SKÝRSLAN: Stjarnan á leið í úrslitaleik
Hvað réði úrslitum?
Fram var heilt yfir betra liðið í dag og komst sanngjarnt yfir, líklega svekktir að ná ekki að halda forystunni lengur. Stjarnan hafði þó um meira að keppa og líklega var viljinn meiri þar til að sækja þetta undir restina.
Bestu leikmenn
1. Fred Saraiva
Langbestur í dag. Er að spila stöðu sem hann er ekki vanur þessa dagana sem fremsti maður og manni finnst hann eins og hann hafi aldrei gert annað.
2. Örvar Eggertsson
Skorar gott mark þar sem hann er mættur grimmur á fjærstöngina. Þess utan fannst mér hann vera líklegastur Stjörnumanna til að skora.
Atvikið
Mér fannst Fram bara skora fullkomnlega lögleg mark í fyrri hálfleik þegar Kennie Chopart skoraði eftir hornspyrnu. Markið var þó dæmt af fyrir meint brot Kyle McLagan, rangur dómur.
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan á heimaleik gegn Breiðabliki í næsta leik þar sem liðið tryggir sig í Evrópu svo lengi sem það tapar ekki með tveimur mörkum eða meira. Fram á leik gegn FH og sigur þar tryggir fimmta sæti.
Vondur dagur
Mér fannst eins og Árni hefði átt að gera betur í markinu hjá Fred. Fyrir utan það var hann bara flottur þannig líklega er ansi hart að setja hann hér, einhver verður þó að vera hérna.
Dómarinn - 4
Fram skorar löglegt mark í fyrri hálfleik sem er dæmt af. Þess utan var ÞÞÞ flottur en það er dýrt að klikka á stóru atvikunum.




