Man Utd hefur áhuga á að fá Baleba frá Brighton - Everton í viðræðum um Grealish - Newcastle vill McGinn
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Víkingur R.
12' 0
0
Bröndby
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Zrinjski Mostar
45' 0
1
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Fram
45' 0
2
Breiðablik
Besta-deild kvenna
Stjarnan
45' 0
0
Tindastóll
Besta-deild kvenna
Þór/KA
47' 0
0
Valur
Lengjudeild kvenna
ÍBV
45' 2
0
Afturelding
Fram
0
2
Breiðablik
0-1 Samantha Rose Smith '9 , víti
0-2 Kristín Dís Árnadóttir '35
07.08.2025  -  18:00
Lambhagavöllurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Byrjunarlið:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
5. Dominiqe Evangeline Bond-Flasza
6. Katrín Erla Clausen
7. Alda Ólafsdóttir
9. Murielle Tiernan
10. Una Rós Unnarsdóttir
11. Lily Anna Farkas
13. Mackenzie Elyze Smith (f)
14. Hildur María Jónasdóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
23. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
8. Karítas María Arnardóttir
15. Sara Dögg Ásþórsdóttir
22. Ólína Sif Hilmarsdóttir
25. Thelma Lind Steinarsdóttir
77. Eyrún Vala Harðardóttir
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Thelma Björk Theodórsdóttir
Svava Björk Hölludóttir
Pálmi Þór Jónasson
Gareth Thomas Owen
Kirian Elvira Acosta
Guðlaug Embla Helgadóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
Algjör einstefna eftir fyrstu 20 mínúturnar og leikurinn fór nánast eingöngu fram á vallarhelmingi Fram

Fengu gefins víti stelpurnar í Breiðablik en annars fara þær með sanngjarna forystu í klefa

Tökum okkar 15
45. mín
Tvær í uppbót
42. mín
Samantha aftur með slaka hornspyrnu Annað sinn í þessum leik sem Samantha á lélega hornspyrnu frá hægri í hliðarnetið.
39. mín
Barbára með neglu í slánna Þung sókn núna hjá Breiðablik sem hefur algjörlega tekið yfir þennan leik

Líklegar til að bæta við og þarna var skot frá 25 metra færi hjá Barböru í slánna

Þóra hefði engum vörnum komið við hefði boltann farið rétt undir
35. mín MARK!
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Svakalegt skot í sammann Barbára með fyrirgjöfina og boltinn á Unu sem á hrikalega hreinsun.

Stutt og beint á Kristínu Dís sem tekur sig til og hamrar boltanum viðstöðulaust í hægri samskeytin

Alvöru mark!!
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Flott sókn hjá Breiðablik Loksins sýna þær almennilega hvað í þeim býr.

Samantha á Líf sem sendir svo á Birtu.

Birta sloppin í gegn en færið þröngt, skýtur fast en í hliðarnetið.
29. mín
Góður sprettur hjá Murielle Virkilega vel gert hjá Murielle á hægri og kemur boltanum fyrir.

Berst svo í fæturnar á Ólínu sem hittir boltann afar illa og framhjá

Ólína hefur fengið tvö fín færi hér í dag.
23. mín
Breiðablik fær horn En skelfileg spyrna hjá Samantha í hliðarnetið

Ólíkt henni
18. mín
Rólegt um þessar mundir Heilt yfir hafa Blikarnir verið aðeins betri en Fram hefur líka átt sín moment.

Algjör óþarfi hjá Ásmundi dómara að hjálpa gestunum.
13. mín
Dauðafæri hjá Ólínu Sending inn í teig frá Hildi og lekur í gegnum vörnina og beint í fæturnar á Ólínu.

En sú skýtur beint á Katherine og ver í horn.

Smá vandræðagangur í teignum eftir hornið en gestirnir hreinsa burt
11. mín
Breiðablik Katherine
Barbára - Helga - Elín - Kristín
Sam - Heiða - Hrafnhildur - Líf
Birta - Edith
9. mín Mark úr víti!
Samantha Rose Smith (Breiðablik)
Með vinstri og örrugt eins og allt sem Samantha gerir
7. mín
Breiðablik fær víti Skrítið víti finnst mér

Dæmt hættuspark á Hildi á Edith

Ekki viss um að ég sé sammála þessu

Búinn að skoða betur og bara alls ekki sammála þessum dómi
4. mín
Fram liðið Þóra
Hildur - Mackenzie - Dom - Freyja
Una - Katrín - Ólína - Lillý
Alda - Murielle
1. mín
Leikur hafinn
Fjörið er byrjað og það er heimakonur sem sparka þessu af stað.

4 mínútum of seint, veit ekki af hverju
Fyrir leik
Smá seinkun Klukkan er orðin en ekki byrjað, og liðin ekki enn komin út á völl
Fyrir leik
Meistararnir eru í góðum gír Breiðabliks liðið hefur verið í góðum takti í undanförnum leikjum og hafa raðað inn mörkunum. Erfiður dagur á skrifstofunni framundan hjá varnarlínu Fram. Breiðablik yfir 3.5 mörk er á stuðlinum 2.01 hjá Epic.
Fyrir leik
Breiðablik breytingar Nik gerir hvorki meira né minna en fimm breytingar fá sigurleiknum gegn Val í síðustu umferð

Inni í liðið koma þær Hrafnhildur Ása Haldórsdóttir, Kristín Dís Árnadóttir, Helga Rut Einarsdóttir, Edith Kristín Kristjánsdóttir og Líf Van Bemmel.

