Keflavík
0
0
Víkingur R.

03.05.2026 - 18:00
HS Orku völlurinn
Besta karla
HS Orku völlurinn
Besta karla
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Keflavík komið skemmtilega á óvart í upphafi móts
Það voru ekki margir sem bjuggust við miklu frá Keflavík í upphafi móts og var nýliðunum af mörgum spekingum ekki spáð mikilli stigasöfnun í upphafi móts.
Keflavík hefur hins vegar verið að spila flottan fótbolta og komið skemmtilega á óvart. Eftir að hafa tapað fyrstu tveim leikjum sínum í deildinni gegn KR og Fram hafa þeir sótt stig gegn Breiðablik og nú síðast sigur á Akureyri gegn sprækum KA mönnum.
Það má alveg færa rök fyrir því að í liði Keflvíkinga sé einn heitasti framherji deildarinnar í dag, Stefan Alexander Ljubicic en hann hefur farið vel af stað og skorað þrjú mörk það sem af er móti. Hann hefur látið vel fyrir sér finna í vítateig andstæðingana og varnarmenn eiga í stökustu vandræðum með hann í boxinu.
Þorlákur Breki Baxter hefur einnig komið virkilega vel inn í lið Keflavíkur og styrkt miðsvæði nýliðana vel. Virkilega skemmtilegt að fylgjast með þessum leikmanni í búningi Keflavíkur en hann átti einnig frábært tímabil fyrir ÍBV á síðasta tímabili.

Víkingsvélin byrjuð að malla
Víkingar sitja í 2.sæti deildarinnar fyrir fimmtu umferð Bestu deild karla. Eftir að hafa gert jafntefli við Breiðablik í opnunarleiknum þá hafa þeir unnið síðustu þrjá leiki í röð gegn KA, FH og nú síðast ÍA.
Elías Már Ómarsson hefur farið vel af stað með Víkingum í vor en hann er markahæstur í deildinni ásamt Aroni Sigurðarsyni í KR með 5 mörk eftir fjórar umferðir.
Elías Már Ómarsson er auðvitað uppalinn Keflvíkingur og er því að mæta uppeldisfélaginu í fyrsta sinn í kvöld.