Man Utd lækkar ekki verðmiða Rashford - Liverpool ræðir við Szoboszlai - Toney gæti snúið aftur til Englands
Í BEINNI
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
Breiðablik
45' 0
2
Häcken
Breiðablik
0
2
Häcken
Samtals
0
:
9
0-1 Paulina Nyström '2
0-2 Emma Östlund '18
18.02.2026  -  18:00
Kópavogsvöllur
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
Aðstæður: Skítakuldi en fínt fyrir febrúar
Dómari: Marta Huerta De Aza (Spánn)
Byrjunarlið:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir
8. Katelyn Duong
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
24. Helga Rut Einarsdóttir
27. Barbára Sól Gísladóttir
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Eva Ýr Helgadóttir (m)
6. Mikaela Nótt Pétursdóttir
9. Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
10. Bryndís Arna Níelsdóttir
23. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
26. Líf Joostdóttir van Bemmel
29. Sunna Rún Sigurðardóttir
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
78. Karólína Ósk Guðmundsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
Stefán Logi Magnússon

Gul spjöld:
Karitas Tómasdóttir ('42)

Rauð spjöld:
45. mín
Hálfleikur
2-0 fyrir Häcken hér í hálfleik

Þetta leit ekki vel út í byrjun fyrir Blika en þær náðu að vinna sig inn í leikinn og þetta er svo svart og hvítt miðað við fyrri viðureign.

Blikarnir eru miklu þéttar og beittari fram á við sem léttir á pressunni og auðveldar varnarmönnum Blika. Það er eins og maðurinn sagði ,,offence is the best defence"

Það hefur heldur ekki hjálpað Häcken að missa Sampaio útaf hún var og er með bestu leikmönnum Häcken.

Ég kalla hér eftir a.m.k. einu marki frá Blikum í seinni hálfleik!
45. mín
A.m.k 2 mínútum bætt við venjulegan leiktíma
45. mín
Elísa Viðars á frábæra fyrirgjöf á Öglu Maríu sem ætlar að lauma honum til hliðar á Barbáru en leikmaður Häcken kemst inn í þetta,
45. mín
Blikarnir eru alveg að eiga sénsa hérna fyrir framan markið hjá Häcken það vantar bara örlítið upp á til að pota þessu inn
43. mín
Það er fljótt á milli hérna Edith pressar Fanneyju sem rétt nær að koma honum frá, boltinn fljótur að berast yfir allan völlin sending síðan inn á Jusu Bah en hún er eftur rangstæð
42. mín Gult spjald: Karitas Tómasdóttir (Breiðablik)
40. mín
Tindell brýtur á Karitas, Kristín Dís tekur þetta stutt upp á Barbáru
39. mín
Schröder með ágætis skot en Herdís Halla ver
37. mín
Edith reynir að stinga boltanum inn fyrir á Hrefnhildi Ásu en Selerud kemst í boltann á undan
36. mín
Þrátt fyrir að Blika séu að tapa hér 0-2 þá er það samt svo miklu betur settur upp leikur en fyrri viðureignin.

Blikarnikr eru miklu þéttari og hafa verið að koma sér í ágætis stöður fram á við miðað við fyrri leik. Þá áttu þær fyrsta skotið á markið í seinni hálfleik...
35. mín
Jusu Bash fær sendingu inn fyrir og leggur boltann í netið en flaggið fer mjög réttilega á loft!
33. mín
Thelma Karen með rosalegan sprett, stingur Kristínu Dís af, fyrirgjöf sem endar hjá Matriano sem lætur vaða en Herdís Halla ver
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Smá ruglingur í vörninni, Katelyn reynir sendingu til baka en hún er voðalega skrítin og næstu farin útaf í horn... Það er oft voðalega klaufalegur bragur á þessu hjá Blikum
26. mín
Inn:Delaney Matriano (Häcken) Út:Helena Sampaio (Häcken)
Sampaio hefur lokið leik í dag, fór útaf á börum
26. mín
Elísa á langan bolta ætlaðan Edith en Fanney Inga kemur langt út úr markinu og hreinsar hann
24. mín
Hrafnhildur Ása með frábæra fyrirgjöf en Agla María ræett missir af boltanum, þarna munaði svo litlu!
22. mín
Sampaio Leikmaður Häcken liggur og fær aðhlynningu, lítur ekki vel út...

