Fotbolti.net
@brynjar_oliBrynjar Óli Ágústsson
Brynjar Óli Ágústsson
Ísland
Ísland
Undankeppni HM kvenna
Laugardalsvöllur
Sól og 8 stiga hiti!
0 - 1
England
England
0 - 121' Alessia Russo
Dómari: Michalina Diakow (POL)
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Svekkjandi tap gegn Evrópumeisturunum

Hvað réði úrslitum?

England átti algjörlega fyrri hálfleikinn. Stelpurnar okkar komust nánast ekkert inn á vallarhelming Englands en stóðu sig mjög vel í vörninni. Í seinni hálfleik voru þær hins vegar mjög flottar og jafnvel betri en England. Það var eiginlega ótrúlegt að við skyldum ekki ná að skora jöfnunarmark í leiknum, en þetta var engu að síður frábær frammistaða gegn einu besta liði heims.

Bestu leikmenn

1. Glódís Perla Viggósdóttir

Fyrirliðin stóð mjög vel í vörninni í dag. Stór leikur í ferlinum hennar og hún svaraði því vel.

2. Cecilía Rán Rúnarsdóttir

Var glæsileg í markinu og átti nokkrar flottar og mikilvægar vörslur. Sveindís átti líka mjög flottan leik í dag.

Atvikið

Ísland fékk tvö til þrjú dauðafæri á innan við fimm mínútna kafla þar sem þær áttu svo sannarlega að skora. Áhorfendur voru farnir að fagna, en því miður kom ekkert mark.

Hvað þýða úrslitin?

Ísland liggur enn í þriðja sæti riðilsins með þrjú stig.

Vondur dagur

Linda fékk traustið í byrjunarliðið í dag í hennar öðrum landsleik, en átti því miður dapran leik og það sást ekki mikið í henni á vellinum í dag. Sandra Marái koma inná á 61. mínútu leiksins og átti að minnsta kosti tvö dauðafæri sem hún hefði átt að klára frá en því miður kom ekkert úr þeim

Dómarinn - 4

Mikið af vafasömum dómum sem enduðu á móti okkur, virtist inn á milli eins og þær voru gegn Íslandi í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.