Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
Í BEINNI
Meistarakeppni karla
Víkingur R.
LL 4
0
Vestri
Víkingur R.
4
0
Vestri
Nikolaj Hansen '18 1-0
Nikolaj Hansen '44 2-0
Valdimar Þór Ingimundarson '87 3-0
Óskar Borgþórsson '92 4-0
29.03.2026  -  14:00
Víkingsvöllur
Meistarakeppni karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
8. Viktor Örlygur Andrason ('67)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
15. Róbert Orri Þorkelsson ('67)
19. Óskar Borgþórsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('67)
23. Nikolaj Hansen ('67)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
77. Stígur Diljan Þórðarson ('82)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('67)
7. Erlingur Agnarsson ('67)
24. Davíð Örn Atlason ('67)
28. Elías Már Ómarsson ('67)
30. Sveinn Margeir Hauksson ('82)
40. Gestur Alexander Ó. Hafþórsson
51. Hilmir Thor Christiansen
52. Viðar Elí Bjarnason
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Viktor Bjarki Arnarsson (Þ)
Hajrudin Cardaklija (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (Þ)
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Þórir Ingvarsson
Rúnar Pálmarsson

Gul spjöld:
Valdimar Þór Ingimundarson ('71)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÞÞÞ flautar leikinn af strax í kjölfarið!
92. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Kemur ekki að sök! Óskar Borgþórs setur slaufuna á þetta hérna með afar huggulegu marki!
91. mín
HVERNIG SKORA ÞEIR EKKI!? Víkingar í DAUÐAFÆRI!!

Daníel Hafsteins og Óskar Borgþórs í algjöru dauðafæri á fjærstönginn!
90. mín
Inn:Marinó Steinar Hagbarðsson (Vestri) Út:Sergine Fall (Vestri)
89. mín
Víkingar hóta fjórða markinu Eru líklegri en ekki að bæta bara við!
87. mín MARK!
Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Valdimar að klára þetta hérna fyrir Víkinga! VALDIMAR ÞÓR!

Á utanfótarskot sem fer í varnarmann en fær hann aftur og smellir honum þá frábærlega!

86. mín
Hætta! Frábær bolti fyrir markið frá Vestra en Breki Þór nær ekki nægilega miklum krafti í þetta og boltinn endar í fanginu hjá Ingvari!

Þarna hefðu Vestri hæglega getað minnkað muninn og gert lokamínúturnar spennandi.
85. mín
Valdimar Þór með skemmtilegan bolta fyrir markið sem Elías Már stekkur á en nær ekki að stýra að marki.
82. mín
Inn:Sveinn Margeir Hauksson (Víkingur R.) Út:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Áhugaverð skipting Búið að ganga frá því að hann spili með KA í sumar á láni.
78. mín
Vestri með flottan bolta fyrir markið en Þórður Gunnar rétt missir af honum.
76. mín
Hver sókn hjá Víkingum er stórhættuleg þessa stundina en núna eiga þeir skot sem fer rétt yfir þverslánna en Víkingar fá hornspyrnu.

