Í BEINNI
Besta-deild karla
ÍA

LL
3
0
0


ÍA
3
0
Breiðablik

Ómar Björn Stefánsson
'12
1-0
Gísli Laxdal Unnarsson
'37
2-0
Steinar Þorsteinsson
'99
3-0
11.09.2025 - 17:00
ELKEM völlurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
ELKEM völlurinn
Besta-deild karla
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Byrjunarlið:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
('89)

7. Haukur Andri Haraldsson
9. Viktor Jónsson
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)

17. Gísli Laxdal Unnarsson
('71)


19. Marko Vardic
('74)

20. Ísak Máni Guðjónsson

22. Ómar Björn Stefánsson
('89)


66. Jón Gísli Eyland Gíslason
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
12. Jón Sölvi Símonarson (m)
4. Hlynur Sævar Jónsson
('89)

8. Albert Hafsteinsson
('71)

10. Steinar Þorsteinsson
('89)


11. Birnir Breki Burknason
15. Gabríel Snær Gunnarsson
18. Guðfinnur Þór Leósson
('74)

27. Brynjar Óðinn Atlason
33. Arnór Valur Ágústsson
- Meðalaldur 22 ár
Liðsstjórn:
Lárus Orri Sigurðsson (Þ)
Aron Ýmir Pétursson
Stefán Þór Þórðarson
Teitur Pétursson
Dean Martin
Dino Hodzic
Mario Majic
Gul spjöld:
Rúnar Már S Sigurjónsson ('55)
Ísak Máni Guðjónsson ('95)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Í þann mund sem markið kemur flautar Sigurður þetta af. Lífsnauðsynlegur sigur Skagamanna og mjög þungt tap fyrir Blika sem eru ekki að fara Íslandsmeistarar.
Viðtöl og skýrsla koma síðar í kvöld.
Viðtöl og skýrsla koma síðar í kvöld.
99. mín
MARK!

Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Skagamenn hérna að klára þetta! Steinar og Viktor tveir gegn einum og Steinar gerir þetta bara sjálfur og klárar vel.
Skagamenn blanda sér aftur í baráttu um að halda sæti sínu!
Skagamenn blanda sér aftur í baráttu um að halda sæti sínu!
98. mín
Höskuldur með skalla eftir hornið en Árni grípur þetta. Þetta er að fjara út fyrir Blika.
89. mín
Blikar ná að koma boltanum yfir línuna en dæmt brot. Árni Maríno liggur eftir, ég held þetta sé bara rétt þótt Blikarnir séu ekki sáttir.
89. mín

Inn:Steinar Þorsteinsson (ÍA)
Út:Ómar Björn Stefánsson (ÍA)
Báðir markaskorarnir nú farnir af velli.
89. mín

Inn:Hlynur Sævar Jónsson (ÍA)
Út:Baldvin Þór Berndsen (ÍA)
Báðir markaskorarnir nú farnir af velli.
82. mín
Valgeir fer niður í teignum. Vill víti en þetta hefði verið fullharður dómur, lítið í þessu.
74. mín
Rúnar Már!
Gummi Magg kemur boltanum á Kristófer sem er í dauðafæri einn gegn Árna en Rúnar Már mætir upp úr engu og kemur sér fyrir þetta.
71. mín

Inn:Albert Hafsteinsson (ÍA)
Út:Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Gísli verið sprækur í dag og skoraði gott mark.
68. mín
Höskuldur leikur sér hér fyrir utan teig, fíflar nokkra Skagamenn og á svo skot sem Árni ver vel.
63. mín
Hættulegur bolti fyrir markið frá Davíð, skapast smá darraðadans og Blikar fá horn.
61. mín

Inn:Guðmundur Magnússon (Breiðablik)
Út:Tobias Thomsen (Breiðablik)
Þrír sóknaemenn inná. Blikar verða að reyna sækja sigur hér.
61. mín

Inn:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Út:Kristinn Jónsson (Breiðablik)
Þrír sóknaemenn inná. Blikar verða að reyna sækja sigur hér.
61. mín

Inn:Ágúst Orri Þorsteinsson (Breiðablik)
Út:Óli Valur Ómarsson (Breiðablik)
Þrír sóknaemenn inná. Blikar verða að reyna sækja sigur hér.
60. mín
Jón Gísli gjörsamlega hamrar boltann fyrir netið. Þarna skapaðist stórhætta en enginn mættur til að pota boltanum inn.
53. mín
Gult spjald: Valgeir Valgeirsson (Breiðablik)

Mjög svo harkaleg tækling á Hauki sem steinliggur eftir.
52. mín
Dauðafæri!!
Óli Valur með fyrirgjöf beint á pönnuna á Damir inn á markteign sem skallar beint á Árni sem nær að halda þessu í burtu.
45. mín
Hálfleikur
Fáum við remontada endurkomu hjá Blikum hér í síðari hálfleik? Stuðullinn á að Blikar nái jafntefli eða sigri er 3.40 á Epic!
45. mín
Hálfleikur
Skagamenn eru hér við það að sleppa í gegn en Sigurður Hjörtur flautar af. Þeir eru reiðir yfir þessu. Blikar höfðu hér rétt á undan átt skot í stöngina frá Kidda Steindórs.
Skagamenn sanngjarnt yfir hér. Gæti verið meiri forysta. Sjáum hvernig Blikar svara í seinni. Allt undir.
Skagamenn sanngjarnt yfir hér. Gæti verið meiri forysta. Sjáum hvernig Blikar svara í seinni. Allt undir.
45. mín
Hvernig endar þetta ekki inni!?
Ótrúlegur darraðadans hér eftir horn hjá Skaganum!
Boltinn dettur svo til Rúnars sem á skot sem er á leið inn en Tobias bjargar á línu!
Boltinn dettur svo til Rúnars sem á skot sem er á leið inn en Tobias bjargar á línu!
45. mín
Hættuleg sókn hjá Blikum. Óli leggur hann út á Valgeir sem er einn gegn Árna en er alltof lengi að þessu og þetta rennur út í sandinn.
44. mín
Þvílíkur sprettur!!
Johannes Vall hleypur hér upp allann vinstri kantinn og leggur hann svo út á Hauk sem er í hörkufæri, skotið vel út við stöng en of laust og Anton ver.
37. mín
MARK!

Gísli Laxdal Unnarsson (ÍA)
Stoðsending: Marko Vardic
Stoðsending: Marko Vardic
Ég skal nú segja ykkur það!!!
Marko Vardic með boltann í einhverju brasi hérna hægra meginn í teignum. Leggur hann út á Gísla sem gjörsamlega hamrar hann í fjærhornið.
Skagamenn að tvöfalda forystuna.
Skagamenn að tvöfalda forystuna.


Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
34. mín
Gult spjald: Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðablik)

Fyrir brot á Baldvini á miðjum velli. Slær frá sér sýnist mér.
25. mín
Ótrúleg varsla!
Valgeir Valgeirsson með flotta fyrirgjöf inn í teig þar sem Óli Valur mætir með flottan skalla sem er á leið í fjærhornið, skoppar í jörðinni og Árni vel meistaralega!
23. mín
Þrumuskot
Baldvin Berndsen með þrumufleyg hérna af einhverjum 30 metrum en Anton Ari ver þetta út í teiginn á Ómar sem er rangstæður.
18. mín
Blikar banka!
Höskuldur í góðri stöðu innan teigs og skýtur í átt að marki en boltinn af varnarmanni og aftur fyrir.
12. mín
MARK!

Ómar Björn Stefánsson (ÍA)
Stoðsending: Viktor Jónsson
Stoðsending: Viktor Jónsson
Skagamenn leiða!!!
Johannes Vall með fyrirgjöf sem fer af tveimur varnarmönnum og í Viktor og dettur fyrir Ómar Björn sem klárar afbragðsvel í fjærhornið.
Rosalega tilviljanakennt en líklega sanngjarnt miðað við byrjun leiksins.
Rosalega tilviljanakennt en líklega sanngjarnt miðað við byrjun leiksins.

4. mín
Marko Vardic hér með skalla í afbragðsfæri eftir hornið en framhjá. Skagamenn byrja betur.
4. mín
Opnast allt hérna í skyndisókn hjá Skagamönnum en Blikar komast til baka og koma þessu í horn.
1. mín
Dauðafæri!
Hornspyrna hjá Skagamönnum hér á upphafsmínútunni. Klafs í kjölfarið og boltinn endar hjá Gísla Laxdal sem er einn á fjærstönginni en Anton ver vel.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Gemmer og Aron Bjarna utan hóps
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir fjórar breytingar á sínu liði frá tapinu gegn ÍBV í síðustu umferð. Baldvin Þór Berndsen, Gísli Laxdal Unnarsson, Ísak Máni Guðjónsson og Ómar Björn Stefánsson koma inn í liðið. jonas Gemmer er utan hóps og þeir Steinar Þorsteinsson, Birnir Breki Burknason og Gabríel Snær Gunnarsson taka sér sæti á bekknum. Hlynur Sævar Jónsson er mættur á bekkinn eftir meiðsli.
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir tvær breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn Víkingi í síðustu umferð. Viktor Karl Einarsson tekur út leikbann og Aron Bjarnason er ekki í leikmannahópi Breiðabliks. Inn koma þeir Óli Valur Ómarsson og Kristinn Steindórsson. Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) og Birkir Þorsteinsson (2009) koma inn á bekkinn.
Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, gerir tvær breytingar á sínu liði frá jafnteflinu gegn Víkingi í síðustu umferð. Viktor Karl Einarsson tekur út leikbann og Aron Bjarnason er ekki í leikmannahópi Breiðabliks. Inn koma þeir Óli Valur Ómarsson og Kristinn Steindórsson. Gunnleifur Orri Gunnleifsson (2008) og Birkir Þorsteinsson (2009) koma inn á bekkinn.
Fyrir leik
Skagamenn rúlluðu yfir Blikana
Fyrri leikur liðanna var ótrúlegur. Skagamenn mættu þá á Kópavogsvöll og gjörsamlega gengu frá Blikum, 4-1.
Mörk Skagamanna skoruðu Erik Sandberg, Ómar Björn Stefánsson, Viktor Jónsson og Gísli Laxdal Unnarsson. Mark Blika skoraði Tobias Thomsen.
Mörk Skagamanna skoruðu Erik Sandberg, Ómar Björn Stefánsson, Viktor Jónsson og Gísli Laxdal Unnarsson. Mark Blika skoraði Tobias Thomsen.

Fyrir leik
Breiðablik
Blikarnir eru að mörgu leyti í sambærilegri stöðu og Skagamenn, þó á sitthvorum enda töflunnar. Blikar mega nefnilega ekki missa mikið fleiri stig ef skjöldurinn á að halda sér í Kópavogi.
Liðið er nú í 4. sæti, sjö stigum frá toppliði Vals. Sigur í dag er nauðsynlegur ef Blikar ætla að taka þátt í toppbaráttu eftir tvískiptinguna.
Liðið er nú í 4. sæti, sjö stigum frá toppliði Vals. Sigur í dag er nauðsynlegur ef Blikar ætla að taka þátt í toppbaráttu eftir tvískiptinguna.

Fyrir leik
ÍA
Skagamenn eru með bakið uppvið vegg og mega ekki tapa mikið fleiri stigum ef þeir ætla að eygja von um það að halda sæti sínu í deildinni að ári.
Liðið er í neðsta sæti með aðeins 16 stig, 8 stigum frá öruggu sæti. Sigur í dag myndi þó líklega hleypa trú á verkefninu í liðið. Seinasti séns.
Liðið er í neðsta sæti með aðeins 16 stig, 8 stigum frá öruggu sæti. Sigur í dag myndi þó líklega hleypa trú á verkefninu í liðið. Seinasti séns.

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
6. Arnór Gauti Jónsson
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)

9. Óli Valur Ómarsson
('61)

10. Kristinn Steindórsson
17. Valgeir Valgeirsson

18. Davíð Ingvarsson
19. Kristinn Jónsson
('61)

21. Viktor Örn Margeirsson
44. Damir Muminovic
77. Tobias Thomsen
('61)
- Meðalaldur 30 ár

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
('61)

23. Kristófer Ingi Kristinsson
('61)

28. Birkir Þorsteinsson
29. Gabríel Snær Hallsson
31. Gunnleifur Orri Gunnleifsson
33. Gylfi Berg Snæhólm
99. Guðmundur Magnússon
('61)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Særún Jónsdóttir
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson
Brynjar Dagur Sighvatsson
Dagur Elís Gíslason
Gul spjöld:
Höskuldur Gunnlaugsson ('34)
Valgeir Valgeirsson ('53)
Rauð spjöld: