SKÝRSLAN: Góð frammistaða en naumt tap hjá U21
Hvað réði úrslitum?
Ísland byrjaði fyrri hálfleikinn ekki nógu vel og Frakkar nýttu sér það, herjuðu á liðið á fyrstu mínútunum og náðu marki. Ísland jafnaði svo úr víti, eftir að hafa komið sér aðeins betur inn í leikinn en Frakkar skoruðu sigurmarkið úr föstu leikatriði á 29. mínútu. Mark sem hefði alveg verið hægt að koma í veg fyrir. Í seinni hálfleik náði Ísland svo ágætis færum en ekki nóg til að jafna.
Bestu leikmenn
1. Dehmaine Assoumani
Frakkarnir gerðu sitt í fyrri hálfleik og þrátt fyrir að Assoumani hafi bara spilað 55 mínútur þá var hann algjör drifkraftur í sókn Frakka. Auk þess fékk hann stoðsendinguna í fyrra markinu.
2. Logi Hrafn Róbertsson
Logi var frábær að mestu í vörninni, mjög fastur fyrir og Frakkarnir áttu oftar en ekki erfitt með að komast framhjá honum. Svo var hann óheppinn að jafna ekki leikinn í seinni hálfleik þegar hann skaut í slá.
Atvikið
Mark númer tvö hjá Frökkum var frústrerandi. Aukaspyrna sem þeir lyfta inn í teig, Ugochukwu á skalla í stöng og enginn íslenskur varnarmaður bregst við lausa boltanum. Zeze fékk því að setja boltann í markið alveg óáreittur.
Hvað þýða úrslitin?
Frakkar auka forskot sitt í riðlinum og eru komnir með 16 stig. Ísland á þrjá leiki eftir og er enn í 2. sæti riðilsins, en Sviss á vissulega leik til góða og er með jafn mörg stig.
Vondur dagur
Daníel Freyr Kristjánsson réð ekkert við Dehmaine Assoumani á meðan hann var inn á. Gef honum það reyndar að eftir að hann fór útaf, þá var Daníel bara mjög flottur.
Dómarinn - 6
Var mjög flottur mest allan leikinn, en fór að missa línuna sína á síðustu tíu mínútunum u.þ.b.



