNINN Langt innkast inn á teiginn og boltinn dettur fyrir Guðjón Mána sem stýrir boltanum í netið!

Þetta verða heldur betur dramatískar lokamínútur.
87. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Jóhann Þór Arnarsson (HK)
87. mín
Inn:Þorvaldur Smári Jónsson (HK) Út:Dagur Orri Garðarsson (HK)
Markaskorarinn tekinn af velli Þorvaldur, sem er fæddur árið 2008 kemur inn í hans stað í sínum fyrsta leik.
82. mín
Dagur hótar þrennunni! Bolti úr hornspyrnu kemur á fjær, þar tekur Dagur viðstöðulaust skot sem mér sýndist Vilhelm verja í slánna og yfir, en Jens dæmir á markspyrnu.
82. mín
Brynjar Snær með skot sem fer af varnarmanni og rétt framhjá marki ÍR.
80. mín
Inn:Óliver Andri Einarsson (ÍR) Út:Hákon Dagur Matthíasson (ÍR)
80. mín
Inn:Ísak Daði Ívarsson (ÍR) Út:Óðinn Bjarkason (ÍR)
78. mín
Gundur með þrumuskot af löngu færi sem Óli ver vel í marki HK!
76. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
DAGUR ORRI TVÖFALDAR FORYSTUNA! Fær bolta í gegn og nær að stýra boltanum snyrtilega í netið, frábær afgreiðsla!
Þessi fallegi dagur heyrist HK-megin úr stúkunni.
76. mín
Inn:Magnús Arnar Pétursson (HK) Út:Kristján Snær Frostason (HK)
76. mín
ÍR með skot í stöng! Óðinn Bjarkason með skot í stöngina úr þröngu færi.
75. mín
Reiður Birnir Breki Birnir nýkominn inn á og brýtur af sér með 20 sekúndna millibili.
73. mín
Brynjar Snær Pálsson með skot framhjá marki ÍR eftir góðan undirbúning Tuma Þorvars.
71. mín
Inn:Guðjón Máni Magnússon (ÍR) Út:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR)
70. mín
Bergvin Fannar liggur niðri vegna höfuðmeiðsla í teig HK, óskaði eftir vítaspyrnu en fékk hana nú ekki.
67. mín
ÍR-ingar fá aukaspyrnu um 25 metrum frá marki HK. Óðinn Bjarkason lætur vaða, en boltinn í varnarvegginn og aftur fyrir endalínu.
66. mín Gult spjald: Kristján Snær Frostason (HK)
Fer harkalega í Víði Frey og fær gult spjald.
64. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (HK) Út:Ívar Örn Jónsson (HK)
64. mín
Inn:Brynjar Snær Pálsson (HK) Út:Ívar Orri Gissurarson (HK)
63. mín
Vilhelm Þráinn, markvörður ÍR og Dagur Orri skella saman. Dagur liggur enn niðri og þarfnast aðhlynningar.

Dagur nær að halda leik áfram.
62. mín
Heimamenn fá hornspyrnu.
56. mín Gult spjald: Ívar Orri Gissurarson (HK)
Ívar stöðvar skyndisókn með tæklingu og fær gult spjald að launum.
54. mín
ÍR-ingar taka langt innkast, boltinn fer fyrir markið en framhjá öllum leikmönnum. Þarna munaði litlu.
53. mín
Pirringur í mönnum Arnór Sölvi fellur við eftir einhver samskipti við Aron Kristófer, boltinn ekkert nálægt en ekkert brot dæmt.

