SKÝRSLAN: FH ekki í brasi á grasi
Hvað réði úrslitum?
FH-ingarnir gerðu vel í fyrri hálfleiknum að ná inn tveimur mörkum og áttu að fá víti meira að segja fyrir hálfleiksflautið sem hefði getað komið þeim í 3-0 en eftir þennan fyrri hálfleik voru þeir aldrei að fara að tapa að mínu mati.
Bestu leikmenn
1. Björn Daníel Sverrisson
Besti maður vallarins að mínu mati. Byrjar þetta af krafti fyrir FH í fyrri hálfleik og stóð fyrir sínu eins og svo oft áður.
2. Úlfur Ágúst Björnsson
Var frábær í dag eins og svo oft áður. Leggur upp tvö mörk og var stanslaust að skapa færi fyrir Kjartan Kára í seinni hálfleiknum. Frábær í dag en margir aðrir sem var hægt að nefna eins og Kjartan Kári, Böðvar, Siggi Hall og fleiri.
Atvikið
Það er oft talað um þetta mikilvæga þriðja mark og það var mikilvægt í dag. Ég sá bara nánast uppgjöf í KA-mönnum eftir það mark.
Hvað þýða úrslitin?
FH-ingarnir eru komnir upp í 7. sætið en KA-menn eru áfram í næst neðsta sæti.
Vondur dagur
Tönning í marki KA leit alls ekki vel út í fyrsta marki FH þegar hann gefur boltann á Björn Daníel sem klárar í tómt markið.
Dómarinn - 6
Mér fannst FH eiga að fá púra víti rétt fyrir hálfleik og svo tók ég eftir mörgum dómum hér og þar í báðar átti sem ég var ekki sammála.