Elías Már dæmdur brotlegur í barningi inn á teig þegar spyrnan er tekinn.
75. mín
Víkingar að ógna! Slæm sending hjá Vestra beint í fæturnar á Elíasi Már sem kemur boltanum á Erling Agnarsson og hann framlengir á Stíg sem kemur sér í skotfæri en skotið í varnarmann og hann fellur fyrir fætur Helga Guðjónssonar en skotið framhjá.
73. mín
Inn:Emmanuel Duah (Vestri) Út:Johannes Selvén (Vestri)
73. mín
Inn:Birkir Eydal (Vestri) Út:Imran Mehanovic (Vestri)
71. mín Gult spjald: Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
Gult fyrir dýfu! Hélt það væri klár vítaspyrna að vera dæmd hérna þegar Elías Már rennir Valdimar Þór í gegn og hann fer framhjá Marvin Darra sem virðist taka hann niður en ÞÞÞ dæmir aukaspyrnu og lyftir gulu á Valdimar Þór!
67. mín
Fjórföld skipting hjá Víkingum og Nikolaj Hansen fær ekki tækifærið á að klára þrennuna hér í dag.
67. mín
Inn:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.) Út:Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.)
67. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
67. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
67. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
65. mín
Inn:Þórður Gunnar Hafþórsson (Vestri) Út:Pétur Bjarnason (Vestri)
58. mín
Niko nálægt því að fullkomna þrennuna Frábær fyrirgjöf fyrir markið þar sem Nikolaj er mættur á fjærstönginni og þarf að teygja sig í boltann en hann fer rétt framhjá markinu!
55. mín
Víkingar ógna Daníel Hafsteins með fast skot beint á Marvin Darra sem heldur ekki boltanum en Vestri koma þessu þó frá.
53. mín
Vestri aðeins að hóta en ná ekki að komast í skotfæri.
52. mín
Marvin Darri hélt boltanum of lengi og hornspyrna dæmd.
49. mín
Víkingar koma með flottann bolta fyrir markið frá vinstri en Marvin Darri kemur vel út.
46. mín
Seinni hálfleikurinn kominn í gang Valdimar Þór sparkar seinni hálfleiknum af stað
46. mín
Inn:Breki Þór Hermannsson (Vestri) Út:Chriss-Albin Mörfelt (Vestri)
45. mín
Hálfleikur
+3 ÞÞÞ flautar til hálfleiks hér á heimavelli hamingjunnar.

Víkingar leiða með tveimur mörkum og það nokkuð sanngjarnt bara þegar uppi er staðið. Vestri sýnt flotta baráttu á köflum en vantar aðeins upp á gæðin, eðlilega kannski.

Tökum okkur korter og snúum svo aftur með síðari hálfleikinn.
45. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma Fjórði dómari leiksins lyftir skiltinu sem sýnir þrjá.
44. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Víkingar tvöfalda rétt fyrir hlé! NIKO TVÖFALDAR!

Hornspyrna frá Víkingum sem dettur niður á nærstönginni og darraðardans í teignum áður en Nikolaj Hansen mætir og hamrar boltanum í netið!
43. mín
Daníel Hafsteins með aukaspyrnu fyrir markið en Karl Friðleifur nær ekki að stýra skallanum að marki.
42. mín
Færi! Víkingar sækja og koma bolanum fyrir markið frá hægri þar sem Stígur DIljan rétt missir af honum á fjærstönginni!
41. mín
Flaggið á loft! Sergine Fall með frábæra sendingu fyrir markið á Pétur Bjarna sem er aðeins fyrir innan og boltinn er við það að leka í netið áður en Víkingar ná að sparka boltanum frá en flaggið var komið á loft.
40. mín
Víkingar koma boltanum fyrir markið en Nikolaj Hansen nær ekki góðri móttöku fyrir framan markið og Marvin Darri handsamar boltann.
39. mín
Oliver Ekroth þarnfast aðlyningar eftir baráttu við Pétur Bjarnason. Virkaði ekki mikið í þessu en Ekroth tók strax um ökklan.
35. mín Gult spjald: Ibrahima Balde (Vestri)
Valdimar Þór með frábæran sprett og svífur í gegnum mann og annan áður en Ibrahima Balda mætir og rífur hann niður.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
32. mín Gult spjald: Gunnar Jónas Hauksson (Vestri)
Alltof seinn í baráttunni við Óskar Borgþórs og uppsker réttilega gult.
29. mín
Boltinn fellur fyrir fætur Sergine Fall eftir hornspyrnuna en Víkingar ná að komast fyrir skotið hans. Vestri reyna að halda sókninni lifandi en hún fjarar fljótt út.
28. mín
Vestri að færa sig upp völlinn og vinna hornspyrnu.
24. mín
Örlítil ró komið á leikinn eftir að Víkingar komust yfir.
18. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Víkingar taka forystu! NIKO!!!!

