SKÝRSLAN: Vestri fékk sigurmark á silfurfati
Hvað réði úrslitum?
Vestra menn voru öflugri aðilinn í leiknum og áttu fleiri færi í leiknum. Leikurinn var jafn heilt yfir en Vestri gerði það sem þurfti til að ná í þennan sigur.
Bestu leikmenn
1. Imran Mehanovic
Tók dálítið yfir leikinn í seinni hálfleik og skoraði sigur markið. Hljóp allan leikinn og mikill yfirferð.
2. Birkir Eydal
Átti frábæran leik inn á miðjunni og skilaði sínu vel.
Atvikið
Sigurmarkið. Leiknismenn voru að gaufast eitthvað með boltann inn í eigin teig í staðinn fyrir að hreinsa. Þeir gáfu Vestra sigurmarkið á silfurfati.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri komnir í 16 liða úrslitin og mæta þar Gróttu hérna fyrir vestan.
Vondur dagur
Leikurinn var heilt yfir gæðalítill enda aðstæður erfiðar. Hvorugt liðið spilaði vel þótt að Vestri voru sterkari. Þannig að leikurinn í heild var vondur og ég held að allir voru fegnir því að það var ekki framlengt.
Dómarinn - 8
Vel dæmt og ekkert út á hann að setja.