Á bekkinn fara þær Agla María Albertsdóttir, Andrea Rut Bjarnadóttir, Áslaug Munda, Heiðdís Lillýardóttir og Berglind Björg Þorvaldsóttir.
Fyrir leik
Fram breytingar fyrir leik Óskar Smári gerir þrjár breytingar frá tapleiknum á móti FH í síðustu viku

Inn í liðið koma þær Dominiqe Flasza, Olína Ágústa Valdimarsdóttir og Freyja Dís Hreinsdóttir.

Á bekkinn Thelma Steindórsdóttir og þær Olga Ingibjörg Einarsdóttir og Kamila Pickett eru utan hóps.

Elaina Carmen er ennþá í banni en kemur væntanlega í liðið í næstu umferð.
Fyrir leik
Besti leikmaður Fram Að mínu mati er ekki mikill vafi á besta leikmanni Fram en hún heitir Murielle Tiernan og hefur verið stórkostleg fyrir nýliðanna í sumar.

Kominn með 8 mörk í 11 leikjum og hefur ekki átt í neinum vandræðum með að fylgja eftir góðri frammistöðu í Lengjudeildinni. Lengjudeildin eða Besta deildan sú kann að skora mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Agla María Albertsdóttir á eldi Agla María Albertsdóttir hefur komið virkilega sterk til baka eftir vonbrigðin í Sviss með landsliðinu.

Það er valin kona í hverri stöðu í liði Breiðabliks en á góðum degi er engin betri en Agla María í Bestu deildinni

Hún hefur verið valinn besti leikmaðurinn í síðustu tveimur leikjum liðsins af Fótbolta.net

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarar í kvöld Ásmundur Þór Sveinsson Dómari
Jón Reynir Reynisson Aðstoðardómari 1
Nour Natan Ninir Aðstoðardómari 2
Ólafur Ingi Guðmundsson Eftirlitsmaður
Ronnarong Wongmahadthai Varadómari

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fjórar markahæstu deildarinnar að mætast Það eru miklar líkur á mörkum í kvöld og það í fleirtölu.

Fjórar markahæstu stelpurnar í Bestu deildinni eru að fara að mætast, en þær eru:

Berglind Björg Þorvalsdóttir 10 mörk
Murielle Tiernan 8 mörk
Birta Georgsdóttir 8 mörk
Samantha Rose Smith 8 mörk

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er markhæst í Bestu deildinni
Fyrir leik
Fyrri viðureign liðanna Þessi tvö lið mættust þann 29. apríl á Kópavogsvelli og gjörsigraði Breiðablik Fram 7-1.

En ég get staðfest það að Fram liðið í dag er ekki sama liðið og var þá. Á þessum tímapunkti voru nýliðarnir í Fram að spila sinn þriðja leik í Bestu deildinni.

Eftir þennan leik tóku Fram stelpurnar stórt stökk og unnu 5 af næstu 6 leikjum sínum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Smári Haraldsson hefur gert flotta hluti með nýliðum Fram
Fyrir leik
Breiðablik Hvað getur maður sagt um Breiðablik annað en að þær hafa spilað stórkostlega undanfarið. Þær hafa unnið síðustu fimm leiki í deildinni og það sannfærandi.

Í síðustu umferð unnu þær bikarmeistara Vals sannfærandi 3-0 og þar á undan Þrótt 3-1.

Það virðist fátt þessa stundina ætla að koma í veg fyrir að þær verði Íslandsmeistarar aftur þegar deildinni lýkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fram Stelpurnar í Fram voru á blússandi siglingu rétt fyrir hlé. Þær höfðu unnið 3 leiki í röð og bikarmeistara Vals á Híðarenda.

En þá tók við hrikalega erfitt leikjaskipulag og þær eru eftir þennan leik búnar að fá toppliðin þrjú í röð.

Þær fengu Þrótt í heimsókn rétt fyrir hlé og FH í Kaplakrika núna í síðustu umferð. Báðir þessir leikir töpuðust 1-3.

Það er ekki auðveldara verkefni sem býður þær hér í dag þegar Breiðablik kemur í heimsókn.

Það er nokkuð ljóst að KSÍ er ekki að gera nýliðunum neina greiða þessa dagana.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Besta deild kvenna heilsar Góðan dag kæru áhorfendur

Verið hjartanlega velkomin á Lambhagavöll eða Dal draumanna eins og hann er gjarnan kallaður, enda stórglæsilegur völlur.

Nýliðarnir í Fram fá íslandsmeistara Breiðabliks í heimsókn og leikurinn hefst kl 18 í kvöld

Þetta verður 13. leikur Breiðabliks en 12. leikur Fram. Það er verið að hliðra til vegna þáttöku Breiðabliks í Evrópu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
12. Katherine Devine (m)
4. Elín Helena Karlsdóttir (f)
5. Samantha Rose Smith
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir
26. Líf Joostdóttir van Bemmel
27. Barbára Sól Gísladóttir
28. Birta Georgsdóttir
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
7. Agla María Albertsdóttir
11. Andrea Rut Bjarnadóttir
17. Karitas Tómasdóttir
20. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
22. Heiðdís Lillýardóttir
23. Berglind Björg Þorvaldsdóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Bjarki Sigmundsson
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Valdimar Valdimarsson
Eiríkur Raphael Elvy
Eyrún Ingadóttir
Ísak Þór Ólafsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: