Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
2 - 0
Vestri
Vestri
Benedikt Daríus Garðarsson 48'1 - 0Kári Sigfússon 58'2 - 0
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Fylkismenn fara sáttir á koddann í kvöld

Hvað réði úrslitum?

Fylkismenn voru betri í dag og sýndu það. Þetta var fagmannlegur sigur og einfaldur. Vestri átti alveg tækifæri til þess að skora en gerðu ekki nægilega vel við færin þegar tækifærin komu.

Bestu leikmenn

1. Kári Sigfússon

Mark og stoðsending í dag, annars var hann mjög góður. Markið sem hann skoraði var vel gert hjá honum.

2. Benedikt Darius Garðarsson

Mark í dag, en fyrir utan það var hann alltaf að finna sér góðar stöður til þess að skora og var nálægt því að skora tvö í dag.

Atvikið

Fyrsta mark Fylkismanna slær Vestra alveg úr laginu og þá var allt í einu Vestri að elta leikinn. Vestri náði aldrei að ógna Ólaf í marki Fylkis mjög mikið og Fylkir sigldi svo sigrinum heim.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn eru í fyrsta sæti með markatöluna +5 og hafa enn ekki fengið á sig mark í sumar. Vestramenn fara heim með eitt stig í áttunda sæti með markatöluna -2.

Vondur dagur

Sókn Vestra var alveg að komast í góðar stöður en þegar þeir komust í þær þá vantaði oftast upp á síðustu sendinguna og svo þegar fyrirgjafirnar komu þá skölluðu hafsentar Fylkis þær bara burt. Vestra menn átti góð tækifæri og hefðu átt að gera betur og maður veit aldrei hvort að leikurinn hefði verið meira spennandi þá.

Dómarinn - 6

Vestri gat alveg fengið fleiri gul í seinni, fyrir utan það var þetta góð vakt hjá dómaranum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.