SKÝRSLAN: Selfoss áfram og þrenna frá VÖK
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleiks frammistaða Selfyssinga var virkilega góð og örugg. 5-0 í hálfleik og Viðar Örn með þrennu. Augnablik mæti þó betur til leiks í seinni en það var aldrei spurning hvort liðið færi með sigurinn og farmiðann í 32-liða úrslit
Bestu leikmenn
1. Viðar Örn Kjartansson
Getum ekki horft framhjá hans leik í dag. Þurfti þó ekki að hafa mikið fyrir sinni þrennu en spilaði feikilega vel og auðveldaði sóknarleik liðsins mjög.
2. Daði Kolviður Einarsson
Fyrirliðinn stóð fyrir sínu í dag. Hægri bakvörður í fyrri en hafsent í seinni. Skoraði gott mark og hélt mönnum á tánum í 90mín. Flott frammistaða.
Atvikið
Það er ekki daglegt brauð að skora þrennu í einum hálfleik en það leit svo sannarlega út fyrir það hjá VÖK í kvöld.
Hvað þýða úrslitin?
Þessi úrslit þýða það að Selfoss fer í Garðabæinn og mætir Stjörnunni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Bikarganga Augnabliks er lokið þetta árið en næsta umferð fer fram um næstu helgi.
Bikarganga Augnabliks er lokið þetta árið en næsta umferð fer fram um næstu helgi.
Vondur dagur
Fyrri hálfleiksbrekkan með vindinn í andlitinu sem Augnablik lendir í var alltof brött.
Ef Elvar Orri leikmaður Selfoss er illa meiddur eins og virtist í fyrstu væri það ekki gott því hann hefur verið kröftugur í framlínunni með Viðari á undirbúningstímabilinu og eflaust með fínasta hlutverk fyrir komandi tímabil.

Dómarinn - 8
Einhver köll voru frá leikmönnum Augnabliks um að vítadómurinn væri "soft" en ekkert hægt að setja útá dómgæsluna í kuldanum í kvöld.