Aron Kristófer býður svo upp á handaband til að grafa stríðsöxina, en Arnór sleppir því.
51. mín
Hákon Dagur með skot vel framhjá marki gestanna.
48. mín
HK-ingar í góðu færi Ívar Orri með baneitraða sendingu í gegn á Tuma Þorvars, sem fer í skotið en Vilhelm lokar vel. Boltinn berst þá á Dag Orra sem reynir að lyfta boltanum yfir varnarmenn og í netið en skotið yfir mark gestanna.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað! Heimamenn sparka þessu í gang.
46. mín
Inn:Arnór Sölvi Harðarson (ÍR) Út:Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
Ein breyting í hálfleik
45. mín
Sveppi sigrar! Öruggur á punktinum, frábær vinstri löpp sem Sveppi er með, ÍR-ingar vinna vítaspyrnukeppnina!
45. mín
NABLINN KLÚÐRAR Lætur Jóhannes verja frá sér, skelfilegt víti. Sveppi getur tryggt sigurinn.
45. mín
Báðir skora! Ennþá allt jafnt fyrir lokaumferðina!
45. mín
Sveppi löpp! Jóhannes Kristinn ver frábærlega frá Sveppa, sem lúðraði á markið.
45. mín
Nablinn setur hann í stöngina! Hitti boltann voðalega illa.
45. mín
Sveppi og Nablinn etja kappi Nú er komið að vítakeppni aldarinnar, þar mæta til leiks ÍR-ingurinn Sveppi Krull og Andri Már Eggertsson, Nablinn sjálfur fyrir hönd HK.
45. mín
Hálfleikur
Jens Elvar flautar til hálfleiks, mikið jafnræði með liðunum, en HK leiðir. Ekki fara langt, vítakeppni aldarinnar innan skams.
44. mín
ÍR-ingar syngja til stuðningsmanna HK ,,er þetta leikskóli?", illa vegið að innipúkunum að mínu mati.
41. mín Gult spjald: Kristján Atli Marteinsson (ÍR)
Ósáttir ÍR-ingar ÍR-ingar orðnir trylltir út í dómarateymið, Kristján Atli öskrar á AD1 að það geti ekki allt fallið með HK-ingum og uppsker gult spjald fyrir það.
38. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
SÁ FUNHEITI BRÝTUR ÍSINN! Dagur Orri fær bolta í gegn, í stöðugri baráttu við varnarmann, en nær að koma sér í skotið sem endar í netinu, frábærlega gert!

Níunda mark Dags í deildinni!
37. mín
ÍR-ingar komnir í góða stöðu í teignum, þá sýnist mér Ívar Örn bara detta um sjálfan sig en Jens Elvar dæmir brot, ÍR-inga til lítillar skemmtunar.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, Marc Mcausland á skalla að marki en Ólafur ver örugglega.
25. mín
Óðinn Bjarkason með skot hátt yfir mark gestanna.
21. mín
Nú fær ÍR horn, en Ólafur Örn grípur spyrnuna.
19. mín
HK-ingar taka langt innkast, sýnist það vera Dagur Orri, sem nær að skalla boltann, úr verður hætta en Vilhelm ver svo boltann í horn.

Hornspyrnan fer svo yfir allan pakkann og í markspyrnu.
17. mín
HK-ingurinn Jóhann Þór sleppur einn í gegn, en réttilega flaggaður rangstæður.
14. mín
Góð varsla Emil Nói með gott skot fyrir utan teig en Ólafur Örn, eða Óli Neuer eins og hann er kallaður í efri byggðum, ver frábærlega.
10. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, en spyrnan ekki yfir fyrsta mann og ÍR kemur hættunni frá.
9. mín
Góð stemning í stúkunni!
8. mín
Gott færi ÍR-inga ÍR-ingar keyra hratt upp völlinn, boltinn dettur fyrir Óðinn Bjarkason sem skýtur framhjá.
5. mín
Aron Kristófer Lárusson með skot lengst utan af velli sem hafnar framhjá.
2. mín
HK-ingar í góðri sókn, sem endar með skalla Ívars Orra sem Vilhelm ver örugglega.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
HK leika í bláu HK-ingar leika í glænýjum albláum varabúningum. ÍR-ingar leika í sínum hefðbundnu hvítu og bláu búningum.
Fyrir leik
Styttist... Liðin ganga til vallar, sólin og áhorfendur taka vel á móti þeim.
Fyrir leik
Korter í leik, áhorfendur tínast í stúkuna og það er bongó, þetta stefnir í einhverja snilld.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Óbreytt hjá ÍR Jóhann Birnir, þjálfari ÍR, gerir engar breytingar á sínu liði frá hörkusigri í Árbænum í síðustu umferð.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari HK, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 3-1 dramatískum sigri gegn Völsungi.

Inn í byrjunarliðið koma þeir Ívar Orri, Kristján Snær og Ívar Örn Jónsson. Á bekkinn fara þeir Magnús Arnar og Birnir Breki, en Dagur Ingi er utan hóps.
Fyrir leik
Leikurinn er í beinni útsendingu á Livey


Fyrir leik
Gamli leikurinn ÍR-HK er nú kannski ekki þekkt rimma, en ég vil rifja upp þegar liðin mættust í 2. deildinni fyrir 12 árum á ÍR-vellinum. Þar enduðu leikar 1-3 fyrir HK-ingum, og auðvitað var Hafliði Breiðfjörð mættur á leikinn að mynda.

Tryggvi Guðmunds var á meðal markaskorara í leiknum og Herra HK, Leifur Andri skoraði í eigið net. Til þess má geta að Gunnlaugur Jónsson stýrði HK-liðinu upp úr 2. deildinni þetta tímabilið. ÍR endaði þá í fjórða sæti deildarinnar, aðeins einu stigi frá toppliði HK.

