SKÝRSLAN: Mark ársins, áhorfendamet og almenn gleði
Hvað réði úrslitum?
Luis Alberto Diez Ocerin réði úrslitum í þessum leik og hans mögnuðu aukaspyrnur. Ég hef örlítið fylgst með Ólsurum í sumar og hann hefur mikið heillað. Góður í bolta og með góðan leikskilning.
Bestu leikmenn
1. Luis Alberto Diez Ocerin
Engin spurning í mínum huga. Skorar fyrsta markið og leggur upp það seinna frá nákvæmlega sama stað og fyrsta markið kom. Hann bara vinnur leikinn og var góður í dag.
2. Ivan Lopez Cristobal
Erfitt að velja ekki varnarmann sem heldur hreinu og skorar í úrslitaleik. Ivan var góður í dag, öruggur í sínum aðgerðum og toppaði daginn með góðu skallamarki.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins sem Luis Alberto skoraði. Aukaspyrna frá nánast miðjum vellinum sem fór óvart í skeytina og inn að hans sögn. Þetta kom honum líka gífurlega mikið á óvart sá maður þegar boltinn söng í netinu.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur Ólafsvík er Fótbolti.net bikarmeistari árið 2025 en Stólarnir taka silfrið. Svo var gaman að heyra að slegið var áhorfendamet í Fótbolti.net bikarnum í dag þegar alls 1160 manns sóttu þennan geggjaða leik.
Vondur dagur
Erfitt að velja einhvern einn. Nikola í marki Stóla hefði mögulega átt að koma í veg fyrir fyrsta markið þar sem boltinn var ansi lengi í loftinu og á leiðinni í netið. En annars var þetta alveg góð spyrna.
Dómarinn - 6
Mér fannst þetta heilt yfir vera mjög vel dæmdur leikur hjá Gunnari. Stólarnir gerðu tvö stór vítaköll í leiknum, fyrra atvikið var ekki víti að mínu mati en seinna atvikið var víti fannst mér. En þar hefði aðstoðardómarinn getað séð mjög vel.



