SKÝRSLAN: Stjarnan skein á Hlíðarenda
Hvað réði úrslitum?
Stjörnukonur mættu klárar til leiks og þær nutu þess að spila, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þær voru ótrúlega lunknar í að koma sér í frábærar stöður og unnu svolítið bara baráttuna í öllum stöðum inn á vellinum.
Bestu leikmenn
1. Snædía María Jörundsdóttir
Átti frábæran leik í dag, setti 2 mörk fyrir Stjörnuna og var sí ógnandi framá við og djöflaðist vel í varnarmönnum Vals. Skemmtilegur leikmaður sem er gaman að fylgjast með.
2. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Átti líka frábæran leik í dag! Setti fyrsta mark Stjörnunar og átti svo þátt í hinum báðum mörkunum. Frábær leikmaður sem les leikinn vel og er stórhættuleg bæði í markaskorun og lúmskum sendingum.
Atvikið
Verð að nefna vítaspyrnan sem Anna Rakel fær og tekur sjálf í stöðunni 0-1 spyrnan ekki nógu góð og Valur missir þar af stóru tækifæri til að jafna leikinn. Hefði Valur jafnað hefði leikurinn vel getað endað á annan hátt.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Stjarnan skýst upp í 4. sætið, með 31 stig, þremur stigum á undan Víking og Val sem nú sitja í 5. og 6. sæti efri hlutans.
Vondur dagur
Vondur dagur hjá Val bara og stuðningsmönnum þeirra myndi ég segja, tapa tvöfalt í kvöld, Valskonur tapa á fótboltavellinum og karlalið Vals á körfuboltavellinum.
Hvaða brandari er það annars að hafa báða leikina á sama tíma annar inni og hinn úti á Hlíðarenda?
Gaaaalin pæling ef þú spyrð mig....
Hvaða brandari er það annars að hafa báða leikina á sama tíma annar inni og hinn úti á Hlíðarenda?
Gaaaalin pæling ef þú spyrð mig....
Dómarinn - 7
Bara fínasta frammistaða hjá dómarateyminu í dag, engar stórkostlegar ákvarðanir sem þeir þurftu að taka fyrir utan vítið kannski.



