SKÝRSLAN: Framlágir Framarar sáu ekki til sólar á Akureyri
Hvað réði úrslitum?
KA menn virtust einfaldlega tilbúnari í slaginn. Hver leikur fram að tvískiptingu deildarinnar er úrslitaleikur fyrir flest lið og það var eins og Framarar hefðu ekki fengið minnismiðann. Það er verkefni Rúnars Kristinssonar og félaga hans í Fram að laga þetta hið snarasta ef að liðið ætlar sér að enda í efri hlutanum.
Bestu leikmenn
1. Jóan Símun Edmundsson (KA)
Hallgrímur Jónasson tjáði mér eftir leik að Jóan ætti einnig seinna markið svo að hann er mögulega tveggja marka maður í dag! Þar fyrir utan var hann líflegur, hélt boltanum vel og var ávallt tilbúinn að stinga sér aftur fyrir vörn Fram ef að færi gafst.
2. Birgir Baldvinsson (KA)
Öflugur í dag. Nýtti hraða sinn og styrk á báðum endum vallarins og gerði frábærlega í fyrra marki leiksins.
Atvikið
Seinna mark KA manna var glimrandi gott. Vel spilað og Færeyingurinn Jóan Símun kláraði færið af öryggi.
Hvað þýða úrslitin?
KA menn koma sér upp fyrir Fram og eru nú í 7. sæti Bestu-deildarinnar. Þeirra næsti leikur er gegn Stjörnunni í Garðabænum. Fram eru sæti neðar og eiga næst heimaleik gegn Valsmönnum.
Vondur dagur
Framarar fundu aldrei taktinn í dag. Náðu að setja ágætis pressu á KA í seinni hálfleiknum, en það virtist lítil sannfæring í þeirra sóknaraðgerðum og heimamönnum leið bara þokkalega vel að verja sína forystu.
Dómarinn - 7
Nokkur skrítin augnablik, en Twana var bara fínn ef á heildina er litið.