25.7.2013
ÍR 1-3 HK


1-0 Leifur Andri Leifsson ('4, sjálfsmark)
1-1 Hörður Magnússon ('10)
1-2 Tryggvi Guðmundsson ('22)
1-3 Ásgeir Marteinsson ('90, vítaspyrna)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Magnús Þór Magnússon, markvörður ÍR, tekur niður Ásgeir Marteinsson.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Tryggvi Guðmundsson og ungur fyrirliði ÍR, Alexander Kostic í baráttunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Guðmundur Atli í skallabaráttunni, hann var markahæsti leikmaður deildarinnar með 17 mörk þetta tímabil.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Tryggvi reyndist HK-ingum drjúgur þrátt fyrir stutta dvöl. Í þeim tíu leikjum sem hann spilaði fyrir liðið skoraði hann 5 mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Gunnar Jarl var á flautunni í hlaupaskóm.
Fyrir leik
Vítakeppni aldarinnar í hálfleik Það verður mikið um dýrðir í kvöld, það verður engu sparað í hálfleiksskemmtun, en haldin verður vítakeppni með rándýrum keppendum.

Keppandi ÍR er enginn annar en Sveppi Krull og fyrir hönd HK mætir Nablinn sjálfur.


Fyrir leik
Vinna alla leiki á heimavelli ÍR-ingar hafa leikið fimm leiki á heimavelli og unnið þá alla. Liðið er enn taplaust í allri deildinni, fróðlegt að sjá hvort að einhver breyting verði þar á í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fær Hemmi Hreiðars þrjú stig í afmælisgjöf? Tómas Bent Magnússon, sem skoraði tvö mörk fyrir Val í Evrópusigri í gær, er spámaður umferðarinnar. Hann er gamall lærisveinn Hermanns Hreiðarssonar, þjálfara HK, sem á afmæli í dag og spáir að Eiður Atli gefur Hemma góða afmælisgjöf.

ÍR 1 - 2 HK
Dagur Garðars kemur HK yfir, Arnór Sölvi jafnar rétt fyrir hálfleik. Það gerist ekki mikið í seinni hálfleik, en Eiður Atli stangar boltann inn beint úr horni og gefur þjálfara sínum 3 stig í afmælisgjöf.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spenna í deildinni ÍR-ingar eru taplausir á toppi deildarinnar, þá hefur liðið aðeins fengið sex mörk á sig eftir 11 umferðir, lægst allra liða.

Eftir hæga byrjun á mótinu, er HK nú komið upp í þriðja sæti deildarinnar.


# - Lið - L - MT - Stig
1 - ÍR - 11 - +14 - 25
-------------------------------
2 - Njarðvík - 11 - +18 - 23
3 - HK - 11 - +10 - 21
4 - Keflavík - 11 - +8 - 18
5 - Þróttur R. - 11 - +2 - 18
-------------------------------
6 - Þór - 11 - +7 - 17
7 - Völsungur - 11 - -9 - 13
8 - Grindavík - 11 - -9 - 11
9 - Fylkir - 11 - -2 - 10
10 - Fjölnir - 11 - -12 - 9
-------------------------------
11 - Leiknir R. - 11 - -13 - 9
12 - Selfoss - 11 - -14 - 7

Mynd: Lengjudeildin

Fyrir leik
Stórleikur á föstudagskvöldi! Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu úr Mjóddinni.

Hér í kvöld á AutoCenter-vellinum mun topplið Lengjudeildarinnar, ÍR, taka á móti Liði Fólksins úr efri byggðum, HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Kristján Snær Frostason ('76)
3. Ívar Orri Gissurarson ('64)
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Þorsteinn Aron Antonsson
9. Jóhann Þór Arnarsson ('87)
11. Dagur Orri Garðarsson ('87)
15. Haukur Leifur Eiríksson
16. Eiður Atli Rúnarsson
21. Ívar Örn Jónsson (f) ('64)
28. Tumi Þorvarsson
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m)
10. Birnir Breki Burknason ('64)
14. Brynjar Snær Pálsson ('64)
24. Magnús Arnar Pétursson ('76)
29. Karl Ágúst Karlsson ('87)
33. Hákon Ingi Jónsson
71. Þorvaldur Smári Jónsson ('87)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Arnþór Ari Atlason
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Halldór Geir Heiðarsson
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Ívar Orri Gissurarson ('56)
Kristján Snær Frostason ('66)
Hermann Hreiðarsson ('92)

Rauð spjöld: