SKÝRSLAN: Brjálæði í Árbænum
Hvað réði úrslitum?
Úfff hvað er hægt að segja?! Fylkismenn lentu 1-3 undir en eftir þetta rauða spjald hjá markmanni KR þá kom þvílíkt líf í Fylki!
Bestu leikmenn
1. Guðmundur Tyrfingsson
Guðmundur Tyrfings með frábæra tvennu og spilaði mjög vel í dag
2. Ólafur Kristófer Helgason/Amin Cosic
Ólafur varði eins og enginn var morgundagurinn, greip hvern bolta á fætur öðrum, en fékk náttúrulega á sig fjögur mörk sem eru svo sem ekkert honum að kenna.
Amin fór hamförum á vinstri væng, og bar sig mjög vel á vellinum.
Atvikið
Það verður að vera þessar 2-3 mínútur þar sem Fylkir komast yfir á 95 og KR jöfnuðu með seinasta sparki leiksins. Ótrúlegur fótbolti
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn eru Lengjubikarmeistarar 2026 og KR-ingar fá silfurmedalíuna
Vondur dagur
Verður að skrifast á Arnar Frey, markmann KR. Hleypur út og veður beint í Magnús Daða, sem var nýkominn inná. Verðskuldað rautt spjald.
Dómarinn - 6
Ágætlega dæmt, smá vafasamir dómar, hvort um rautt var að dæma þegar Aron komst í gegn og fór með takkana í markmann Fylkis.