Helgi Guðjóns fær boltann úti vistra meginn og á frábæran bolta fyrir markið þar sem Nikolaj Hansen er mættur í hættusvæðið og klárar þetta!
17. mín
Karl Friðleifur með fyrirgjöf fyrir markið en Stígur Diljan nær ekki að stýra boltanum á markið.
14. mín
Sergine Fall vinnur boltann af Stíg Diljan og keyrir upp vænginn og vinnur hornspyrnu fyrir Vestra.
12. mín
Rangur! Góð sending innfyrir á Nikolaj Hansen sem er í frábæru færi en Marvin Darri sér við honum.

Flaggið fór hinsvegar á loft svo það hefði ekki talið.
11. mín
Nikolaj Hansen fellur við í teignum eftir hornspyrnu en ekkert dæmt. Niko liggur þó eftir og leikurinn stöðvaður til þess að hægt sé að huga að honum.
10. mín
Víkingar ná að koma boltanum fyrir markið sem Vestri nær að bjarga í horn. Munaði ekki miklu að Nikolaj Hansen hefði verið með nánast opið mark fyrir framan sig.
8. mín
Fínasta hornspyrna hjá Víkingum og Karl Friðleifur á skalla framhjá.
7. mín
Víkingar leita leiða í kringum þéttan varnarmúr Vestra og þegar Vestri vinna boltann er honum lúðrað upp í átt að Pétri Bjarna.
2. mín
Hætta! Víkingar þjarma að marki Vestra en gestirnir sleppa með þetta naumlega! Ná að henda sér fyrir þá bolta sem skiptu máli og Víkingar fá fyrsta horn leiksins!
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað!

Fyrir leik
Jón Þór í liðsstjórn Vestra Jón Þór Hauksson sem stýrði Vestra undir lok síðasta tímabils er á varamannabekk Vestra og á skýrslu sem einn af þjálfarateyminu. Hann tilkynnti í oktober eftir mót að hann yrði ekki áfram með Vestra en hann er Daniel Badu til halds og traust hér í dag.

Mynd: Eva Rós Ólafsdóttir
Fyrir leik
Byrjunarlið Víkings

Fyrir leik
Byrjunarlið Vestra

Fyrir leik
Svakaleg breidd hjá Íslandsmeisturunum Íslandsmeistarar Víkings hafa verið duglegir á félagskiptamarkaðnum í vetur. Kári Snorrason, fréttamaður Fótbolta.net, var með stórskemmtilega samantekt í vetur þar sem hann stillti upp tveimur byrjunarliðum úr leikmannahópnum.

   27.02.2026 14:00
Ótrúleg breidd Víkings – 27 þekktar stærðir
Fyrir leik
Skilaboð frá Epic! Víkingar eiga að vera mikið sigurstranglegri hér í dag, yfir 3 mörk frá Víkingum er á stuðlinum 1.87 og -2.5 Víkingur á stuðlinum 2.05 á Epic eru góð veðmál og auðveldlega hægt að skella skuldinni á þá ef það tapast!

Fyrir leik
Gylfi í Kanada Gylfi Þór Sigurðsson er ekki með liði Víkings í dag því hann er með landsliðinu í Kanada. Hér að neðan má sjá viðtal sem var tekið við Gylfa á dögunum. Færeyingurinn Gunnar Vatnhamar er einnig í landsliðsverkefni.

   19.03.2026 14:15
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Fyrir leik
Þurfa ekki óttast leikbann á Íslandsmótinu Sú reglubreyting hefur verið gerð að spjöld fylgja leikmanni ekki á milli keppna. Spjöld sem leikmaður fær í Meistarakeppni KSÍ fylgja ekki inn í Bestu/Lengjudeildina og ef leikmaður fær rautt spjald í dag þá fer hann því ekki í bann í fyrstu umferð Íslandsmótsins.

   28.03.2026 16:53
Breytingar á reglum varðandi spjöld og leikbönn
Fyrir leik
Víkingur R. Víkingar hafa vaxið ásmeginn eftir því sem liðið hefur á undirbúningstímabilið en þeir urðu á dögunum meistarar í Bose mótinu.

Víkingar léku þá í A deild riðli þrjú í Lengjubikarnum og enduðu þar í 2. sæti með þrjá sigra, eitt jafntefli og eitt tap. Þeir enduðu jafnir KR að stigum en markatala KR var betri og fóru þeir því áfram í úrslit.

Það hafa orðið þó nokkrar breytingar á liði Víkinga frá því þeir urðu Íslandsmeistarar í haust.

Komnir
Elías Már Ómarsson frá Kína
Jóhannes Kristinn Bjarnason frá Danmörku
Aron Snær Friðriksson frá Njarðvík
Ármann Ingi Finnbogason frá ÍA (var á láni hjá Grindavík)
Björgvin Brimi Andrésson frá Gróttu (lánaður til baka)

Farnir
Matthías Vilhjálmsson hættur
Pablo Punyed í Hauka
Pálmi Rafn Arinbjörnsson hættur
Atli Þór Jónasson í Fram (lán)
Sveinn Margeir Hauksson í KA (lán)f
Haraldur Ágúst Brynjarsson til Njarðvíkur (lán)
Almo til Danmerkur (var á láni hjá Njarðvík)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Vestri Vestri hefur átt erfitt uppdráttar á undirbúningstímabilinu. Byrjuðu á því að þurfa fresta fyrsta leik í Lengjubikarnum þar sem þeir náðu ekki í löglegt lið áður en glugginn opnaði.

Vestri voru í A deild riðli eitt. Vestri unnu þar einn leik, gerðu eitt jafntefli og töpuðu þrem. Vestri endaði í 5.sæti riðilsins einu sæti ofar en Ægir.

Það hafa orðið töluverðar breytingar á liði Vestra sem spila í Lengjudeildinni í sumar eftir fall úr Bestu deild síðasta sumar.


Komnir
Ibrahima Balde frá Þór
Þórður Gunnar Hafþórsson frá Aftureldingu
Marvin Darri Steinarsson frá Gróttu
Imran Mehanovic frá Danmörku
Jacob Stensson frá Svíþjóð
Konstantin Cheshmedjiev frá Norður-Makedóníu
Chriss-Albin Alexander Mörfelt frá Svíþjóð
Breki Þór Hermannsson á láni frá ÍA (var á láni í Grindavík)

Farnir
Diego Montiel í KA
Jeppe Pedersen í KA
Guy Smit í Njarðvík
Morten Ohlsen Hansen til Færeyja
Anton Kralj til Keflavíkur
Eiður Aron Sigurbjörnsson í Njarðvík
Ágúst Eðvald Hlynsson í Þór
Gustav Kjeldsen í Stjörnuna
Arnór Borg Guðjohnsen í FH (var á láni)
Vladimir Tufegdzic

Samningslausir
Benjamin Schubert
Silas Songani
Matias Niemela (var láni hjá Grindavík)

Komnir og farnir
Pape Abou Cisse kom frá Katar en fór í lok febrúar

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Heil og sæl! Verið hjartanlega velkominn í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Víkingsvelli þar sem leikur meistara meistaranna fer fram.
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkinga mæta ríkjandi bikarmeisturum Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Marvin Darri Steinarsson (m)
2. Ibrahima Balde
5. Thibang Phete
6. Gunnar Jónas Hauksson
8. Imran Mehanovic ('73)
9. Pétur Bjarnason ('65)
11. Johannes Selvén ('73)
16. Chriss-Albin Mörfelt ('46)
22. Elmar Atli Garðarsson (f)
29. Konstantin Cheshmedjiev
40. Sergine Fall ('90)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
33. Benedikt Jóhann Þ. Snædal (m)
10. Þórður Gunnar Hafþórsson ('65)
14. Birkir Eydal ('73)
15. Breki Þór Hermannsson ('46)
17. Albert Ingi Jóhannsson
18. Marinó Steinar Hagbarðsson ('90)
19. Emmanuel Duah ('73)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Daniel Osafo-Badu (Þ)
Jón Þór Hauksson (Þ)
Vladan Djogatovic (Þ)
Jonathan Awrohum (Þ)
Ívar Pétursson
Ferran Montes I. Corominas
Jón Ólafur Ragnarsson

Gul spjöld:
Gunnar Jónas Hauksson ('32)
Ibrahima Balde ('35)

Rauð spjöld: