Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Ísland
0
0
England
18.04.2026  -  16:30
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Dómari: Michalina Diakow (POL)
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Hvernig virkar undankeppnis fyrirkomulagið fyrir HM 2027? Fyrirkomulagið í undankeppninni er þannig að efsta liðið í riðlinum fer beint í lokakeppni HM en hin liðin þrjú fara í umspil. Öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar og hafa því þannig unnið sér inn þátttökurétt í umspili.

Það eru talsvert miklar líkur á því að Ísland fari í umspilið þar sem riðillinn er það erfiður. Í umspilinu verður barist um sjö laus sæti í lokamótinu.

Umspilið skiptist í tvær umferðir og verður leikið heima og að heiman í báðum umferðum.

Liðin sem enda í öðru og þriðja sæti í riðlinum sínum í A-deild fara í leið eitt og byrja á því að mæta liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Liðin sem enda í fjórða sæti í riðlunum í A-deild fara í leið tvö og byrja á því að mæta liðum úr B-deild.

Sextán lið komast áfram úr umferð eitt og mætast svo. Liðin úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Það er því mjög mikilvægt að enda í öðru eða þriðja sæti í riðlinum til að eiga betri möguleika á að komast í lokakeppnina. Segja má að helsta barátta Íslands í riðlinum sé gegn Úkraínu og það eru leikir sem við verðum að byrja á því að vinna.

Það munu átta lið standa uppi sem sigurvegarar í umspilinu en þau sjö lið enduðu með bestan árangur í heildartöflu undankeppninnar komast inn á lokakeppnina. Áttunda sigurliðið í umspilinu, sem var með lakastan árangur í undankeppninni, fer í annað umspil á móti þjóðum úr öðrum heimsálfum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Mikilvægur sigur gegn Úkraníu Ísland sótti þrjú stig gegn Úkraníu í gríðarlega mikilvægum leik á Laugardalsvelli fyrir umspilið á HM 2027. Bæði Ísland og Úkranía var án stiga í riðlinum sínum eftir að bæði lið töpuðu fyrstu tvem leikjum sínum gegn Englandi og Spáni. Eftir leikinn á þriðjudaginn er Úkranía aðeins eina liðið án stiga.

Leikurinn fór 1-0 fyrir Ísland og skoraði Alexandra Jóhannsdóttir sigurmark leiksins í byrjuna seinni hálfleiks.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Evrópumeistarar í heimsókn! Góða daginn gott fólk og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Laugardalsvelli, þar sem stelpurnar okkar mæta Evrópumeisturum Englands. Það verður spennandi að sjá hvort þær ná að stríða enska liðinu á heimavelli.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: