SKÝRSLAN: Þróttur fann glufuna í dal draumanna
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var gæðin og reynslan í Þróttar liðinu. Þær voru þolinmóðar sérstaklega í fyrri hálfleik og fundu loks glufu á þéttum varnarpakka Fram á 33 mínútu með marki frá Sigríði Theódóru. Þróttarar gengu svo á lagið þegar Fram konur freistuðust til að spila meiri sóknarbolta og voru á tímabili líklegri til að jafna. Þróttur hins vegar stóðst áhlaupið og náði að setja tvö mörk til viðbótar.
Bestu leikmenn
1. Sæunn Björnsdóttir
Sæunn átti góðan leik í hjarta varnarinnar hjá Þrótti. Átti nokkrar frábærar tæklingar sem kom í veg fyrir að Fram konur næðu að valda usla. Þá átti Sæunn stoðsendinguna á Makkerinn sinn í vörninni, Jelenu Tinnu sem skoraði annað mark Þróttar í kvöld.
2. Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir
Skoraði sitt annað mark í sumar og í öðrum leiknum í röð! Lúrði á fjær og var fljót að ná frákastinu og setja hann í markið. Vonandi er þetta það sem koma skal frá henni í sumar!
Atvikið
Set þetta á fyrsta mark leiksins sem Sigríður Theódóra skoraði á 33. mínútu leiksins. Þróttur var búið að vera meira og minna í sókn en varnarlína Fram hafði verið mjög þétt og gefið fá færi á sig. Þolinmæði og trú Þróttara og staðsetning Sigríðar skóp svo fyrsta markið.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Þróttur sækir þrjú stig og tillir sér við hlið ÍBV í 3. sætið en Fram konur sitja enn á botninum með núll stig.
Vondur dagur
Það átti engin lélega frammistöðu í dag. Fram liðið gerði mjög vel oft á köflum og þrátt fyrir 0-3 sigur þá var hann erfiður fyrir Þrótt að sækja. Væri samt til í að sjá aðeins meiri X factor frá Taylor Marie Hamlett fram á við. Fram konur þurfa karakter sem getur brotið upp leikinn fyrir þær og sett inn óvænt mörk
Dómarinn - 5
Bara ótrúlega allt í lagi. Engar stórkostlegar ákvarðanir sem þurfti að taka í dag. Leit stundum út eins og hann væri alveg fram á síðustu sekúndu að ákveða hvort hann ætlaði að teygja sig í spjald eða ekki. Svo var eitt skrítið atvik þegar hann bendir Álfu að fara útaf eftir að hann stoppar leikinn eftir höfuðhögg en hún bað ekki um né fékk aðhlynningu en þurfti samt að dúsa útaf í mínútu. Það var smá skrítið.



