Fotbolti.net
@karisnorraKári Snorrason
Kári Snorrason
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
Víkingsvöllur
Ofankoma og góður blástur
Víkingur R.
Víkingur R.
3 - 1
Þróttur R.
Þróttur R.
Davíð Helgi Aronsson 43'1 - 01 - 183' Aron Snær IngasonStígur Diljan Þórðarson 90'2 - 1Atli Þór Jónasson 92'3 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Með andlitið í snjóskafli

Hvað réði úrslitum?

Gæði er ekki fyrsta orð sem kemur í huga eftir þennan leik. Aðstæður buðu hreinlega ekki upp á það, mikill vindur og mikil snjókoma. Hvorugt lið óðu í færum en Víkingar stóðu þó Þrótturum aðeins framar í færasköpun. Þegar á botninn er hvolft var þetta sanngjarn sigur Víkings við krefjandi aðstæður.

Bestu leikmenn

1. Ármann Ingi Finnbogason

Enginn sem stóð gjörsamlega upp úr. Mér fannst þó alltaf ákveðinn usli myndast þegar þeir bræður Ármann Ingi og Stígur Diljan fengu boltann á sitthvorum kanti Víkings. Ármann átti góða stoðsendingu og var að mínu mati sprækari svo að hann fær nafnbótina í dag.

2. Stígur Diljan Þórðarson

Stígur skoraði sigurmarkið og ógnaði mikið. Hann og Ármann fá jafnframt aukastig fyrir að vera einu menn vallarins á stuttermabolnum.

Atvikið

Ég vil tilnefna tæklingu Davíðs Arnar á Aron Snæ hér. Aron geystist upp hægri vænginn í skyndisókn og braut Davíð harkalega á honum. Tæklingin olli því að Aron féll út af vellinum og varð fyrir því óláni að enda með andlitið í snjóskafli. Atvikið gerðist rétt við blaðamannaboxið og sást greinilega að Aron var lítt hrifinn af tæklingu Davíðs. Skiljanlega kannski.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur eru Reykjavíkurmeistarar.

Vondur dagur

Eins og áður kom fram voru gæðin ekki í hámarki. Frá Víkingum ætlaðist ég meira til af Elíasi Má Ómarssyni, sem komst takmarkað í boltann og skapaði lítið. Hjá Þrótti fannst mér Sigurður Egill Lárusson ekki standa undir því sem ætlast er til af honum. Átti í vandræðum með Ármann Inga og var í seinni hálfleik færður framan á völlinn þar sem lítið kom úr honum.

Dómarinn - 8

Stóra atvik leiksins er rauða spjald Brynjars Gauta. Brynjar Gautur fékk seinna gula spjald sitt eftir brot á miðjum velli, hann fékk þó ekki rauða spjaldið strax. Dómarar leiksins beittu hagnaðarreglunni og Víkingar keyrðu að marki Þróttar. Um leið og Brynjar hafði aftur áhrif á leikinn (sem gerðist við vítateig Víkings) þá flautaði Vilhjálmur Alvar, dómari leiksins, rak hann af velli og dæmdi aukaspyrnu á stórhættulegum stað sem Víkingur skoraði svo upp úr. Undirritaður sá dóminn illa og skildi lítið en miðað við útskýringar Venna í viðtali eftir leik er engin furða að maður hafi lítið skilið. Að þessum dómi utanskyldum fannst mér tríóið standa sig vel en útfærslan á þessu rauða spjaldi er einfaldlega fáránleg. Dómarar verða að fylgja lögum og því ætla ég að gefa dómurunum átta í einkunn en ég er sammála Venna og gef knattspyrnulögunum falleinkunn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.