Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Jónasson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Kerecisvöllurinn
Sól og 8 gráður
Vestri
Vestri
0 - 5
ÍBV
ÍBV
0 - 110' Sigurður Arnar Magnússon 0 - 241' Hermann Þór Ragnarsson0 - 345' Hermann Þór Ragnarsson0 - 445' Oliver Heiðarsson0 - 584' Hermann Þór Ragnarsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Leik lokið!
ÍBV pakka Vestra saman
0-5 lokaniðurstaða, skýrsla kemur inn seinna í dag
90. mín
Elmar Atli með ágæta tilraun sem Zapytowski ver
88. mín
ÍBV fá hornspyrnu
ÍBV
85. mín
InnNökkvi Már Nökkvason
ÚtVicente Rafael Valor Martínez
ÍBV
85. mín
InnVíðir Þorvarðarson
ÚtHermann Þór Ragnarsson
ÍBV
84. mín
MAAAARK!

Hermann Þór Ragnarsson (stoðsending: Þorlákur Breki Þ. Baxter)

Vestri í sókn og tapa boltanum Vicente Valor spilar boltanum í gegn á Þorlák Breka sem rennir boltanum fyrir markið á Hermann sem klára þetta
Vestri
82. mín
InnGuðmundur Arnar Svavarsson
ÚtAnton Kralj
81. mín
Jeppe Pedersen með fyrirgjöf úr aukaspyrnu sem Duah skallar beint á markið
ÍBV
78. mín
InnBirgir Ómar Hlynsson
ÚtElvis Okello Bwomono
ÍBV
78. mín
InnSverrir Páll Hjaltested
ÚtOliver Heiðarsson
77. mín
Eiður Aron reynir að lyfta boltanum inn á Pétur Bjarnason en hann nær ekki til boltanns
75. mín
Kannski gefur þetta Vestramönnum einhvern auka kraft en erfitt að skora 4 mörk á 15 mínútum
Vestri
74. mín
InnBirkir Eydal
ÚtThibang Sindile Theophilius
Vestri
74. mín
InnEmmanuel Agyeman Duah
ÚtDiego Montiel
Vestri
74. mín
InnPétur Bjarnason
ÚtVladimir Tufegdzic
73. mín
Hermann Þór potar hér boltantum inn eftir að Vicente Valor kemst upp hægri kanntinn og setur boltann í 2 Vestramenn og svo á Hermann en það er flögguð rangstæða
70. mín
Ágúst Eðvald með skot fyrir utan teig en það fer yfir markið
69. mín
Vestri fá aðra hornspyrnu
66. mín
Vestri fá hornspyrnu
60. mín
Mjög lítið að gerast Vestramenn ekki nógu góðir sóknarlega og ÍBV bara sáttir með stöðuna
55. mín
Langt innkast Tufa skallar boltann á Eið Aron sem setur boltann í slánna en það er flögguð rangstæða
54. mín
Vestri að ógna meira en ná ekki skoti á markið
Vestri
50. mín
Gult spjald

Elmar Atli Garðarsson

Alvöru Súðvísk fyriliða tækling hjá Elmari, reyna kveikja aðeins í þessu
49. mín
Þorlákur Breki með skot fyrir utan teig en það fer rétt framhjá
48. mín
Diego Montiel með sendingu inn fyrir vörn ÍBV en Tufa með lélega snertingu og boltinn fer útaf
ÍBV
46. mín
InnJorgen Pettersen
ÚtAlex Freyr Hilmarsson
Vestri
46. mín
InnElmar Atli Garðarsson
ÚtGunnar Jónas Hauksson
46. mín
Seinni hálfleikurinn er farinn af stað, ÍBV byrja með boltann. Spennandi að sjá hvað Vestra menn gera í seinni hálfleiknum!
45. mín
Hálfleikstölfræði frá Sýn
Með boltann: 67% - 33%
Skot: 4-6
Skot á mark: 1-6
Hornspyrnur: 4-1
Rangstöður: 1-2
45. mín
Hálfleikur
0-4 í Hálfleik ÍBV að leika sér með Vestra
Vestramenn með boltann mest allann leikinn en hafa lítið ógna og Eyjamenn varist vel og sótt hratt og eru búnir að ganga frá þessu Vestri er ekki að fara skora 5 mörk í seinni hálfleik!
ÍBV
45. mín
Vestravörnin lekur!!!

Oliver Heiðarsson (stoðsending: Hermann Þór Ragnarsson)

Hermann Þór með frábæra hælspyrnu inn fyrir vorn Vestra sem fer á Oliver Heiðarsson sem er sloppinn einn í gegn og lyftir boltanum framhjá Guy Smit! Frábært mark hjá Eyjamönnum
ÍBV
45. mín
ÍBV að klára þetta í fyrri hálfleik???

Hermann Þór Ragnarsson (stoðsending: Oliver Heiðarsson)

Arnar Breki rennir boltanum inn fyrir á Oliver sem setur boltann fyrir á Hermann sem potar boltanum inn
ÍBV
41. mín
Skelfileg sending tilbaka!!!

Hermann Þór Ragnarsson

Hermann Þór að koma ÍBV 0-2 yfir hérna!! Diego Montiel með stoðsendingu hann rennir boltanum bara fyrir Hermann með ömurlegri sendingu tilbaka sem var ætluð Guy Smit og Hermann tekur boltann framhjá Guy og rennir boltanum inn!!
39. mín
Vestri miklu meira með boltann. ÍBV eru bara verjast og Vestri að senda á milli
33. mín
Gunnar Jónas þarf aðhlynningu eftir samstuð
Vestri
32. mín
Gult spjald

Eiður Aron Sigurbjörnsson

31. mín
Vestri fá hornspyrnu
30. mín
Mjög góður kafli hjá Vestra svona síðust 6-7 mínúturnar, ÍBV varla snert boltann.
28. mín
Vestri vilja vítapyrnu eftir að Gunnar Jónas fellur inn í teig Eyjamanna en það var ekkert í þessu
26. mín
Vestramenn að komast upp hægri kanntinn í 3 skipti í þessum leik Gunnar jónas með fyrirgjöf en það nær enginn Vestramður boltanum
23. mín
Vicente Valor rennir boltanum í gegn á Oliver Heiðarsson sem er kominn inn fyrir vörnina og á fínt skot sem Guy Smit ver vel í horn
18. mín
Ágúst Eðvald kominn upp hægra megin kemur boltanum fyrir en sendingin er fyrir aftan alla Vestramennina í teignum og ÍBV fær boltann
15. mín
Fyrstu hornspyrnu leiksins fá Vestramenn
13. mín
Vestri á hér aukapyrnu á fínum stað. Diego Montiel tekur spyrnuna beint í andlitið á Breka Baxter sem liggur hér eftir
ÍBV
10. mín
Eyjamenn komnir yfir!!!

Sigurður Arnar Magnússon (stoðsending: Alex Freyr Hilmarsson)

Alex Freyr með aukaspyrnu beint Sigurð Arnar sem skallar þetta inn ÍBV eru komnir yfir á Ísafirði!!!
8. mín
Montiel kominn í fína stöðu fyrir utan teig Eyjamanna en nær ekki að taka skotið
7. mín
Kemur fyrirgjöf sem Gustav Kjeldsen skallar upp í loftið, boltinn endar svo hjá Tufa sem á lausan skalla beint á Marcel Zapytowski
5. mín
Vestri fá fyrstu aukaspyrnu leiksins, bortið á Diego Montiel á miðjum velli
3. mín
Vestri komnir upp hægra megin þar fær Gunnar Jónas boltann kemur honum fyrir en boltinn fer í gegnum allann pakkann og í innkast
1. mín
Leikur hafinn
Vestri sparka þessu í gang, góða skemmtun!
Fyrir leik
Vestri á 3.10 á Epic gegn IBV er of goður stuðull til að sleppa honum, sigur býr til smá andrými en tap þýðir húrrandi fallbarátta. Davíð mun mótivera þá í dag
Fyrir leik
Liðinn að labba inn á völlinn
Fyrir leik
Fatai með slitin krossbönd
Davíð Smári var að staðfesta að Fatai Gbadamosi væri með slitin krossbönd, þetta eru vondar fréttir fyrir Vestra!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breyting á liðunum
Vestri gera eina breytingu á sínu liði Fatai sem fór meiddur af velli í síðasta leik er ekki í hóp og Morten Hansen kemur inn í liðið fyrir hann á Cafu Phete færist væntanlega upp á mipju í stöðuna hanns Fatai, Pétur Bjarnason er einnig á bekk Vestra og gæti fengið sínar fyrstu mínútur í Bestu deildinni á þessu tímabili.

ÍBV gera 2 breytingar á sínu frá jafnteflinu gegn Aftureldingu í síðustu umferð, Milan Tomic og Sverrir Páll Hjaltested fara úr byrjunarliðinu og inn fyrir þá koma Þorlákur Breki Þ. Baxter og Arnar Breki Gunnarsson
Fyrir leik
Fatai Gbadamosi
Fatai fór meiddur útaf á börum í leiknum gegn ÍA í síðustu umferð í stöðunni 0-0 og þá hrundi lið Vestra og fengu á sig 4 mörk. Ég tel ólíklegt að Fatai verði með í dag en Davíð sagði í viðtali að þetta væru minni meiðsli en menn héldu í fyrstu.

Fyrir leik
Staða liðanna
Vestri sitja í 9.sæti með 27 stig 3 Stigum fyrir ofan KR sem sitja í 10.sæti en með sigri í dag gæti Vestri jafnað ÍBV af stigum í 7.sætinu, það er mikilvægt fyrir Vestra að sækja 3 stig í dag og komast 6 stigum fyrir ofan KR því það eru bara 9 stig eftir í pottinum.

ÍBV sitja í 7.sæti með 30 stig 6 stigum frá falli ef þeir sækja úti sigur í dag þá þori ég að segja að ÍBV verði í deild þerra bestu á næstu leiktíð.

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Fyrir leik
Dómarar
Gunnar Oddur Hafliðason dæmir þennan leik og honum til aðstoðar eru Eysteinn Hrafnkelsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage

Eftirlitsmaður er Garðar Örn Hinriksson og varadómari er Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Ísafjörð
Góðan dag og velkomin í þessa beinu textalýsingu á leik Vestra og ÍBV á Kerecis vellinum á Ísafirði.

Það er frítt á völlinn, sól og 8 gráður úti ef einhver á Ísafirði er að lesa þetta þá er um að gera að skella sér á völlinn.

Mynd: Brynjar Óli Ágústsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.