SKÝRSLAN: Eitthvað sem engin skilur
Hvað réði úrslitum?
Í fullri einlægni þá hef ég ekki minnstu hugmynd um það. Varnarleikur beggja liða var hreinlega skammarlegur og þá sérstaklega fyrri háfleikurinn. En hvað gerist þegar Keflvíkingar minnka munin í 4-3 skil ég ekki. Trúin virtist algjörlega hverfa úr hjörtum Fjölnismanna sem mölbrotnuðu og létu Keflvíkinga vaða yfir sig. Hvers vegna það gerðist er ég samt engu nær um.
Bestu leikmenn
1. Marin Mudrazija
Gæinn gat ekki keypt sér mark framan af móti en gerði tvö í dag og var hættulegur. Ef hann er að finna takt gæti það reynst Keflvíkingum dýrmætt
2. Bjarni Þór Hafstein
Verulega ógnandi af vinstri væng Fjölnis. Leggur upp tvö mörk og skorar sjálfur og var óheppinn að bæta ekki öðru við.
Atvikið
Þessar lokamínútur voru eitthvað annað. Þrír varamenn og þrjú mörk og töpuðum leik snúið í sigur. Fátt annað um það að segja.
Edon Osmani með upphaf endurkomunar með fyrstu snertingu kom líka vel til greina en það var ekki hægt að skilja þennan kafla í sundur.
Hvað þýða úrslitin?
Keflvíkingar eru áfram í 6.sætinu en aðeins stigi á eftir Þrótti í því 5.
Fjölnismenn á sama tíma fara niður í botnsætið með 9 stig einu stigi á eftir liði Leiknis.
Vondur dagur
Varnarmenn beggja liða áttu hreint út sagt skelfilegan dag. Áhorfendur kvörtuðu ekki og hvað þá ef þeir voru hlutlausir en þetta var hreinlega ekki boðlegt.
Dómarinn - 8
Lítið upp á Svein og hans teymi að klaga. Svei mér þá ef þetta var hreinlega ekki bara nokkuð vel dæmt hjá þeim heilt yfir.


