Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
3 - 4
FH
FH
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir 2'1 - 01 - 111' Thelma Lóa Hermannsdóttir1 - 217' Thelma Karen PálmadóttirGyða Kristín Gunnarsdóttir (misnotað víti) 30'Birna Jóhannsdóttir 45'2 - 22 - 352' Thelma Karen Pálmadóttir2 - 481' Berglind Freyja HlynsdóttirSandra Hauksdóttir 93'3 - 4
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Sjö marka leikur á Samsung

Hvað réði úrslitum?

FH var með boltann flest allan leikinn og var með góð tök á honum. Mörkin sem þau fá á sig voru klárlega á þannig tíma að þær voru ekki með fókus og var alveg hægt að komast fram hjá þeim. Tvö af fjórum mörkum FH kom eftir lélega sendingu frá Stjörnunni og FH refsaði.

Bestu leikmenn

1. Thelma Karen Pálmadóttir (FH)

Var góð í dag og skoraði tvö flott mörk, þrátt fyrir að spila 90 mínútur þá var mikil orka í henni allan leikinn.

2. Macy Elizabeth Enneking (FH)

Þrátt fyrir að fá á sig þrjú mörk í dag og fyrsta markið leit mjög illa út þá varði hún víti og góð tækifæri sem Stjarnan fékk, Stjarnan hefði getað skorað fleiri í dag ef Enneking væri ekki í markinu.

Atvikið

Strax eftir að FH kemst yfir þá tekur FH yfirhöndina og er að halda í boltann vel og Stjarnan var í erfiðleikum flest allan leikinn að koma boltanum upp völlinn og þannig var þetta allan leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er á botni efri hlutans með 28 stig en FH færir sig nær Breiðablik og er það aðeins orðið 7 stig á milli. FH tekur á móti Þrótt í næsta leik og hann getur verið mikilvægur um það hver fær annað sætið þar sem liðin eru með jafn mörg stig.

Vondur dagur

Hassett var í vandræðum með Thelmu yfir mest allan leikin, hún vissulega fær víti en var oftast á tímum að ,,ball watcha" þegar boltinn kom hátt yfir hennar megin og Thelma var þá oft á tíðum sloppin í gegn.

Dómarinn - 8

Vel dæmdur leikur, engin vafaatriði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.