Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
Besta karla
Víkingur R.
LL 3
2
Stjarnan
Besta karla
Valur
LL 3
0
FH
Besta karla
Þór
LL 1
0
Fram
Víkingur R.
3
2
Stjarnan
0-1 Örvar Eggertsson '5
Elías Már Ómarsson '21 1-1
1-2 Andri Rúnar Bjarnason '52
Elías Már Ómarsson '54 2-2
Óskar Borgþórsson '83 3-2
23.04.2026  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Skýjað, sjö gráður og full stúka
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson ('66)
9. Helgi Guðjónsson
10. Gylfi Þór Sigurðsson (f) ('44)
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic ('82)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson ('82)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
29. Aron Snær Friðriksson (m)
8. Viktor Örlygur Andrason ('82)
11. Daníel Hafsteinsson ('44)
15. Róbert Orri Þorkelsson
23. Nikolaj Hansen ('82)
24. Davíð Örn Atlason
31. Þorri Ingólfsson
52. Viðar Elí Bjarnason
69. Ármann Ingi Finnbogason ('66)

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson
Daníel Darri Arnarsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stigin þrjú í Víkina! Ívar Orri flautar til leiksloka. Víkingar fara með sigur af hólmi í stórkostlegum fótboltaleik!

Viðtöl og skýrsla væntanleg.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
92. mín
HÁRSBREIDD FRÁ ÞVÍ! Stórsókn Stjörnumanna!

Endar með frábærri vörslu Ingvars eftir skot Birnis Snæs sem fór af varnarmanni. Boltinn á leiðinni í samskeytin.

Þarna munaði engu!
91. mín
Stjörnumenn banka! Haukur Brink með hættulega fyrirgjöf fyrir mark Víkinga en Karl Friðleifur skallar frá.
90. mín
Fimm mínútum bætt við! Stjörnumenn í leit að jöfnunarmarki.
86. mín Gult spjald: Bjarki Hauksson (Stjarnan)
Rífur Viktor Örlyg úr treyjunni Bjarki Hauks full ákafur í pressunni og rífur Viktor úr treyjunni. Fær réttilega gult spjald að launum. Fyrsta spjald kvöldsins litið dagsins ljós.
85. mín
Stjörnumenn vilja vítaspyrnu! Birnir Snær fellur við í teignum eftir baráttu við Helga Guðjóns. Ég sá þetta mjög vel og get fullyrt það að þetta var aldrei vítaspyrna.
83. mín MARK!
Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Ármann Ingi Finnbogason
ÓSKAR KEMUR VÍKINGUM YFIR! Glæsileg fyrirgjöf frá Ármanni Inga beint á kollinn á Óskari Borgþórs, sem er óvaldaður á fjærsvæðinu, og hann stangar boltann í netið!

Íslandsmeistararnir leiða!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
82. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Markaskorari Víkings tekinn af velli Ágætis dagsverk. Fær gott knús frá Sölva.

82. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Tarik Ibrahimagic (Víkingur R.)
78. mín
Daníel Hafsteins með þrumuskot yfir mark gestanna.
77. mín
Sprækur Bjarki Hauks með fyrirgjöf fyrir mark Víkinga en enginn Stjörnumaður í svæðinu til að taka við boltanum.
77. mín
Valdimar fékk aðhlynningu, Víkingar leika manni færri næstu mínútu eða svo.
76. mín
Inn:Heiðar Ægisson (Stjarnan) Út:Guðmundur Kristjánsson (Stjarnan)
76. mín
Inn:Haukur Örn Brink (Stjarnan) Út:Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
76. mín
Inn:Bjarki Hauksson (Stjarnan) Út:Örvar Eggertsson (Stjarnan)
75. mín
Stjarnan að undirbúa þrefalda skiptingu. Bjarki Hauks, Heiðar Ægis og Haukur Brink að koma inn.
74. mín
Sveinn Gísli með skalla að marki eftir hornspyrnu en boltinn endar í fanginu á Árna Snæ, markverði Stjörnunnar.
73. mín
STÓRHÆTTA! Tarik með gott skot fyrir utan teig en Árni ver, boltinn beint á Valdimar sem setur boltann rétt framhjá. Boltinn á milli manna í teignum og að lokum ná Stjörnumenn að hreinsa!
71. mín
Ármann Ingi sker inn á vinstri fótinn og lætur vaða en boltinn í varnarmann. Víkingar halda í boltann.
67. mín
Víkingar spila vel á milli sín. Boltinn á Tarik Ibrahimagic sem tekur skot, boltinn fer af varnarmanni og þaðan yfir mark gestanna.

Árni Snær kýlir hornspyrnuna frá og síðar dæmd aukaspyrna á Ármann Inga.
66. mín
Inn:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.) Út:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.)
66. mín
Inn:Daníel Finns Matthíasson (Stjarnan) Út:Benedikt V. Warén (Stjarnan)
65. mín
Benedikt Warén liggur niðri og fær aðhlynningu, sýnist hann vera að fara af velli.
56. mín
Annað blys komið á loft! - Ívar stöðvar leikinn Annað blys komið á loft, nú fyrir aftan varamannabekk Stjörnumanna. Ívar Orri stöðvar leikinn í rúma mínútu vegna lélegs skyggnis.

Lyktin af blysunum berst hér inn í blaðamannabox, nánast kominn í áramótagír.

Eftir fyrra mark Víkings sungu stuðningsmenn: „Sektið okkur núna“ og „Nafnlaus Mafía“ þegar blysin fóru á loft fyrir utan völlin í fyrri hálfleik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
54. mín MARK!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
ELÍAS SVARAR UM HÆL! Sléttar 90 sekúndur á milli marka!

Helgi Guðjóns með fasta fyrirgjöf á Elías sem gerir vel og skallar boltann í netið, frábært mark!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
52. mín MARK!
Andri Rúnar Bjarnason (Stjarnan)
Stoðsending: Birnir Snær Ingason
ANDRI RÚNAR! Stjörnumenn leiða!

Birnir Snær með fasta fyrirgjöf eftir hornspyrnu Stjörnumanna. Boltinn beint á Andra Rúnar sem setur boltann þægilega í þaknetið!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
51. mín
Birnir Snær með fyrirgjöf í Gunnar Vatnhamar og boltinn aftur fyrir endalínu. Stjarnan fær horn!
49. mín
Stjörnumenn keyra upp í skyndisókn. Benedikt Warén á fullum spretti en varnarmenn Víkinga einfaldlega fljótari og ná honum.

Benedikt kemur boltanum á Birni Snæ sem sker inn á hægri og tekur skotið sem Ingvar á í engum vandræðum með að handsama.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað! Valdimar Þór sparkar þessu af stað, bæði lið óbreytt.
45. mín
Elías með tvö í síðustu tveimur
45. mín
Hálfleikstölfræði Víkingur 1 - 1 Stjarnan

0.58 - Xg - 0.12
54% - Með bolta - 46%
5 - Skot - 2
1 - Skot á mark - 2

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
XB

Hæ, vissir þú að þegar Einar í Framsókn var borgarstjóri var lyft grettistaki í uppbyggingu fyrir fótbolta í Reykjavík?
Framsókn í Reykjavík vill halda þeirri mikilvægu uppbyggingu áfram!

Fyrir áhugasama er hægt að skoða KSÍ síðu Einars hér

KSÍ

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
+3

Ívar Orri flautar til hálfleiks. Allt jafnt þegar liðin ganga til búningsklefa. Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki, fáum vonandi enn meira stuð í þeim síðari!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Þremur mínútum bætt við
44. mín
Inn:Daníel Hafsteinsson (Víkingur R.) Út:Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Gylfi fer meiddur af velli Tekur bandið af sér og leggst niður beint eftir marktilraun sína, blóðtaka fyrir Víkinga.

Daníel Hafsteinsson kemur inn í hans stað og Gunnar Vatnhamar tekur við fyrirliðabandinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

43. mín
Gylfi! Gylfi lætur vaða fyrir utan teig og boltinn rétt yfir mark gestanna.
41. mín
Örvar Eggerts með skot úr teignum en Ingvar ver vel.

38. mín
Inn:Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan) Út:Gustav Kjeldsen (Stjarnan)
Kjeldsen neyðist til að fara af velli Gustav Kjeldsen leggst niður og fær aðhlynningu. Er búinn að kveinka sér og hefur haldið um aftanvert lærið.

Í hans stað kemur Örvar Logi.
37. mín
Víkingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateigshornið, Helgi og Gylfi gera sig líklega.

Helgi gefur fyrir en boltinn yfir pakkann og aftur fyrir endlaínu.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
35. mín
Gustav Kjeldsen eitthvað að kveinka sér og heldur utan um aftanvert lærið. Hann ræðir málin stuttlega við Jökul þjálfara og heldur síðan leik áfram.
29. mín
Helgi með hættulega fyrirgjöf sem Sindri hreinsar í horn. Örvar Eggerts skallar hornspyrnuna aftur fyrir endalínu og í aðra hornspyrnu.

Seinni spyrnan fer beint á kollinn á Gunnari Vatnhamar sem skallar boltann framhjá marki gestanna.
23. mín
Blys! - „Sektið okkur núna“ Stuðningsmenn Víkings kveikja í rauðu blysi/reykbombu fyrir aftan varamannaskýlin og reykurinn berst inn á völlinn.

Veit ekki hvort að þessi staðsetning sé útspil til að fá ekki sekt eða menn séu að reikna með vindátt.

**
„Sektið okkur núna“ og „Nafnlaus Mafía“ syngja stuðningsmenn Víkings eftir að blysin fóru á loft fyrir utan völlin.

Víkingar voru sektaðir eftir að blys fóru á loft í opnunarleiknum gegn Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
21. mín MARK!
Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
ELÍAS JAFNAR! Karl Friðleifur kastar boltanum á Elías úr innkasti. Hann fær að snúa með boltann, leggur hann fyrir sig og setur hann í bláhornið, allt jafnt!

Þessi varnarleikur Stjörnumanna ekki til framdráttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
20. mín
Erlingur! Erlingur Agnarsson fær frábært færi eftir laglegt spil Víkinga en hamrar boltann út í kærleiksskóg.
19. mín
Víkingar fengu mark á sig jafn snemma leiks gegn Breiðabliki. Stjörnumenn fara þó ekki sömu leið og Blikar gerðu og mæta Víkingum hátt.
16. mín
Sveinn Gísli brýtur á Örvari og fær tiltal frá Ívari. Jökull Elísabetarson ósáttur og ræðir við ÞÞÞ, fjórða dómara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
12. mín
Jóhann Árni spilar sem hafsent þegar Víkingar eru með boltann, áhugavert. Fer síðan upp á miðju með bolta.

Varnarlína Stjörnunnar án bolta:

Kjeldsen - Jóhann Árni - Sindri Þór - Guðmundur Kristjáns
10. mín
Gylfi með frábæra fyrirgjöf frá hægri en Óskar Borgþórs nær ekki að stýra boltanum á markið.
5. mín MARK!
Örvar Eggertsson (Stjarnan)
Stoðsending: Andri Rúnar Bjarnason
Þetta tók ekki langan tíma! Örvar skorar gegn gömlu félögunum!

Árni Snær á langa sendingu upp á Guðmund Baldvin. Guðmundur rennir boltanum á Andra Rúnar sem þræðir Örvar í gegn og hann klárar frábærlega úr þröngu færi!

Spurning hvort að Ingvar hefði átt að gera betur þarna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hornspyurna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
4. mín
Erlingur með fyrirgjöf sem fer af Kjeldsen og Árni Snær handsamar boltann örugglega.
1. mín
Leikur hafinn
Benedikt Warén sparkar þessu í gang! Stjörnumenn sækja í átt að Víkingsheimilinu.
Fyrir leik
Frægir á vellinum Frambjóðandinn Hlynur Bærings, Daníel Laxdal, Galdur Guðmundsson, Róbert Laufdal, Valur Gunnarsson, Lúlli Jónasson, Dóri píp og Brynjar Kristmundsson eru meðal frægra í stúkunni. Kveðja, útsendarinn.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar og leikmenn fá lófatak frá áhorfendum. Biðin styttist.
Fyrir leik
Tíu mínútur í leik og stúkan alveg að fyllast!
Fyrir leik
Fyrir leik
Líkleg uppstilling Stjörnunnar
Fyrir leik
Líkleg uppstilling Víkings
Fyrir leik
40 mínútur í leik, fólk er farið að tylla sér í stúkuna og Víkingar byrjaðir að hita upp.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Emil og Ekroth utan hóps Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, gerir þrjár breytingar á liði sínu frá 0-2 útisigri gegn KA í síðustu umferð. Inn í liðið koma þeir Sveinn Gísli Þorkelsson, Helgi Guðjónsson og Elías Már Ómarsson.

Þeir Nikolaj Hansen og Daníel Hafsteinsson taka sér sæti á bekknum. En fyrirliðinn Oliver Ekroth meiddist í leiknum gegn KA og tekur Gylfi við bandinu í fjarveru hans.

Stígur Diljan Þórðarson missti af leiknum fyrir norðan vegna meiðsla og er sömuleiðis utan hóps í dag. Jóhannes Kristinn Bjarnason og Aron Elís Þrándarson eru jafnframt utan hóps.

Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, gerir tvær breytingar á liði sínu frá 3-2 sigri gegn FH síðastliðinn föstudag.

Emil Atlason stífnaði upp í síðasta leik gegn FH og er því utan hóps í dag. Í hans stað kemur Andri Rúnar Bjarnason en hann skoraði sigurmark Stjörnunnar gegn FH síðastliðinn föstudag.

Þá kemur Sindri Þór Ingimarsson inn í byrjunarliðið í stað Daníel Finns Matthíassonar sem tekur sér sæti á bekknum. Spurning hvort að Jökull ætli að stilla upp í þriggja manna vörn eða hvort Sindri spili sem djúpur á miðju.
Fyrir leik
Eigum von á stemningu! Það var hörkustemning hjá Víkingum gegn Blikum í fyrstu umferðinni og svo kom góður hópur Víkinga norður á Akureyri í síðustu viku.

„Stuðningsmennirnir eru búnir að vera heldur betur frábærir. Fyrsti leikurinn var geggjaður, vel mætt og vel látið í sér heyra. Það var svo extra gaman að sjá að þeir leggja líka á sig og fjölmenntu norður til að styðja okkur. Þetta hjálpast allt saman í stóru myndinni. Stuðningsmenn eiga stóran þátt í okkar velgengni síðustu ár með öflugum stuðningi,“ sagði Sölvi Geir Ottesen í samtali við Fótbolta.net í gær.

Jökull Elísabetarson segir stemninguna hafa verið frábæra í fyrstu tveimur umferðunum og segir hana að einhverju leyti hafa smitast út frá körfuboltaliði Stjörnunnar sem leikur nú í úrslitakeppni Bónus-deildarinnar.

„Það er búin að vera tryllt stemning, það voru mikil læti fyrir norðan, þeir sem komu mættu með trommur og fána. Það var svo tryllt stemning á FH leiknum og það skilar sér alveg svakalega til liðsins.

Ég er vongóður að menn mæti vel á Víkingsvöllinn, menn mættu vel líka á körfuboltaleikinn á Sauðárkróki. Ég er að vona að við séum að ná að búa til blöndu úr tveimur íþróttum og hámörkum stemninguna sem er í boði í Garðabæ hjá þessum tveimur liðum," sagði Jökull Elísabetarson í samtali við okkar mann Steinke í gær.

Sjálfur vonast ég eftir að sjá sem flest blys á lofti í kvöld og skora ég á KSÍ að hætta að sekta fyrir það að hafa gaman.



Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Fyrir leik
Rætt um dómgæslu Örvar Eggertsson, leikmaður Stjörnunnar, fékk dæmda á sig vítaspyrnu gegn FH í síðustu umferð þar sem hann náði að renna sér í boltann en dómari leiksins dæmdi samt vítaspyrnu.

Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, um atvikið og VAR.

„Ég hef yfirleitt ekki verið að kvarta yfir dómum sem falla gegn okkur eftir leiki, en ef bara síðasta tímabil er tekið þá hafa margir dómar fallið gegn okkur, atvik í lok leikja þar sem ég held að VAR hefði getað leiðrétt dómana. Mér finnst VAR bara svo ofnotað og leiðinlegt dæmi eins og það er notað,“ sagði Jökull.
Þá fékk Víkingur umdeilda vítaspyrnu gegn KA í síðustu umferð. Ekki eru allir sammála um þann dóm en Steinþór Már Auðunsson, Stubbur, í marki KA var dæmdur brotlegur gegn Valdimar Þór Ingimundarsyni inn á vítateig KA.

Eftir leikinn gegn KA hafði hann sagði að Víkingur hefði átt inni vítaspyrnu þar sem meistararnir fengu ekki vítaspyrnu gegn Breiðabliki undir lok leiks, en þar hefði átt að dæma vítaspyrnu.

Fótbolti.net ræddi við Sölva í gær en hann taldi dóminn fyrir norðan réttan eftir að hafa skoðað upptökur af atvikinu; „Þannig við eigum ennþá einn (vítadóm) inni," sagði Sölvi og hló.
Fyrir leik
Siggi Raggi spáir í spilin Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ Runavíkur, er spámaður umferðarinnar en hann spáir heimasigri í kvöld.

Víkingur R. 2 - 1 Stjarnan
Þarna mætast tvö bestu lið Íslands núna. Leikmannahópur Víkings er sá sterkasti sem hefur nokkurn tímann sést hjá félagsliði á Íslandi. Þeir vinna þennan leik á heimavelli. Þeir munu vinna langflesta leikina sína í sumar. Stjarnan mun veita þeim einhverja samkeppni en ekki nægilega.

Fyrir leik
Sölvi fer yfir málin „Mér líst mjög vel á leikinn gegn Stjörnunni, Stjarnan er búin að ná í tvö góð úrslit, miklir markaleikir og það sést að Stjörnumenn eru byrjaðir að spila talsvert öðruvísi en þeir gerðu í fyrra.

Þeir eru orðnir meira sóknarsinnaðir, setja meiri þunga í sóknina. Þeir eru líka búnir að fá inn góða leikmenn sem gera sóknina þeirra ennþá sterkari," sagði Sölvi Geir Ottesen í samtali við Fótbolta.net í gær.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Samúel Kári á Hlíðarenda Valur hefur fest kaup á Samúel Kára Friðjónssyni en hann kemur á Hlíðarenda efitr rúmt ár hjá Stjörnunni.

„Hann er búinn að vera stór hluti af þessu liði og þessum hóp í eitt og hálft ár. Hann er rosalega öflugur leikmaður, býr mikið í honum og kannski að einhverju leyti meira en hann hefur sýnt hingað til. Og ég held að hann muni ná því hjá Val," sagði Jökull Elísabetarson. þjálfari Stjörnunnar, í samtali við Fótbolta.net í gær.


Mynd: Valur
Fyrir leik
Sömuleiðis tveir Stjörnumenn tæpir Stjörnumennirnir Alex Þór Hauksson og Emil Atlason eru tæpir fyrir leikinn gegn Víkingi annað kvöld.

„Það eru einhver spurningamerki með Alex Þór og Emil. Emil stífnaði aðeins upp í síðasta leik og við gefum okkur þangað til á morgun með að taka lokaákvörðun um það. Aðrir eru bara heilir og í lagi," sagði Jökull Elísabetarson í samtali við Fótbolta.net í gær.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Tveir Víkingar tæpir Tveir leikmenn Víkings eru tæpir vegna meiðsla fyrir leik kvöldsins. Það eru þeir Oliver Ekroth og Stígur Diljan Þórðarson.

Fyrirliðinn Ekroth meiddist í leiknum gegn KA en Stígur Diljan missti af leiknum fyrir norðan vegna meiðsla.

„Hvort að annar hvor geti verið með á morgun verður að koma í ljós, við þurfum að sjá til hvað kemur út úr myndatökunni og hvað læknirinn segir. Fyrir utan svo Daða Berg eru allir klárir í slaginn,“ sagði Sölvi Geir Ottesen í samtali við Fótbolta.net í gær.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Ívar Orri á flautunni Ívar Orri Kristjánsson dæmir leikinn. Birkir Sigurðarson og Guðmundur Ingi Bjarnason eru aðstoðardómarar og Þórður Þorsteinsson Þórðarson fjórði dómari. Eftirlitsmaður KSÍ er Egill Már Markússon.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fyrsti í sumri! Heilir og sælir lesendur góðir og gleðilegt sumar! Hér verður fylgst með gangi mála í stórleik Víkings og Stjörnunnar. Ríkjandi Íslandsmeistarar eru með fjögur stig en Stjarnan er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Besta deild karla
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (VÍS völlurinn)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
3. Gustav Kjeldsen ('38)
5. Guðmundur Kristjánsson (f) ('76)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson ('76)
8. Jóhann Árni Gunnarsson
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
21. Ibrahim Turay
23. Benedikt V. Warén ('66)
99. Andri Rúnar Bjarnason ('76)
- Meðalaldur 28 ár

Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason (m)
2. Heiðar Ægisson ('76)
14. Bjarki Hauksson ('76)
17. Haukur Örn Brink ('76)
19. Daníel Finns Matthíasson ('66)
30. Markús Andri Daníelsson Martin
32. Örvar Logi Örvarsson ('38)
36. Arnar Breki Björnsson
77. Damil Serena Dankerlui

Liðsstjórn:
Jökull I Elísabetarson (Þ)
Alex Þór Hauksson
Emil Atlason
Rajko Stanisic
Egill Atlason
Hákon Ernir Haraldsson
Garpur I Elísabetarson
Hrannar Bogi Jónsson

Gul spjöld:
Bjarki Hauksson ('86)

Rauð spjöld: