Fotbolti.net
Viktor Ingi Valgarðsson
Mjólkurbikar karla
JÁVERK-völlurinn
Selfoss
Selfoss
7 - 1
Augnablik
Augnablik
Aron Fannar Birgisson 5'1 - 0Viðar Örn Kjartansson (víti) 13'2 - 0Daði Kolviður Einarsson 31'3 - 0Viðar Örn Kjartansson 41'4 - 0Viðar Örn Kjartansson 45'5 - 05 - 157' Maríus WarénElías Karl Heiðarsson 75'6 - 1Aron Darri Auðunsson 89'7 - 1
Leik lokið!
Öruggur Selfoss sigur!

Selfoss
89. mín
MAAAARK!

Aron Darri Auðunsson (stoðsending: Frosti Brynjólfsson)

Flott lág sending gegnum smá pakka og Aron mættur einn á nær og potar honum í markið
87. mín
Hákon Logi fékk boltann eitthvað illa í sig rétt fyrir ofan mitti og lá smá eftir, harkar þetta af sér þó.
85. mín
Arnór Elí er búin að þurfa grípa nokkra bolta sem virðast ekki ætla finna menn Augnabliks í teignum
85. mín
Guðmundur Stefáns með skot sem fór vel yfir, fínt færi svo sem
Augnablik
79. mín
InnMikael Logi Hallsson
ÚtAlexander Sævarsson
78. mín
Hjólaratilraun
Léttur bolti í teiginn sem Frosti reynir að klára með hjólhestaspyrnu.
Selfoss
75. mín
MAAAARK!

Elías Karl Heiðarsson

Það var hinsvegar ekkert bras á þessu, Elías kemst í boltan rétt fyrir framan miðju og tekur á skarið, finnur sér gott skotfæri og klárar það vel.
73. mín
Töluvert meira bras að koma boltanum fram hjá Selfossi, en einnig mun betra spil hjá Augnabliki
Augnablik
71. mín
InnRóbert Laufdal Arnarsson
ÚtGuðmundur Heiðar Björnsson
65. mín
Hörku varsla hjá Arnóri Elí!
Boltinn datt fyrir leikmann Augnabliks sem átti fast skot á markið en virkilega vel varið og hættunni komið burt.
Augnablik
60. mín
InnKolviður Gísli Helgason
ÚtBrynjar Óli Bjarnason
Augnablik
60. mín
InnHenrik Hermannsson
ÚtKormákur Pétur Ágústsson
Selfoss
60. mín
InnAron Darri Auðunsson
ÚtAron Lucas Vokes
Augnablik
57. mín
MAAAARK!

Maríus Warén

Arnór lengst í burtu frá markinu sínu þegar boltinn vinnst hjá sókn gestana og Maríus gerir vel og klárar.
56. mín
Augnablik byrjað ágætlega en eina færið sem hefur komið var skalli eftir hornspyrnu hjá Selfossi
52. mín
Þrjú stór púsl fá hvíld frá seinni hálfleik.
Skiluðu allir sínu í dag.
Selfoss
46. mín
InnEinar Bjarki Einarsson
ÚtReynir Freyr Sveinsson
Selfoss
46. mín
InnBrynjar Bergsson
ÚtAron Fannar Birgisson
Selfoss
46. mín
InnElías Karl Heiðarsson
ÚtViðar Örn Kjartansson
46. mín
Seinni hálfleikur kominn i gang!
45. mín
Hálfleikur
Þetta endaði með alvöru klúðri
Góð varsla frá Indrit Hoti á skoti Viðars en boltinn datt fyrir Aron Fannar sem skellti boltanum í fyrsta leeengst yfir
Selfoss
45. mín
Þrennan kominn í hús

Viðar Örn Kjartansson

Stelur boltanum þæginlega af aftasta varnarmanni Augnabliks og vel klárað
Selfoss
41. mín
MAAAARK!

Viðar Örn Kjartansson

Það er ekkert vesen á Selfossi, nýbúnir að eiga fínt skot

Vinna boltann fljótt tilbaka og Viðar kominn með sitt annað mark í kvöld
38. mín
Frosti sem slapp einn í gegn eftir sendingu Viðars en tæp rangstæða réttilega dæmd.
Selfoss
31. mín
MAAAARK!

Daði Kolviður Einarsson (stoðsending: Aron Lucas Vokes)

Eins og ég sagði áður, vel spilaðar mínútur hjá Selfossi.

Aron Lucas Vokes fann Daða rétt fyrir utan teig, fer eftir hrópum liðsfélaga um að skjóta og slúttar honum þæginlega í neðra nær hornið.
30. mín
Selfoss að halda í boltann ótrúlega vel, gæði og kraftur í heimamönnum.
25. mín
Kom hár bolti í átt að marki Selfoss sem Arnór Elí markvörður fór og kýldi, smá hætta að boltinn væri að berast að markinu en svo var ekki.
Selfoss
24. mín
InnFrosti Brynjólfsson
ÚtElvar Orri Sigurbjörnsson
19. mín
Elvar Orri liggur
Selfoss með flotta takta og finna Elvar aleinann í gegn en hann lendir í samstuði og liggur eftir.

Hljómaði illa fyrst og börur mættar en þarf ekki. Virðist þó vera búin í dag.
Selfoss
13. mín
Mark úr víti!

Viðar Örn Kjartansson

Tekur vítið sjálfur og mjög öruggt.

Markvörðurinn í vitlausa átt og Selfoss komið snemma í 2-0
12. mín
Viðar Örn að sækja víti!
Tvær hornspyrnur í röð og endar á að VIðar feldur í klafsi.
10. mín
Bras í markspyrnu
Selfoss að reyna spila frá marki en boltinn varla úr teignum þegar Augnablik kemst í hann og finna skot sem var afleitt.
8. mín
Fyrsta horn er Augnaliks
Selfoss
5. mín
MAAAARK!

Aron Fannar Birgisson

Viðar með skot sem er varið til hliðar þar sem Aron Fannar er með gott pláss og slúttar honum örugglega í markið

1-0!
3. mín
Stöngin!
Aron Fannar meeð flottan bolta gegnum vörnina sem finnur Viðar Örn.
Hann með sendingu í teiginn en Elvar með skot í stöng og boltinn rennur svo bakvið Indrit í markinu en enginn til að klára
1. mín
Leikur hafinn
Augnablik sparka af stað!
Selfoss byrja með vindinn í bak
Fyrir leik
Aðstæður
Það er gervigrasið í dag í alvöru íslensku kuldaroki.
Vindurinn blæs ágætlega frá norðri þannig möguleiki að það hafi einhver áhrif í dag.
Fyrir leik
Styttist í leik
Byrjunarliðin eru hér á hliðunum.

Áhugavert að sjá mann fyrstu umferðar Róbert Laufdal á bekknum hjá Augnablik, annars er Viðar Örn í startinu hjá Selfossi og fyrirliðinn hjá heimamönnum er Daði Kolviður. Bandið hjá gestunum ber hann Guðmundur Andri.
Fyrir leik
Fyrri umferð hjá liðunum
Selfoss vann KÁ í fyrstu umferð bikarsins með fínum 3-0 sigri á útivelli. Mörkin komu frá Guðmundi Stefánsson og Elvari Orra í fyrri hálfleik. Síðan var það Viðar Örn Kjartansson sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins.

Augnablik tók hins vegar á móti Uppsveitum og það má segja að það hafi verið þæginlegur leikur.
6-0 í hálfleik og úrslit 12-1 sigur Augnabliks.
Róbert Laufdal henti í fernu og þrír aðrir leikmenn Augnabliks skoruðu 2 mörk.
Fyrir leik
Hvað bíður sigurvegarans
Dregið var í 32-liða úrslit um daginn og því vitum við að liðið sem vinnur hér í kvöld fær útileik gegn Stjörnunni þann 5.apríl kl 15:00
Fyrir leik
Mjólkurbikar karla í kvöld!
Það er 64-liða leikur á Selfossi hér í kvöld. Heimamenn taka móti Augnablik.

Leiknum verður sparkað af stað á slaginu 19:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.