Stöðufundur hjá báðum liðum á meðan
20. mín
Schröder kemur sér í góða stöðu, reynir skot en það er framhjá
18. mín MARK!
Emma Östlund (Häcken)
Stoðsending: Tabitha Tindell
Tindell tekur frábæra hornspyrnu og finnur kollinn á Östlund
17. mín
Schröder á fyrirgjöf á Sampaio sem reynir skot en skýtur honum beint í Elínu Helenu
13. mín
Blikar eru að verjast með 5 manna varnarlínu, Barbára fellur þá niður í línu, Karitas og Katelyn djúpar, Agla Maria og Hrafnhildur Ása þar fyrir ofan og Edith upp á topp
11. mín
Sampaio Brýtur á Öglu Maríu, Elín Helena tekur þetta stutt til baka
8. mín
Edith og Hrafnhildur Ása eiga gott samspil og sú síðarnefnda nælir í fyrsta hornið fyrir Blika. Agla María með spyrnuna en ekkert kemur svo úr því
5. mín
Häcken eru ekkert eðlilega fljótar og með gott auga á spil, Blikar eru með 9 manns inn í teignum að verjast en þær komast samt framhjá þeim
2. mín MARK!
Paulina Nyström (Häcken)
Þetta boðar ekki gott fyrir Blika, mark hér á 2. mínútu

Nyström á skot við vítateigslínuna og inn fer boltinn
1. mín
Leikur hafinn
Häcken hefja leikinn en boltinn virðist linur... svo dómarinn stoppar fljótt og nýr bolti á völlinn
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast! Liðin ganga hér inn á völlinn
Fyrir leik
Byrjunarlið klár Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu.

Ketelyn Duong sem gekk í raðir Blika nýlega kemur inn á miðjuna og Helga Rut Einarsdóttir (2007) byrjar í hjarta varnarinnar.

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir og Sunna Rún Sigurðardóttir taka sér sæti á bekknum.

Mynd: Snæbjört Pálsdóttir

Fyrir leik
„Stefnan er að vinna keppnina," segir Fanney. Häcken er að öllum líkindum á leið í undanúrslit keppninnar. Hún segir það ekki of háleitt markmið að stefna á að vinna keppnina. Hún var vön því með Val að berjast við Breiðablik um titlana á Íslandi áður en hún var keypt til Håcken eftir tímabilið 2024.

„Mér finnst þetta mjög sérstakt. Það verður mjög gaman að spila heima á Íslandi en líka fyrir framan fólkið sem maður elskar mest," segir hún við GP og heldur áfram:

„Ég held að við eigum mjög góða möguleika. Við erum með sterkt lið og stefnum alltaf að því að vinna allar keppnir sem við tökum þátt í, hvort sem það er hér í Svíþjóð eða í Evrópu. Við stefnum alltaf á titilinn," segir Fanney.
Fyrir leik
Breiðablik Breiðablik fékk stóran skell í fyrri leik liðanna er það tapaði 7-0 í Gautaborg. Hræðilegur korters kafli í fyrri hálfleik gerði útum leikinn en 5 mörk litu þar dagsins ljós.

Ian Jeffs og co. hljóta að hafa farið vel yfir leikinn, öll mistök og hvernig skal bregðast við þeim í þessum leik!

Það þyrfti eitthvað stórkostlegt kraftaverk svo Breiðablik komist áfram úr þessari viðureign þar sem 7 mörk skilja liðin að og ólíklegt miðað við stöðuna á Breiðabliksliðinu. Þær eru rétt að hefja undirbúningstímabilið og enn að pússa sig saman eftir mikinn leikmannamissi.

Það mætti því segja að þessi leikur sé fyrst og fremst prinsipp leikur þar sem Blikar spila upp á stoltið á heimvelli.

Í öllu falli verður spennandi að sjá hvernig þetta fer í kvöld


Fyrir leik
Spænskt dómarateymi Á flautunni í kvöld verður Marta Huerta De Aza og henni til halds og trausts verða Eliana Fernández González og Rocio Puente Pino aðstoðardómarar.

Fjórði dómari er svo Paola Cebollada López

Mynd: EPA

Fyrir leik
Evrópubikarinn kallar! Verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu frá seinni leik Breiðabliks og Häcken í 8. liða úrslitum Evrópubikarsins sem fram fer á Kópavogsvelli

Leikurinn hefst á slaginu 18:00 og er frítt á leikinn!
Hvet því alla til að fjölmenna á völlinn

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
4. Emma Östlund
7. Pernille Sanvig
9. Felicia Schröder
11. Monica Jusu Bah
12. Stine Sandbech
15. Alva Selerud
22. Paulina Nyström
24. Tabitha Tindell
27. Thelma Karen Pálmadóttir
30. Helena Sampaio ('26)

Varamenn:
29. Hanna Karlsson (m)
5. Delaney Matriano ('26)
8. Josefin Baudou
14. Tilde Karlsson
17. Faith Chinzimu
18. Lisa Löwing
19. Nesrin Akgün
26. Nathalie Staaf

Liðsstjórn:
Elena Sadiku (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: